blaðið - 26.05.2005, Blaðsíða 25
blaðið I fimmtudagur, 26. maí 2005
ísraelskir listamenn
vilja elska araba
Tveir samkynhneigðir ísraelskir
listamenn hafa sett upp stefnumóta-
dagskrá við araba í galleríi sínu í
New York. Þeir biðja einmana arab-
íska karlmenn um að senda þeim
myndir af sér ásamt tölvupóstfangi.
Síðan verða þeir í sambandi við
arabana í gegnum póst og mála af
þeim vatnslitamyndir. Myndirnar,
sem listamennimir áætla að verði
um 400, verða á sérstakri sýningu
í galleríinu. Á sýningunni verður
einnig komið íyrir rúmi íyrir þrjá.
Þar munu listamennirnir Gil og
Moti eiga í ástarleikjum við þann ar-
aba sem fallið hefur þeim best í geð.
Reyndar ekki fyrir allra augum því
sérstakt tjald verður sett í kringum
rúmið ásamt skilti sem á stendur
„ónáðið ekki“. Þeir félagar segja að
þeim sé fullkomin alvara og listasýn-
ingin snúist ekki um subbulegt hóp-
kynlíf heldur raunverulega ást.
„Þegar við vorum skólakrakkar
var okkur kennt að hata araba. Okk-
ur fannst við verða að gera eitthvað
sem gæti yfirstigið pólitíkina svo við
ákváðmn að verða ástfangnir af ar-
aba,“ segir Gil.
Sýningin nefnist því ágæta nafni
Sleeping With the Enemy.
Síðasta sýning
á Draumleik
Síðustu forvöð til að sjá Draumleik,
útskriftarverkefni Leiklistardeildar
Listaháskóla íslands árið 2005, er
fóstudagskvöldið 27. maí. Leikritið
er eftir August Strindberg og er sett
upp á Stóra sviði Borgarleikhússins í
samvinnu við Leikfélag Reykjavíkur.
í Draumleik segir frá Agnesi, dóttur
Guðs, sem ferðast til jarðarinnar til
að athuga hvernig mönnunum líður.
Hún tekur þátt í störfum þeirra, leikj-
um og daglegu amstri, og kemst að
ýmsu um þessa útvöldu dýrategund.
Alls taka 16 leikarar þátt í uppfærsl-
unni, níu ungir leikarar og sjö af leik-
urum Borgarleikhússins. Leikstjóri
er Benedikt Erlingsson. Höfundur
leikmyndar er Gretar Reynisson.
Umdeildur
útgáfulisti
Breska Penguin-útgáfan fagnar 70
ára afmæli sínu í ár. í tilefni afmælis-
ins sendir útgáfan frá sér 70 kiljur af
alls kyns tagi. Þar eru bækur eftir höf-
unda á borð við D.H. Lawrence, Nick
Hornby, Albert Camus, P D. James,
Roald Dahl, Homer, Önnu Frank,
Michael Moore, George Orwell, Sig-
mund Freud, John Steinbeck, P.G.
Wodehouse, Virginiu Woolf og Gabrí-
el Garcia Marquez, svo einhver fræg
nöfn séu nefnd. Nú hafa hins vegar
risið deilur um útgáfuna vegna þess
að allir höfundarnir á útgáfulistanum
eru hvítir, fyrir utan blökkumennina
Zadie SmithogHari Kunzru. Sérstak-
lega sakna menn Bandaríkjamanns-
ins James Baldwin af listanum en
hann var afar áhrifamikill höfundur
á sínum tíma og baráttumaður fyrir
réttindum blökkumanna. Markaðs-
stjóri Penguin-útgáfunnar svarar
gagnrýninni með því að forlagið hafi
ekki viljað nota kvóta af neinu tagi
við valið á höfundum og hvað James
Baldwin varði hafi hann aldrei verið
metsöluhöfundur í Bretlandi.
Er Dumbleplor.p
feigur?
Sjötta Harry Potter bókin kemur út í
Englandi 16. júlí. Höfundurinn J.K
Rowling hefur gefið í skyn að þar
muni ein aðalpersónan deyja. Veð-
bankar í Englandi tóku samstund-
is við sér og menn kepptust við að
giska á hver myndi falla í valinn að
þessu sinni. Veðbanki á netinu segist
nú búinn að upplýsa málið. Starfs-
menn tóku eftir því að óvenju mikið
Ný Harry Potter bók er á leiðinni og talið
er að þar muni Dumbledore láta lífið.
var um veðmál frá bænum þar sem
prentsmiðjan sem prentar bókina er.
Þaðan var nær undantekningalaust
veðjað á að Dumbledore, skólastjóri
Hogwarts-skólans, myndi deyja. Veð-
bankar segja að svo virðist sem ein-
hveijir hafi lesið bókina, viti leyndar-
málið og ætli sér að græða á því.
Af J.K. Rowling er það helst að
frétta að hún mun vera að íhuga að
skrifa bækur fyrir fullorðna. Hún hef-
ur mikinn áhuga á sakamálasögum
og vinur hennar, glæpasagnahöfund-
urinn Ian Rankin, telur að þar gæti
henni tekist vel upp. Hún hefur skrif-
að tvær skáldsögur fyrir fullorðna en
þær hafa aldrei komið út.
V/SA
HEILSTÆÐ LAUSN FYRIR STAFRÆNA SKEMMTUN HEIMILISINS!
HORFÐU A MYNDBOND/MYNDIR/TONLISTI SJONVARPINU EÐA SKJAVARPA
AN ÞESS AÐ TENGJASTTÖLVU.
TENGDU STAFRÆNU MYNDAVELINA BEINTVIÐ RAPSODY HVAR SEM ER AN ÞESS AÐ
TENGJASTTÖLVU!
USB2 FLAKKARI!
VERÐ AÐEINS:
LITILOG NETT GRÆJA - TASKAOG FJARSTYRING FYLGIR MEÐ!
TAKMARKAÐ MAGN!
HDD FYLGIR EKKIMEÐ
VijeTalk2.0 Pro
README 15IN 1
QUAFE
X-POINTER II (ÞRÁÐLAUST)
WEBCAM
KORTALESARI
FYRIRLESTRARTOL
VERÐ AÐEINS:
VERÐ AÐEINS:
VERÐ AÐEINS:
VERÐ AÐEINS:
9.900 kn
1.500kr.
ERTOLVAN AÐ GERA ÞIG BRJALAÐA(N)?
HVER ÞJONUSTAR ÞIG?
KOMDU MEÐ GÖMLU
VÉLINA OGVIÐ
RAÐLEGGJUM ÞÉR HVAÐ
GERASKAL!
TASK ÞJONUSTA ER
FYRIRÞIG....
- USB 2.0 interface l 1 LES: LASERBENDILL - VIRKAR SEM > 1 ALVÖRU ORKUDRYKKUR FYRIR
- 1.2MEGA Pixelsupport 1 MMC, SD, SM, MD, CF, XD, MS • l MÚS/LYKLABORÐ! -TILVALIÐ í t l ALVÖRU GAMERS!
- Innbyggður hljóðnemi 1 t OG MSPRO. 1 1 POWERPOINT KYNNINGAR 1 ■ -12 í KIPPU
152j8wS8r *. ?f í%
Hju. IWWÍiWUI. la;=' • \ yí 1 EatntgSSSfi t? 2 2j.-‘ ]