blaðið - 08.06.2005, Page 10
10 bórn og upp
miðvikudagur, 8. júní 2005 I blaðið
'CÁAí,^ 4)h*\JJtA
Barnavömverslun Glæsibæ
Táknmál í
sumarbúðum
Valur býður upp á starf fyrir heyrnarlaus börn
starfsmenn munu taka þátt í starf-
inu í sumar og tryggja bömunum
táknmálsumhverfi.
Börn eiga auðvelt með sam-
skipti
SoffiaÁmundadóttir,skólastjóriSum-
arbúða í borg, segir að mikilvægt sé
að tryggja heyrnarlausum börnum
aðgang að góðu sumarstarfi: „Hlíðar-
skóli er í okkar hverfi og þar læra öll
böm táknmál svo það verður ekki erf-
með að ræða við starfsfólk og fá upp-
lýsingar um bömin sín og hvað þau
eru að starfa hjá okkur."
Fræðsla, skemmtun, íþróttir
26 starfsmenn, úr meistaradeild Vals
og öðrum flokki karla og kvenna, ann-
ast börnin sem skipt er upp í hópa,
yngri og eldri, og kynna þeim ýmsar
íþróttir, leiki og umhverfi. „Við blönd-
um saman fræðslu, skemmtun og
íþróttum,“ segir Soffía. „Við nýtum
inn í bland við nýrri rétti.“ Sigurður
segir að best sé að elda góðan mat
sem hann veit að börnin borða eins
og pítsu, hakk og spaghettí, lasagna,
fiskibuff og plokkfisk.
Ekki gróðahugsun
Valur hefur boðið upp á námskeið
sem þessi í 17 ár en býður nú í fyrsta
skipti upp á sérstaka þjónustu fyrir
heymarlaus böm. Sofíia, sem sjálf
er táknmálstúlkur, hefur starfað við
Sumarbúðir í borg síðastliðin þrjú
ár. Hún segir að námskeiðin séu
ekki á dagskrá af gróðahugsun - það
sé reynt að stilla verðinu í hóf. „Við
viljum fyrst og fremst ná til barn-
anna og kynna þeim íþróttastarfið.“
Námskeiðin eru ætluð börnum á aldr-
inum 5-11 ára. Þau hefjast 9. júní og
standa til 29. júlí.
Gióður matur
Námskeiðin standa í tvær vik-
ur í senn frá klukkan níu á
morgnana til fjögur í eftirmið-
daginn. Boðið er upp á heit-
an mat í hádeginu sem hefur
vakið mikla lukku. „Hann
Sigurður Karlsson, kokkur
á Þremur frökkum, hefur séð
um matinn fyrir okkur og
hann leggur áherslu á gamla,
góðahefðbundnaheimilismat-
í Valsheimilinu á Hlíðarenda er yfir
sumartímann boðið upp á leikjanóm-
skeið fyrir böm. í ár eru heymarlaus
börn sérstaklega boðin velkomin á
námskeiðin en tveir heymarlausir
itt að blanda bömunum í hópa. Börn
eru líka svo opin og eiga auðvelt með
samskipti. Við vildum líka reyna að
ná til barna sem eiga heymarlausa
foreldra því þeir eiga þá auðveldara
vel okkar nánasta umhverfi - Mikla-
tún, Nauthólsvík og Slökkvistöðina
- þar sem við byrjum á kynningu í
upphafi námskeiðsins. Svo notum við
auðvitað túnið hjá okkur og fórum í
leiki og kynnum íþróttir, eins
og t.d. bandí, fyrir krökkun-
um.“
Fyrstu skrefln
- stigin í borginni
Skapandi sumarhóparnir hjá Hinu
húsinu hófu störf l.júni síðastliðinn
og munu þeir halda úti gölbreyttu
og metnaðarfullu menningarstarfi
í sumar. Skapandi sumarstörf hafa
staðið ungu fólki til boða allt frá
árinu 1994. Ása Hauksdóttir, deild-
arstjóri menningarmála hjá Hinu
húsinu, segir að það hafi verið ungt
fólk sem hafði frumkvæði og þor
sem kom þessu verkefni á laggimar.
Hugmyndaauðgi
„Ungt fólk kom oft til okkar með
hugmyndir um sumarstörf en við
höfðum ekkert fjármagn til að koma
að því starfi hér áður. Nú má segja að
þetta sé komið í ákveðnari farveg. Við
höfum vitað með fyrirvara að undan-
fómu að við fáum fjármagn í þennan
málaflokk, sem eflir bæði gæði og fjöl-
breytni umsókna um sumarstörfin og
gerir okkur kleift að auglýsa þau.“
Fleiri umsóknir í ár
Hinu húsinu bárust 48 umsóknir í
ár, sem er mikil aukning frá árinu á
undan, en fjármagn fékkst til að veita
15 verkefnum brautargengi. Styrkur-
inn sem Hitt húsið veitir snýr að því
að greiða unga fólkinu laun í sex til
átta vikur en annan kostnað vegna
verkefnanna verða krakkarnir að
fjármagna sjálfir. Það er ýmist gert
með því að leita til fyrirtækja, ann-
arra stofnana eða einstaklinga um
framlag. Til að mynda hefur danshóp-
urinn Dansdömumar aðstöðu í List-
dansskólanum til æfinga.
„Lesið á leiðinni"
Mikil fjölbreytni er í verkefnum
sumarsins. Tónlistarhópur, leiklistar-
hópur, fimleikahópur og danshópur,
gerir götulífið skemmtilegra. Eitt
verkefnanna, sem ber heitið „Lesið á
leiðinni", er eins manns verkefni sem
Kópavogsblóm
Dalvegi
Á1fablóm
Á1 fheimum
hefur mikla samfélagslega vídd. Þar
er á ferðinni ung stúlka sem ætlar sér
að skrifa smásögur í sumar sem hún
setur svo upp í strætisvögnum Reykja-
víkur í ágúst svo farþegar SVR geti
lesið þær á ferðum sínum um bæinn.
Annað, „Þrjár fræknar", er kynning
á fimleikastarfi víða um bæinn. Ása
segir að starf sumarhópanna sé mik-
ilvægt fyrir menningarlíf borgarbúa.
„Ég vil meina að þetta gefi okkur
öllum hér í borgarlandinu tækifæri
til að líta upp úr hversdagleikanum
í önnum dagsins og gefi ungu fólki
tækifæri til að stíga sín fyrstu skref.“
Foreldrar
ánægðir
með leikskóla
Tilfinning foreldra fyrir veru
barns þeirra í leikskólanum
er mjög jákvæð, samkvæmt
niðurstöðum umfangsmikill-
ar könnunar meðal foreldra
leikskólabarna í Reykjavík en
99% foreldra telja að barninu
þeirra líði vel í leikskólanum.
Almennt eru foreldrar ánægðir
með uppeldis- og menntastefnu
leikskólans eins og hún kemur
fram í námskrá skólans og sýna
jákvætt viðhorf til foreldrasam-
starfs.
Þó kemur fram mikill meiri-
hlutavilji fyrir því að foreldra-
viðtölum sé fjölgað úr einu i tvö
á ári og 18% foreldra vilja að
þau séu jafnvel oftar á dagskrá.
Könnunin fór fram í apríl sl. en
hún var send 2.500 foreldrum í
43 leikskólum úr öllum hverfum
borgarinnar. Hlutfall þeirra sem
svöruðu var 68,4%.
Sorg og gleði í
Húsdýragarðinum
Mikil sorg varð í Húsdýragarð-
inum í gærmorgun þegar upp
komst að nýkæptum kópi urt-
unnar Særúnar hefði ekki lánast
líf. Ekki er vitað hvort kópurinn
lést í kæpingu eða eftir hana en
hann var dauður þegar að var
komið. Kópinum hennar Kobbu,
sem fæddist á sjómannadaginn,
heilsast hins vegar vel og mæðg-
inin eiga afar náið og gott sam-
band. Brimillinn Snorri, faðir
kópsins, heldur sig hins vegar
til hlés, enda geta urtur verið
afar viðskotaillar eftir kæpingu
og vemda afkvæmi sín gagnvart
öllu ytra áreiti.Urturnar tvær
áttu í einhverjum stympingum
eftir að kópur Særúnar hafði
verið fjarlægður úr lauginni en
vonir standa til að Særún jafni
sig fljótt á missinum.
Háskóli
unga fólksins
Háskóli unga fólksins hefur nú
annað starfsár sitt en þar býðst
bömum á aldrinum 12-16 ára
tækifæri til að kynna sér eðli,
eiginleika og notkunarmögu-
leika vetnis, fylgj ast með eðlisvís-
indunum að verki í lffi Ragnars
Reykáss, ræða fjölskyldutengsl
og kynlíf unglinga, fræðast um
upphaf alheimsins og líf úti í
geimnum, greina kynjamynstur
ogkynhlutverk, tala um fótbolta
á þýsku og rannsaka fugla og
plöntur innan borgarmarkanna
svo eitthvað sé nefnt. Skólahald-
ið stendur í tvær vikur, dagana
13.-25. júm', og í boði verða 25
námskeið úr hinum ýmsu deild-
um og skorum Háskóla íslands.
Frekari upplýsingar um Há-
skóla unga fólksins má finna á
veffanginu www.ung.is.
- Kassaklifur - GP5 ratleikir - Bdtasiglingar - Vatnaleikir - Frumbyggjastöpf
9-i2 “ : ..; m!
ÚLFLJÓTSVATNI
Upplýsingar og skráning á netinu:
www.ulfljotsvatn.is
7-8
ára
Einstök krakkanámskeið
Útilíf og œvintýri!
Almenn námskeið
Vinir, fjör og hópef li!
INNRITUN ER HAFIN - OpiS virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.is