Vér mótmælum allir - 16.04.1946, Qupperneq 8
RÆÐUMENN Á ÚTIFUNDINUM
Jóhannes Eliasson: „íslending
ar eiga að gæta sjálfir lands-
ins síns á friðartímum, og
það er óverðskuldað vantraust
á þjóðina að lialda, að hún
geti það ekki“.
Dr. Sigurður Þórarinsson:
Stúdentar standa enn einhuga
vörð um sjálfstæði þjóðar
sinnar, minnugir þess, að það
var íslenzkur stúdent, sem
hafði orð fyrir þeim hópi ís-
lendinga, er sagði einróma:
„Vér mótmælum allir“.
Runóljur Á. Þórarinsson:
„Sjálfstæðismál hverrar þjóð-
ar á að vera henni of heilagt
til að gera það að pólitísku
dægurþrasi og langt yfir það
hafið“.
Kristján Eiriksson: „Við skor-
um á alla alþingismenn að
gefa okkur afdráttarlaust svör
um það, hvort þeir muni ljá
því samþykki sitt, að nokk-
urt erlent ríki fái herstöðvar
hér á landi“.
Jón 'P. Emils: „Það á að vera
ósk og krafa almennings í
landinu, að íslenzki þjóðsöng-
urinn og ísl. fáninn megi á ó-
komnum öldum vera tákn al-
frjálsra manna í frjálsu landi“.
Guð m und u r Ásm u n dsso n,
fundarstjóri: „Ég vona, að
þeir, sem fylgdu okkur stúd-
entum í þessu máli, er þeir
komu á fundinn, liafi styrkzt
í trúnni á málstað sinn, en
hinir, ef nokkrir eru, endur-
skoði afstöðu sína“.
8 VÉR MÓTMÆLUM ALLIR!