blaðið - 26.05.2005, Qupperneq 12
fimmtudagur, 26. maí 2005 i blaðið
Barnarúm
ernak@vbl.is
Bamaherbergið er sú vistarvera
heimilisins sem böm hafa mest um að
segja. Þau eru gjarna björt og litrík,
að barna smekk, og geyma ógrynni
af kössum undir ýmislegt dót. Mik-
ilvægasta húsgagn barnaherbergis-
ins, líkt og annarra svefnherbergja,
er rúmið og þykir ekki verra ef það
býr yfir fleiri möguleikum en einum.
f seinni tíð eru barnarúm gjarnan út-
búin upphækkuð með leiksvæði und-
ir svefnrými, eða geymslueiningum.
Áður fyrr var vinsælt að hafa rúmin
tvískipt svo draga mátti þau út og
stækka eftir því sem börnin uxu og
má meðal annars sjá nokkur þeirra á
minjasafninu Húsinu á Eyrarbakka.
Ný rúm
Þessi rúm njóta nú aukinna vin-
sælda, enda geta þau sparað heilmik-
ið gólfpláss og hafa yfir sér róman-
tískan
blæ fortíðar.
Nokkrar versl-
anir á höfuðborgarsvæðinu hafa rúm
sem þessi til sölu. Línan á Suður-
landsbraut var að fá eitt slíkt, hvít-
bæsað í antíkstíl. Það kostar 48.300
krónur og fylgir því dýna, 75x120.
Aukalega fylgir 40 sm bútur sem
má bæta við þegar barnið stækkar
en rúmið má stækka allt upp í tvo
metra. Hj á IKEA má einnig fá stækk-
anlegt barnarúm með ögn nútíma-
legri útfærslu. Vikare-rúmið er með
uppbrettum gafli báðum megin en
hann má leggja niður til að stækka
rúmið, annars vegar í 80x130 sm og
svo í lengstu stöðu 165/200 sm. Það
kostar 9.900 krónur og dýnan kostar
4.900 krónur.
Umhirða nuddpotta
Margir telja það hápunkt sælunnar
að geta teygt úr sér í heitum og freyð-
andi nuddpotti í bakgarðinum en ekki
jafnmargir átta sig á því að nuddpott-
um fylgir viðhald og þá þarf að um-
gangast af heilbrigðri skynsemi, eins
og önnur heimilistæki. Blaðið spurði
sérfræðinga hjá Tengi um góð ráð og
þeir bentu á að það fyrsta sem færi
loftkœling
i
Verö frá 49.900 áli vsk.
ís-húsið 566 6000
úrskeiðis hjá nuddpottaeigendum
væri einfaldlega að fylgjast með pott-
inum. Langflestir pottar sem fara
illa skemmast vegna vanrækslu. Al-
gengast er að nuddpotturinn sé svo-
kallaður rafmagnspottur, og þeim
fylgir nokkur aukaráð. Það er gott
að setja klór- eða brómín-töflur út
í pottinn með reglulegu millibili til
þess að halda vatninu hreinu. Einnig
er nauðsynlegt að skipta vatninu út,
a.m.k. á 2-3 mánaða fresti, eða eftir
notkun. Ekki þykir gott að gleyma
viðarvörninni, ef umgjörð pottsins er
úr tré. Allt kann þetta að virðast sjálf-
sagt en oft getur heilbrigð skynsemi
og litlar aðgerðir, eins og að lesa leið-
beiningarnar, bjargað furðumiklu. ■
H USGAGNA
Bæjarlind 14-16, Kópavogi
LINDIN
10.000 MÖGULEIKAR - fyrir fólk með
sjálfstæðan smekk
dú velur sófa
dú velur stól
dú velur áklæði
dú velur lit
dú hannar
Hornsófi
Áklæði frá kr 72.000
Leðurkr 134.000
Sófasett 3+1+1
Áklæði frá kr 86.000
Leður frá kr 204.000
Boröstofustólar
Áklæði frá kr 7.200
Leður kr 12.500
Sessalong
Áklæði frá kr 37.000
Leður kr 81.000
Sparaðu
bensínið!
Sameinaðu ferðir.
Skipuleggðu ferðir þínar svo þú
komist hjá því að keyra sömu leiðina
aftur og aftur.
Slakaðu á fótstigunum.
Bremsaðu mjúklega og taktu rólega
af stað þegar þú getur komið því við.
Slepptu lausagangi.
Ekki hafa bílinn í gangi þegar þú
sérð fram á langa bið.
Tæmdu skottið.
Aukinn þungi þýðir meiri bens-
íneyðslu. Aukin loftmótstaða þýðir
líka aukna bensíneyðslu - geymdu
því hluti inni í bílnum frekar en á
toppgrindinni.
minni og stærri
Endurnýjun gamalla
rúma
Fyrir þá sem eiga slík rúm
frá fyrri kynslóðum en vilja end-
urnýja dýnur má benda á að
Lystadún-Snæland sérsmðir hag-
anlegar, stækkanlegar dýnur í
bamarúm. Það þarf að sérpanta
dýnurnar og kostnaður fer alveg
eftir máli, en sem dæmi kostar
dýna, sem er 60x120 að stærð, um
það bil 5.900 krónur. Aðspurður
sagðist sölumaður Lystadúns-
Snæland ekki vita um aðra sem fram-
leiddu svona dýnur en þær eru stækk-
anlegar á tvo vegu - annaðhvort
með því að festa búta á dýnurnar
með frönskum rennilás eða að setja
endann uppi við rúmgaflinn þann-
ig að það brettist úr dýnunni þegar
rúmið er stækkað. Dýnurnar eru úr
mjög mjúkum svampi en hann þykir
ákjósanlegur fyrir ung bök. Einnig er
hægt að fá svokallaðar eggjabakka-
dýnur ef þess er óskað.
f
Hvernig á að hreinsa
fiður og dún?
Mælt er með því að hreinsa dún- og
fiðursængur á 2-3 ára fresti svo þær
stuðli að hlýju og notalegheitum en
séu ekki gróðrarstöð öndunarfæra-
sjúkdóma. Þetta getur reynst snúin
aðgerð vegna þess að dúnn dregur í
sig ótæpilega mikið vatn þegar hann
blotnar. Því verður dúnsæng mjög
þung þegar hún er bleytt og dæmi eru
um að sængur hafi skemmt þvottavél-
ar í hreinsunum. Blaðið kannaði mál-
ið og komst að því að sérverslunin
Dúnn og fiður tekur að sér dúnhreins-
un á afar góðum kjörum - 1.100 krón-
ur fyrir sængina. Starfsmenn Dúns
og fiðurs sögðu að alla jafna væri
hægt að skila sænginni inn að morgni
og fá hana aftur að kvöldi, og að það
væri ekki líku saman að jafna þegar
sængin kæmi úr hreinsun.
Ástvinamissir
Sófasett - sófar - hægindastólar - borðstofustólar - borðstofuborð - skápar
Flestir þurfa að takast á við þá sorg
sem fylgir í kjölfar ástvinamissis. Að
mörgum hagkvæmnisatriðum er þó
einnig að huga því andláti ástvinar
fylgir ýmisleg umsýsla. Á vefsíðunni
www.golskylda.is má finna ýmsar
þær upplýsingar sem nauðsynlegar
eru aðstandendum hins látna. Útfar-
arþjónustur sjá um margvíslega til-
högun og geta létt skipulagi af syrgj-
endum. Auk upplýsinga um slíka
þjónustu má finna ráðleggingar um
aðra þætti, eins og dánartilkynning-
ar og vottorð og fleira.