blaðið - 08.06.2005, Qupperneq 6
innlent
miðvikudagur, 8. júní 2005 I blaðið
Samráðshópur
um þjónustu við aldraða
Jón Kristjánsson, ráðherra heil-
brigðis- og tryggingamála, hefur
skipað samráðshóp um aðbúnað
og skipulag öldrunarþjónustu og
hækkun á greiðslum almanna-
trygginga. Hópnum er einnig
ætlað að fjalla um þjónustu við
aldraða og skila áliti um skipu-
lag þjónustunnar í ffamtíðinni.
Þetta er gert í samræmi við
ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
að efna til formlegs samráðs við
Landssamband eldri borgara
um stöðu samkomulags stjórn-
valda og aldraðra ffá 19. nóv-
ember 2002.
Kjarasamningur
samþykktur
Snær Karlsson, starfsmaður SGS,
telur atkvæði í gær.
Starfsmenn Aflstöðva Lands-
virkjunar víðs vegar um land
samþykktu í gær nýgerðan
kjarasamning sinn. Samningur-
inn, sem er milli Starfsgreina-
sambands íslands ogLandsvirkj-
unar, gildir til nóvember 2008
og eru launahækkanir og aðrar
breytingar í samræmi við aðra
kjarasamninga sambandsins.
Atkvæðin voru talin á skrifstofu
Starfsgreinasambands íslands
og samþykktu yfir 88% þeirra,
sem atkvæði greiddu, samning-
inn.
Þetta er ekki plógur t
Þetta er plógurl
Auglýsingin hér að ofan hefur
vakið nokkra athygli en fyrir-
sögn hennar er: „Við leggjum
hönd á plóg“. Þeir sem eitthvað
þekkja til sveitastarfa vita að
áhaldið sem Eiríkur Hauksson
(ekki söngvarinn heldur ráðgjafi
um fjármögnun atvinnutækja)
heldur á er ekki plógur heldur
gaffall eða kvísl. í auglýsingunni
segir ennfremur að „þegar kem-
ur að því að taka til hendinni er
nauðsynlegt að hafa réttu tækin
við höndina". Spumingin er hins
vegar - vita þeir raunverulega
hver réttu tækin em?
Reiðarslag fyrir
þúsundir Islendinga
Segir Björgvin G. Sigurðsson alþingismaður
Um 3.000 íslendingar komast ekki í
það háskólanám sem þeir sóttu um
nú í vor. Flestum var
hafnað um skólavist
í Kennaraháskóla ís-
lands, eða um 1.000
manns, en um 800
komast ekki inn í Há-
skóla íslands. Björg-
vin G. Sigurðsson,
þingmaður Samfylk-
ingarinnar, gagnrýn-
ir stjómvöld harðlega
vegna þessa:
„Fjöldatakmarkan-
ir sem meina á þriðja
þúsund íslendingum
að auka menntun
sína er mjög alvar-
legur vitnisburður um þá stöðu sem
ríkisvaldið hefur rekið háskólastigið
í. Það er alvarlega fjársvelt og berst í
bökkum. Eina leið háskólastigsins út
Um 800 einstaklingar komast ekki inn í Hl.
úr vandanum eru harkalegar fjölda-
takmarkanir oghá skólagjöld. Fjölda-
takmarkanir í ríkisháskólana eru
reiðarslag fyrir þúsundir íslendinga
og þá menntastefnu
sem var hér rekin.“
Framlög íslend-
inga til háskólanáms
em um 0,9% af þjóð-
arffamleiðslu sam-
kvæmt OECD, sam-
anborið við 2-5% hjá
öðrum Norðurlanda-
þjóðum.
„Fjöldatakmark-
anir af þessu tagi
bregða fæti fyrir þá
menntasókn sem við
þurfum að ráðast í,
enda er menntastig
íslendinga miklu
lægra en annarra norrænna þjóða og
er ekki að aukast,“ segir Björgvin. a
Borgarstjórnarkosningar:
Sjálfstæöismenn með prófkjör í haust
Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík ákvað á fundi í gær
að leggja það til að prófkjör verði hald-
ið um mánaðamótin október-nóvemb-
er vegna uppstillingar lista flokksins
í borgarstjómarkosningunum að ári.
Fulltrúaráðið tekur afstöðu til tillög-
unnar á fundi í september en ósenni-
legt má telja annað en að hún fái
brautargengi þar.
Að sögn Magnúsar L. Sveinsson-
ar, formanns Varðar, fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
samþykkti stjómin þessa tillögugerð
einróma en tók fram að ýmsir aðrir
kostir hefðu verið ræddir. Fari sem
horfir mun prófkjörið sigla í kjölfar
landsfundar Sjálfstæðisflokksins,
sem hefst 13. október.
Lagt er til að þátttaka í prófkjörinu
verði heimil öllum skráðum flokksfé-
lögum í kjördæminu, sem orðnir em
16 ára, og sömuleiðis þeim sem eiga
munu kosningarrétt í kjördæminu
við kosningarnar og hafa undirritað
inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í kjör-
dæminu fyrir lok kjörfundar.
Flestir ætla áfram
Eftir því sem Blaðið kemst næst
hyggjast flestir borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins leita endurnýjaðs um-
boðs í prófkjörinu. Þó má telja víst að
Bjöm Bjarnason dómsmálaráðherra
muni ekki blanda sér í keppnina.
Enn sem komið er hefur Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson einn gefið kost á
sér í 1. sæti listans, en nokkuð er um
það hvískrað að Gísli Marteinn Bald-
ursson kunni að bjóða sig fram gegn
honum. Kunnugir telja þó að líkurn-
ar á því hafi dvínað í ljósi tímasetn-
ingar prófkjörsins.
Ljóst má hins vegar telja að afar
hörð barátta muni eiga sér stað um 2.
sæti listans. Talið er víst að Gísli Mar-
teinn muni ekki sækjast eftir neðra
sæti en því, en eins segja heimildar-
menn Blaðsins í Sjálfstæðisflokknum
að borgarfulltrúarnir Guðlaugur Þór
Þórðarson, Hanna Birna Kristjáns-
dóttir og Kjartan Magnússon, muni
allir sækjast eftir því.
Á hinn bóginn hafa afar fá ný nöfn
heyrst í þessu samhengi og því óljóst
hvort mikil endurnýjun verður á list-
anum. Talið er að varaborgarfulltrú-
inn, Jórunn Frímannsdóttir, muni
sækjast eftir aðalsæti á listanum, og
eins hefur nafn Þorbjargar Helgu Vig-
fúsdóttur, varaformanns Sambands
ungra sjálfstæðismanna, borið á
góma í þessu samhengi.
Tæplega helmingur
reiðhjóla ólöglegur
Samkvæmt könnun sem Brautin,
bindindisfélag ökumanna, gerði eru
47% nýrra reiðhjóla í verslunum ólög-
leg. í flestum tilfellum vantaði keðju-
hlíf og glitmerki. Þetta eru atriði sem
lítið mál er að laga en athygli vakti
að í 11% tilvika var hemlabúnaður
ekki í lagi. í reglugerð um búnað reið-
hjóla er skýrt tekið fram að hemlar
skuli vera bæði á fram- og afturhjóli.
í öllum framangreindu tilvikunum
vantaði framhemla. Brautin, bind-
indisfélag ökumanna, bendir á að
framhemlar séu mikilvægur búnaður
en um 60-75% hemlunar séu á fram-
hjóli. Félagið beindi fyrirspurn til
Umferðarstofu, Löggildingarstofu og
lögreglu um eftirlitshlutverk, og allir
þessir aðilar töldu sig ekki hafa það.
Brautin spyr því hver eigi að hafa eft-
irlit með reiðhjólum og greinilegt sé
að sá aðili sé ekki að sinna því hlut-
verki. Bent er á að hugsanlega megi
gera verslanir ábyrgar ef vanbúnað-
ur reiðhjóls leiðir til slyss.
Athygli vekur að ekkert eftirlit virðist
vera til staðar með reiðhjólum
. ..
I » j A
til styrktar
HffilíllO
Spilað verður Með Texas scramble fyrirkomulagi
Þann 14 Júni á Hvalevrarvellinum
I mótinu munu 4
sterkustu
kylfingar landsins
berjast um titilinn
Stjörnukylfingur
Veglegir ferðavinningar í boði lcelandair
Skráning fyrir fyrirtæki og einstaklinga í síma 662-8088 og stjornugolf@visir.is
m
K0 BANKI
b'nus
brimborg | ICElandair
Eimskipafélagið
stækkar flotann
Nýju skipin verða um 80 metra
löng og 16 metra breið.
Eimskipafélag íslands hefur
gert samninga um nýsmíði
tveggja frystiskipa og er kaup-
verðið samtals um 2,6 milljarð-
ar íslenskra króna. Nýju skipin
verða hluti af víðtæku flutninga-
neti Eimskipafélagsins og CTG
á Norður-Atlantshafinu en CTG
er dótturfyrirtæki Eimskips í
Noregi. Innan skamms fær félag-
ið afhent tvö ný frystiskip, sem
samið var um í fyrra, og því eru
alls fjögur ný frystiskip í smíð-
um fyrir Eimskip.
Skipin verða smíðuð í Noregi
og afhent í janúar og apríl 2007.
Þau verða í eigu Eimskips en
CTG mun annast allan rekstur
þeirra. Skipin munu geta borið
1.800 bretti og fjórtán 45 feta
gáma á þilfari. Aukin áhersla á
flutning sjávarafurða á brettum
er sögð skapa þörf fyrir skip sem
þessi.
Stefnu skilað
inn fyrir réttarhlé
Neytendasamtökin munu skila
inn stefnu gegn olíufélögunum á
allra næstu dögum en stefnt er
vegna meints samráðs félaganna
og vegna þess taps sem neytend-
ur urðu fyrir vegna þess.
Að sögn Jóhannesar Gunnars-
sonar, formanns samtakanna,
verður málinu stefnt fyrir rétt-
arhlé, sem er um næstu mánaða-
mót.
„Vonandi verður þetta þó fyrr,
en málið er í lokavinnslu," sagði
Jóhannes.
Bamasveifla
Sammi í Jagúar spilar fyrir börnin.
í kvöld kl. 20 verða haldnir
nýstárlegir tónleikar í Hafnar-
fjarðarkirkju, þar sem spunnið
verður á básúnu og orgel út frá
þekktum barnalögum. Flytjend-
ur eru þau Samúel Samúelsson
og Antonía Hevesi, en Samúel er
ekki síður þekktur sem Sammi
í Jagúar og Antonía er organ-
isti Hafnarfjarðarkirkju. Þarna
mætast því ólíkir straumar með
óvenjulegt efnisval.
Dagskráin er raunar sveipuð
nokkurri dulúð því hún verður
ekki gefin upp fyrirfram. Anton-
ía og Sammi ætla nefnilega að
leika hana nokkuð af fingrum
fram og efltirláta tónleikagest-
um þá þraut að ráða í hvaða lag
er lagt til grundvallar. í lok tón-
leikanna verður svo dagskráin
lesin upp svo menn átti sig á því
hversu vel þeim gekk að ráða í
tónspunann.
Tónleikarnir hefjast sem fyrr
segir í Hafnarfjarðarkirkju kl.
20 og er aðgangur ókeypis.