blaðið - 26.05.2005, Page 20
fimmtudagur, 26. maí 2005 i biaðið
ynaar maninn
jarðskjálfta?
í slendingar eru vanir daglegum breyt-
ingum milli flóðs og fjöru, sem orsak-
ast aðallega af léttvœgu aðdráttarafli
tunglsins. Nú velta vísindamenn því
fyrir sér hvort sama aflið geti orsakað
jarðskjálfta.
„Sömu kraftar og lyfta yfirborði
hafsins geta hreyft við yfirborði jarð-
arinnar," segir Geoff Chester, stjömu-
fræðingur og almannatengslastjóri
Bandarísku hafrannsóknarstofnun-
arinnar í Washington. Hann segir
hreyfingu jarðskorpunnar af tungl-
sökum aðeins skipta sentímetrum
samanborið við margra metra breyt-
ingu á hafsborði. „Þar sem við búum
á skorpunni tökum við ekki eftir þess-
um breytingum - þær era litlar en
engu að síður til staðar. Marga jarð-
skjálfta má rekja beint til flekahreyf-
inga í jarðskorpunni en ekki er hægt
að útiloka að aðdráttarafl mánans sé
hluti af orsakakeðjunni."
Chester segir að yfirleitt séu fleiri
jarðskjálftar á norðurhveli jarðar þeg-
ar tunglið er norðan við miðbaug og
að jarðskjálftatíðni hækki á suður-
hvelinu þegar máninn er sunnan við
miðbaug.
■
Framfarir á sviði röntgengeislatækni
munu skila sér í aukinni þekkingu
um eðli svarthola. Svarthol eru stað-
ir í geimnum sem hafa svo sterkt
aðdráttarafl að ekkert getur sloppið
frá þeim, þar með taldir ljósgeislar,
og því er oft erfitt að nema þau með
hefðbundnum geimsjónaukum.
Á undanfómum árum hafa vísinda-
menn komist að aðferð til að stað-
setja svarthol sem talin eru skipta
Galileo
Evrópusambandið hefur tilkynnt
að það muni þróa geimáætlun, sem
ber nafnið Galileo, fyrir aðildarríkin
25. Áætlunin hefur það markmið að
keppa við GPS-staðsetningarkerfi
Bandaríkj amanna.
Nefnd innan ESB hefur hafið
langtímarannsókn á samskiptatækni
gervihnatta og hyggst vinna að henni
ásamt Rússum. Einnig verður haft
samráð við Bandaríkjamenn um
ýmis tækniatriði. Galileo-áætlunin
verður kynnt ítarlega á fundi
aðildarríkja ESB og aðildarríkja
geimrannsóknarstofnunar ESB 7.
júní nk. Nefndin býst við því að hljóta
formlegt rannsóknarleyfi í árslok.
„Stór og ört stækkandi Evrópa
verður að búa að úrræðum til
að mæta síauknum kröfum og
þörfum nútímans," sagði Guenther
Verheugen, stjómamefndarmaður
Iðnaðamefhdar ESB.
Áætlað er að Galileo-verkefnið
kosti um 4,64 milljarða dollara og
að fyrsti gervihnötturinn af 30 fari á
Óbeinar reykingar skaða
frjósemi kvenna
Niðurstöður nýlegrar rannsóknar
benda til þess að óbeinar reykingar
skaði fijósemi kvenna. Lengi hefur
verið vitað að tóbaksreykur skaði
frjósemi þeirra kvenna sem reykja
að staðaldri en nýmælin í rannsókn-
inni felast í ótvíræðum gögnum sem
benda í fyrsta skipti til skaðlegra
áhrifa óbeinna reykinga.
í úrtaki 225 kvenna fannst eng-
inn merkjanlegur munur á frjósemi
þeirra kvenna sem reyktu og þeirra
sem bjuggu með reykingamönnum.
Líkur á þungun vom helmingi minni
meðal kvenna sem reyktu eða bjuggu
með reykingamanni en meðal þeirra
sem vom algerlega lausar við reyking-
ar - beinar og óbeinar. Niðurstöður
rannsóknarinnar birtust í tímaritinu
European medical joumal.
KJARAN EHF • SlÐUMÚU 14 • 108REYKJAVIK
SlMAR 510 5510 • 510 5500
OPIÐ VIRKADAGA KL. 8-18.
Glæsilegt úrval
Sisal og Kókos
gólfteppa
H ei mi Lisgó Lfd ú ka r
Tilboðsverð
frá kr. 900 á m2
Teppamottur
40% afsláttur
Teppi horn í horn
Stigateppi
Níðsterk og létt í þrifum
G0LFBUNAÐUR
Markaðsferð nokkurra vísinda-
manna í Asíu tók heldur betur nýja
stefnu þegar þeir heimsóttu matvöru-
markað í Laos á dögimum. Sáu þeir
afar sérkennileg nagdýr sem aldrei
hafa þekkst í heimi vísindanna, en
dýrin vora til sölu á einum básnum
sem matvara. Má gera ráð fyrir að
einhveijir hafi keypt dýrin sér til
matar án þess að vita hvers kyns
var. Dýrin era 40 sentímetra löng,
með löng veiðihár, stutta leggi og
loðið skott. „Þetta minnir að mörgu
leyti á eitthvað skylt rottum eða
músum en þetta er samt eitthvað
allt annað," sagði vísindamaðurinn
Robert Timmins, en hann segir það
ótrúlegt að hafa fundið eitthvað svo
flarri því sem þekkist í heiminum nú.
Timmins segir þó heimamenn í Laos
vera kunnuga þessu skrítna dýri en
að þeir geri sér ekki grein fyrir því
að þarna er óskilgreind tegund á
ferðinni sem ekki hefur sést. „Fólk
var að selja þetta þarna ásamt öðr-
um furðudýrum eins og ekkert væri
sjálfsagðara. Ég sá strax að þama
var eitthvað einkennilegt á ferðinni,“
sagði Timmins, en þeir félagar sendu
dýrið í DNA-greiningu og í rannsókn
hjá Paulu Jenkins, stjómanda Nátt-
úrusafnsins í London. í greiningu
kom ffam að þarna var á ferðinni
tegund algjörlega óskyld öðram og að
mikið rannsóknarefni væri komið til
sögunnar. Getgátur era uppi um að
tegundin sé stökkbreyting ffá stofni
sem var uppi fyrir um milljónum ára
og verður haldið áfram rannsóknum
á tegundinni, auk þess sem farið verð-
ur í leit að svipuðum óþekktum dýr-
um sem uppi era.
Ný aðferð við
greiningu svarthola
milljónum á hverri vetrarbraut. Með
því að beita geimsjónaukum, sem
eru móttækilegir fyrir röntgengeisl-
um, verður mun auðveldara að koma
auga á þau. „Þegar svarthol soga
að sér hluti þá hitna þeir og gefa að
endingu ffá sér röntgengeisla,“ segir
Edward Morgan, kjameðlisffæðing-
ur hjá Tæknistofnun Massachusetts í
Cambridge (MIT). Mannsaugað nem-
ur ekki geislana en með röntgensjón-
auka verður svartholið sýnilegra.
Vísindamenn telja að til séu nokkr-
ar tegundir svarthola. Algengust era
þau sem talin era vera leifar samfall-
inna stjama sem eitt sinn voru jafn-
vel tífalt stærri en sólin. Þegar þær
falla saman eykst aðdráttarafl þeirra
til muna. Svartholin soga þá til sín
efni af yfirborði nærliggjandi stjama
sem rennur í þau á hringlaga hátt
líkt og vatn í niðurfall.
Morgan vinnur við eftirht með
Rossi-röntgensjónauka NASA, sem
skotið var á loft árið 1995. Hann tel-
ur að sjónaukinn gefi nú, með aukn-
um tækniffamfórum, upplýsingar
sem geti gefið vísindamönnum hald-
bærari vísbendingar um samfallnar
stjörnur þar sem auðveldara verður
að rannsaka ferlið sem verður brátt
sýnilegra en það hefur áður verið.
geimáætlunin
sporbraut um jörðina seinna á þessu
ári.
Evrópusambandið vill ekki vera
háð GPS-kerfi Bandaríkjanna og
hyggst nota Galileo-gervihnettina
til að þjóna almennu eftirliti, s.s.
með skipum er flytja hættuleg
efhi, umferðarstraumum og
dýraflutningum.
■