blaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 2
mánudagur 9. maí 2005 I blaðið
Blaðið komið í dreifingu í tilefni af útgáfu Blaðsins síðastliðinn föstudag mætti starfsfólk þess snemma í vinnuna um morguninn. Það kom sér fyrir við gatnamót Kringlu-
mýrarbrautar og Miklubrautar og dreifði blöðum í bíla. Uppátækinu var vel tekið og hafði fólk ekkert nema gott um Blaðið að segja. í framtíðinni mun þó íslandspóstur sjá um
þennan þátt.
Krabbameinsfélagið skortir fé
„Það mætti vera meiri innrás“,
segir Guðrún Agnarsdóttir
Frekara fjármagn þarf að renna til
rannsóknarstofu Krabbameinsfélags-
ins ef félagið á að geta haldið starfinu
gangandi. Stofan hefur unnið merki-
legt starf í rannsóknum á brjósta-
krabbameini og látið að sér kveða á
alþjóðavettvangi.
Með því að taka þátt í að finna gen
sem tengist ættlægu brjóstakrabba-
meini hefur rannsóknarstofan sýnt
að hún er að vinna brýnt starf í þágu
almennings og mikilvægt er að halda
fjármögnun hennar áfram. „Nýlega
endurnýjaði Krabbameinsfélagið
samning við Háskólann en það vant-
ar enn talsvert fjármagn til þess að
hægt sé að tryggja þennan mikilvæga
rekstur áframsegir Guðrún Agnars-
dóttir, forstjóri Krabbameinsfélags-
ins, og bætir við að verið sé að leita
að samstarfsaðilum til þess. Aðspurð
hvort Guðrún hafi áhyggjur af fram-
tíðinni svarar hún þv£ játandi. „Það
vantar fé til þess að geta haldið þessu
gangandi. Það virðast vera miklir pen-
ingar í íslensku samfélagi og mikil út-
rás í gangi. Það mætti kannski vera
meiri innrás. Það er bæði spennandi
og mikilvægt að fjárfesta í þekkingu
á þessu sviði," segir hún að lokum.
Samkirkjuleg bænastund fór fram í Hallgrimskirkju í gær til þess að minnast þess að 60 ár eru liðin frá lokum seinni heimsstyrj-
aldarinnar. Þar var fórnariamba helfararinnar minnst með því að rabbíni tónaði Kaddish, hina hebresku bæn, og beðið var fyrir
friði og frelsi í heiminum. Halldór Ásgrimsson forsætisráðherra verður viðstaddur minningarathöfn striðslokanna í Moskvu í dag.
www.Milljon.com
Einföld netviðskipti fyrir alla.
Gríðarlegir tekjumöguleikar.
Skoðaðu afar góða kynning-
armynd á www.Milljon.com
Sáttur við
siðareglur DV
Róbert Marshall, formaður Blaða-
mannafélags íslands, segist
ánægður með nýjar siðareglur DV,
sem litu í fyrsta sinn dagsins ljós í
gær. Hann telur þær ekki bijóta
í bága við almennar siðareglur
Blaðamannafélagsins. „Ég get
ekki betur séð en siðareglur Blaða-
mannafélagsins nái yfir öll þau mál
sem þarna eru tekin til með einum
eða öðrum hætti. Ég lít ekki svo á að
þetta sé í neinni andstöðu við þær,“
segir Róbert.
Fullur á þinginu
er almenningsmál
í greininni „Einkamál" í hinum
nýju siðareglum, segir að DV
hyggist ekki „birta upplýsingar
um persónulega einkahagi fólks á
heimih þess, svo sem um viðkvæm
atriði á borð við kynhegðun þess,
lyfjanotkun, vímuefnanotkun og
félagsleg vandamál nema heimilið
lendi í útistöðu við umhverfið eða
fólk". Ljóst er að hugtökin „félagsleg
vandamál" og „vímuefnanotkun“
varða með einum eða öðrum hætti
samfélagið og að skilgreining DV á
einkamálum sé því nokkuð víðfeðm.
Aðspurður sagðist Róbert þó ekki
telja þetta á skjön við almenn
vinnubrögð fjölmiðla. „Við metum á
hveijum degi hvenær málefni varða
almannahag og hvort þau eigi erindi
við almenning eða ekki. Við höfum
rými innan tjáningarfrelsis til að
túlka það og það er því réttur DV.
Öllum réttindum fylgir ábyrgð en
við höfum alltaf fjallað á gagnrýninn
hátt um opinberar persónur - fullur
á þinginu er almenningsmál en fullur
heima er einkamál," segir Róbert.
Ekki stefnubreyting
16. f brúar sl. tilkynnti Jónas
Kristj nsson, þáverandi leiðara-
höfundur og núverandi ritstjóri DV,
að hann hygðist semja siðareglur
fyrir blaðið. í kjölfarið átti sér
stað hörð umræða um nafna- og
myndbirtingastefhu DV sem ætlar
að birta nöfh og myndir fólks
sem er í fréttum blaðsins „svo
framarlega sem [þaðj kemst yfir
þessar upplýsingar". Róbert segist
telja að með hinum nýju siðareglum
sé heldur um formlega staðfestingu
á núverandi starfsháttum að ræða
fremur en hugmyndafræðilega
stefhubreytingu. „Ég les í sjálfu sér
enga stefnubreytingu út úr þessu og
ég veit ekki hvort að það hafi verið
markmið þeirra.“
SEATING
Cambridge 3ja sæta
119.900
Laugavegi 97
O Helöskfrt (3 Uéttskýjað ^ Skýjað £ Alskýjað '\ J Rlgning, lítilsháttar
” Slydda
'Í' Snjókoma
*
V
Slydduél
v
Snjóél
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Oriando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublin
Glasgow
-•// /
5//
cf
TS
///
6°1// J-i
df
Veðurhorfur í dag
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
6°\7
. m V A morgun
o
6‘V 0 6°
6°