blaðið

Ulloq

blaðið - 09.05.2005, Qupperneq 11

blaðið - 09.05.2005, Qupperneq 11
mánudagur 9. maí 2005 I blaðið Sjónvarp og net stuðla að greind bladid@vbl.is Því hefur verið haldið fram, og reyndar þrástag- ast á því, að sjónvarpsgláp, vídeóleikir og of mikil notkun netsins geri böm og unglinga heimsk og sinnulaus. Þessari vinsælu kenningu er hafnað í nýrri bók, sem er vitanlega þegar orðin afar um- deild. Bókin heitir Eveiything Bad Is Good for You og er eftir Bandaríkjamanninn Steven John- son. Hann segir sjónvarpsþætti, vídeóleiki og netnotkun stuðla að aukinni greind í vestrænum samfélögum. Rannsóknir sýna að greindarvísital- an í vestrænum samfélögum hefur hækkað jafnt og þétt ffá árinu 1943. Johnson telur að netvæð- ingin og aukinn aðgangur manna að fjölmiðlum eigi þátt í þessu. (nýrri bók er því hafnað að sjónvarps- og töivugláp geri börn og unglinga heimsk. ■ bladid@vbl.is Ahyggjur af heilsu páfa Áhrifamenn innan kaþólsku kirkjunnar em ir hafa áhyggjur af heilsufari hins nýja Benedikts XVI. Joseph Ratzinger, sem páfanafnið Benedikt, er 78 ára og elsti m að vera kjörinn í embættið í 275 ár. Nýlega skýrt ffá því að hann hafi á síðustu tveimur áram fengið væg hjartaáfóll. Frá því hann tók við emb- ætti hefur hann nokkmm sinnum þurft að styðja sig við aðstoðarmenn í messum. Hann mun þjást af svima og svefntruflunum. Ratzinger fékk heilablóðfall árið 1991 og bað ítrekað, og án árangurs, forvera sinn, Jóhannes Pál, um lausn ffá störfum. Hann mun hafa vilj- að snúa aftur til heimalands síns, Þýskalands, og skrifa bækur. Bróðir Benedikts XVI, sem er prestur, hefur vakið óróa margra í páfagarði með yfirlýsingum um að álagið í hinu nýja starfi muni reynast bróður sínum um megn. Benedikt XVI. Pjáist af svima og svefntruflunum. ■ Tugir láta lífið Tuttugu og tveir létu lífið, þar af tveir Bandaríkja- menn, í tveimur sprengjutilræðum í Bagdad um helgina. Árásimar vora gerðar á bílalest í mið- borginni og var um að ræða sjálfsvígsárásir þar sem tilræðismennimir komu akandi á bílum sem síðan sprangu í loft upp. Á síðstu 10 dögum hafa meira en 300 manns látið lífið í tilræðum í írak. ■ Engin áhrif bladid@vbl.is Ferðamálaráðherra Egyptalands segir að árásir á erlenda ferðamenn í landinu í síðasta mánuði hafi ekki haft nein áhrif á ferðamannastraum til landsins. Þrír ferðamenn létust og nokkrir særðust í þremur tilræðum í apríl. Um var að ræða sjálfsvígsárás- ir á vinsælum ferðamannastöðum í og við Kaíró, og í einu tilviki var sprengd- ur upp langferðabíll. Á síðasta ári komu um átta milljónir ferðamanna til Egyptalands og er ferðaþjónusta ein af helstu tekjulindum landsins. Það þarf því ekki að hafa mörg orð um hversu viðkvæm þessi atvinnugrein er gagnvart tilræðum sem þessum. Mikil flóð bladid@vbl.is Hundruð eru heimilislaus og miklar traflanir hafa orðið á samgöngum í Rúmeníu eftir mikil flóð um helgina. Verst er ástandið í Buzau-héraði í suðausturhluta landsins þar sem hundruð húsa eru einangruð. Björg- unarsveitir hafa notað þyrlur til að bjarga fólki af þökum húsa. Veður- fræðingar hafa varað við því að von sé á enn meiri rigningu í Rúmeníu næstu daga og gæti því ástandið enn átt eftir að versna. Vladimir Pútín Rússlandsforseti og Viktor Jushchenko, forseti Úkraínu, hittust í Moskvu í gær í tengslum við fund leiðtoga tólf fyrrverandi lýð- velda Sovétríkjanna sálugu. Pútín hvatti leiðtogana til að berjást gegn hryðjuverkum. Seayak frá Prijon kr. 3,053 á mánuði Kanóar 99,900 Rafmagnsmótorar áður 22,900 nú 19,900 Crewsaver heilgallar m/öndun áður 49,900 nú 39,900 Vatnabátar frá BIC stórir áður 79,900 nú 69,900 litliráður 49,900 nú 44,900 Sjóskíði, slöngur og aukahlutir í vatnasportið í miklu úrvali Hjól frá 24,900 * Miðast við raðgreiðslur í 36 mánuði. Vextir og kostnaður ekki innifalinn SKOTVEfÐAR, UTIVIST & KAJAKAR Sportbúð Títan s:5178810 www.sportbud.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.