blaðið - 08.06.2005, Page 4
miðvikudagur, 8. júní 2005 I blaðið
KB banki:
15 námsmenn
fá þrjár milljónir
í fyrradag fengu 15 námsmenn
á háskólastigi 200 þúsund krón-
ur hver frá KB banka en styrk-
irnir eru veittir árlega. Að þessu
sinni ganga fimm útskriftar-
styrkir til stúdenta við Háskóla
íslands, þrír útskriftarstyrkir til
nemenda í íslenskum sérskólum
og sjö námsstyrkir til íslenskra
námsmanna erlendis.
Hreiðar Sigurðsson, forstjóri KB
banka, ásamt styrkþegum og full-
trúum þeirra.
Þörfin er
mikil
Fjölskylduhjálp íslands hefur
breytt afgreiðslutíma sínum frá
þriðjudögum yfir á miðvikudaga
frá 1. júní. Ásgerður Jóna Flosa-
dóttir, formaðurFj ölskylduhj álp-
arinnar, segir þetta gert til þess
að koma til móts við viðskipta-
vini þeirra. Þörf á fjölskyldu-
hjálp sé alltaf mikil og í hverri
viku komi um 100 fjölskyldur
til að þiggja hjálp. Á skrá hjá
Ásgerði eru um 900 fjölskyldur
þannig að alltaf er þörf á mat-
vælum, fatnaði, búsáhöldum og
öðru sem fólk má missa. Tekið
er á móti gjöfum alla miðviku-
daga frá kl. 13-17. Úthlutun á
matvælum fer svo fram alla mið-
vikudaga frá kl. 15-17 hjá Fjöl-
skylduhjálp íslands í Fjósinu að
Eskihlíð 2-4 í Reykjavík.
Fjölskylduhjálpin er líka að
safna peningum fyrir krakka
svo þeir komist í sumarbúðir.
Það gerir hún undir heitinu
„Blankir krakkar eru líka krakk-
ar“. í fyrra nutu 30 krakkar þess
að geta farið í sumarbúðir með
hjálp frá Fjölskylduhjálpinni.
Reiðskólinn Hrauni
Fyrir 10-15 ára
Heilsdagsnámskeið
S. 897 1992
www.reidskolinnhrauni.tk
Verkalýðshreyfingin
styrkir Mannréttindastofu
Fulltrúar landssambanda Verka-
lýðshreyfingarinnar hittust á fundi
í gær til að ræða stöðu Mannrétt-
indaskrifstofu íslands. Á fundinum
voru meðal annars fulltrúar ASÍ,
BSRB, Kennarasambandsins, Efling-
ar Stéttarfélags og Landssambands
verslunarmanna, ásamt fleirum. Á
fundinn mættu ennfremur fulltrúar
og forráðamenn Mannréttindaskrif-
stofunnar til að kynna stöðu hennar
og verkefni.
Að sögn Kristjáns Gunnarssonar,
formanns SGS, var mikil samstaða á
fundinum og fram kom mikill vilji til
að styðja málið.
,Á fundinum var tekið vel í að
reyna að tryggja rekstur skrifstofunn-
Forráðamenn Starfsgreinasambandsins,
þeir Kristján Gunnarsson og Skúli Thor-
oddsen, vilja tryggja rekstur Mannréttinda-
skrifstofunnar.
ar. Mitt mat er að hreyfingin muni
styðja skrifstofuna fjárhagslega á
einn hátt eða annan. Samböndin og
aðilar málsins eru að taka þetta fyr-
ir með hvaða hætti þeir geti komið
að málinu. Það er hins vegar fyrsta
krafa okkar að ríkisstjórnin komi
að málinu á einhvern hátt og tryggi
nægilega fjármuni til rekstursins.
Það er að mínu mati ákaflega mikil
kaldhæðni falin í að á sama tíma og
ríkisstjórnin stærir sig af skrifstof-
unni og starfi hennar í ótal skýrslum
og við ýmis tækifæri að þá er hún
svelt fjárhagslega," segir Kristján.
Öryrkjabandalagið á fundinum
Eins og fram hefur komið í Qölmiðl-
um að undanfórnu erfj árhagur Mann-
réttindaskrifstofunnar í uppnámi um
þessar mundir, eftir að ákvörðun var
tekin um að minnka fjárframlög til
hennar á dögunum. Skrifstofan fær
á þessu ári 2,2 milljónir króna frá
Dómsmálaráðuneytinu til reksturs
og annarra verkefna skrifstofunnar
en til samanburðar fékk hún samtals
átta milljónir frá Dómsmálaráðuneyt-
inu og Útanríkisráðuneytinu á síð-
asta ári.
Það vekur sérstaka athygli að full-
trúar Öryrkjabandalags íslands sátu
fundinn og samkvæmt heimildum
Blaðsins lýstu þeir miklum áhyggjum
af stöðu skrifstofunnar á fundinum.
Ekki náðist í forráðamenn sambands-
ins í gær vegna málsins.
Sendir til vinnu
þrátt fyrir hættu
Ákærur vegna banaslyss við Kárahnjúka þingfestar
í gær var þingfest ákæra á hendur
fjórum mönnum vegna banaslyss á
Kárahnjúkasvæðinu á síðasta ári.
Mennirnir eru ákærðir fyrir brot á
lögum um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum. Um er að ræða
framkvæmdastjóra Arnarfells, fyrir-
tækisins sem hinn látni starfaði hjá,
einn starfsmann Impregilo, yfirverk-
taka við Kárahnjúkavirkjun og tvo
starfsmenn VIJV, en það fyrirtæki
átti að tryggja öryggi á Kárahnjúka-
svæðinu. Einn maður til viðbótar,
fyrrverandi verkefnisstjóri Impregilo
við Kárahnjúkavirkjun, hefur verið
ákærður en hann er staddur í útlönd-
um.
Framkvæmdastjóra Amarfells er
meðal annars gefið að sök að hafa
vanrækt skyldu til að
bregðast við bráðri hættu
áheilsutjónieðavinnuslys-
um aðfaranótt mánudags-
ins 15. mars 2004 með því
að senda starfsmenn sína
til vinnu í Hafrahvamma-
gljúfri, þótt honum væri
kunnugt um að bráð hætta
hefði skapast á gijóthruni
á svæðinu.
Slíkar ákærur sjaldgæfar
Öðrum er gefið að sök að hafa van-
rækt að bregðast við bráðri hættu á
heilsutjóni eða vinnuslysum með því
að gera ekki viðeigandi ráðstafanir
til að tryggja öryggi starfsmanna.
Að sögn Áslaugar Einarsdóttur,
lögfræðingsVinnueftirlits-
ins, er mjög sjaldgæft að
slíkar ákærur séu gefnar
út. Hún segir að mennirn-
ir séu ekki ákærðir fyrir
brot á hegningarlöggjöf,
með öðrum orðum eru
þeir ekki kærðir fyrir
manndráp af gáleysi held-
ur fyrir brot á vinnulög-
gjöf. Hægt er að dæma
mennina í fjársektir fyrir
umrædd brot en ekki í fangelsi.
Að sögn Odds Friðrikssonar, yfir-
trúnaðarmanns við Kárahnjúka, olli
slysið nokkrum þáttaskilum í öryggis-
málum á svæðinu og um þessar mund-
ir eru þau mál í nokkuð góðu lagi. ■
Eiga yfir
höfði sér
fjársektir,
en ekki
fangelsi.
Urriðaholt í Garðabæ:
Náttúruperla sem synd væri að missa
Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri
Landvemdar, segir að þar á bæ vilji
menn lágmarka skaða þann sem verð-
ur ef af byggð við Urriðakotsvatn
verður. „Við höfum kynnt okkur þetta
mál og metið það út frá þeim náttúru-
verndarhagsmunum sem eru í húfi
og teljum í því sjónarmiði að það sé
verið að skaða verðmætt svæði. Bæj-
aryfirvöld í Garðabæ hafa lagt mikla
vinnu í þetta og það stuðlar eflaust að
því að skaðinn verði minni en ella og
dragi úr áhrifunum. Það er samt óhjá-
kvæmilegt, ef kemur til framkvæmda
af þessari stærðargráðu, að það valdi
einhveijum skaða.“
Verslun og þjónusta í stað
náttúru
Upphaflega var svæðið ætlað undir
Háskólann í Reykjavík en þótt hon-
um hafi fundist staður í Öskjuhh'ð
verður haldið áfram með áform um
byggð á svæðinu. „Garðabær er nátt-
úrlega að skoða málið út frá öðrum og
fleiri sjónarhornum en Landvernd en
hefur viðurkennt að þarna eru mikl-
ir náttúruverndarhagsmunir í húfi,”
segir Tryggvi.
Mikilvægt útivistarsvæði höfuð-
borgar
IKEA er einn aðila sem vilja byggja
á umdeildasta svæðinu. „Landvernd
hefur fundað um svæðið og ekkert hef-
ur komið fram sem dregur úr náttúru-
verndargildi svæðisins og þess vegna
er afstaða Landverndar mjög skýr.
Við teljum að þarna sé verulega verð-
mætt svæði í húfi. Við hefðum kosið
að Garðabær hefði fundið annan stað
fyrir starfsemi af þessu tagi, ef ekki
að takmarka framkvæmdir enn frek-
ar en gert er ráð fyrir núna.“ Tryggvi
segir svæðið ekki endilega þannig að
það heyri undir heimsnáttúruminjar
en engu að síður sé það mjög mikil-
vægt útivistarsvæði í höfuðborginni.
Skagfirðing-
ar skoða
vindmyllur
í verðbólguat- >
hugun OECD,
þar sem sérstak-
lega var litið til mat- JKp
væla- og orkuverðs, f n
kemur fram að verð f I I
á matvöru á íslandi 1
hefur lækkað um 2,1 • I
prósent, en orkuverð
hækkað um 6,1 pró-
sent miðað við sama
tíma í fyrra. Aðrir flokkar 1
hafa hækkað um 5,4 pró- I
sent og gerir þetta ísland
að þriðja mesta verðbólgu-
landi OECD-ríkjanna.
Hátt orkuverð hefur
orðið til þess að bændur t
í Skagafirði kanna hvort |
hagkvæmt sé fyrir þá að
koma sér upp litlum vindmyll-
um og nýta þannig vindorku þar
sem vatnsorka er ekki til staðar.
Margir bændur eru miklir orku-
notendur og því leita menn allra
leiða til að lækka raforkukostn-
aðinn.
Tollverðir
undirrita
kjarasamning
Tollvarðafélag íslands undir-
ritaði nýjan kjarasamning í
fyrrakvöld. Er hann á svipuð-
um nótum og hjá öðrum sem
völdu svokallaða BHM-leið en
það er þegar samningur milli
ríkisstjórnarinnar og Bandalags
háskólamanna er hafður sem
viðmið við samningsgerð.
Hvíta-Rússland:
Vllji til aukinn-
ar samvinnu
í gær átti Benedikt Jónsson
sendiherra fund með Alexand-
er Grigoryevich Lukashenko,
forseta Hvíta-Rússlands, þar
sem hann afhenti trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra íslands með
aðsetur í Moskvu. Er þetta í
fyrsta sinn sem sendiherra ís-
lands afhendir trúnaðarbréf í
Hvíta-Rússlandi en ríkin tóku
upp stjórnmálasamband árið
2001. Á fundinum ræddu þeir
fyrst og fremst um efnahags- og
viðskiptasamvinnu ríkjanna og
lýsti forsetinn miklum vilja til
að auka þá samvinnu. Enn frem-
ur átti Benedikt fund með full-
trúum einkarekinna fyrirtækja
í Hvíta-Rússlandi sem viðskipti
eiga við ísland. Útflutningur
frá íslandi til Hvíta-Rússlands
hefur einkum verið fiskur og
fiskafurðir en innflutningur frá
Hvíta-Rússlandi til íslands hef-
ur einkum verið járn, stál og
tijávörur.
Actavis selur
550 milljón hluti
Actavis Group hf. hefur ákveð-
ið að hækka hlutafé félagsins
um 11,5% eða tæpa 350 millj-
ón hluti. Einnig verða um 200
milljón hlutir af eigin hlutafé
félagsins seldir svo samanlagt
verða þetta tæplega 550 milljón
hlutir. Verð hinna nýju hluta í
útboðinu verða 38,5 krónur á
hlut þannig að rúmur 21 millj-
arður ætti að fást fyrir útboðið.
Einungis forgangsréttarhafar
hafa þátttökurétt.