blaðið - 08.06.2005, Page 11
blaðið I miövikudagur, 8. júní 2005
giönnun 11
Enginn hörgull er á ungum og efnileg-
um íslenskum fatahönnuðum. Blaðið
tók Berglindi Laxdal tali og ræddi
við hana um strauma og stefnur í
tískuheiminum, tískuvikuna í París,
síminnkandi fyrirsætur, og síðast en
ekki síst - opnun á vinnustofu henn-
ar og Sigrúnar Baldursdóttur.
Vinnustofa í miðbænum
„Við ætlum að opna vinnustofu á
Laugaveginum - Laugavegi 25, á 3.
hæð í Liverpool-húsinu - en þar er að-
staða fyrir fatahönnuði og myndlist-
arfólk," segir Berglind. „Við munum
stefna að því að selja fót úr vinnustof-
unni en í sumar ætla ég að sauma fót
á konur með línur en ekki einhver
fyrirsætuherðatré. Við verðum þar
svona eftir hentisemi. Svo ætlum við
líka að selja fót á markaðnum í port-
inu hjá Sirkus. Hann byijar núna um
helgina og verður alla fóstudaga og
laugardaga frá 12 -17. Við verðum
eitthvað þar og svo verða upplýsing-
ar um hvemig er hægt á ná í okkur
þar og á vinnustofunni."
Tískuvika í París
Parísarferð Berglindar barst í tal en
hún fór með samnemendum sínum
úr LHÍ til Parísar til þess að vinna að
tískuvikunni en þar var Berglind sett
í að vinna alls kyns störf hjá hönnuð-
inum Sharon Wauchb ásamt öðrum
íslenskum unghönnuði. „Við komum
seint inn í ferlið og vorum svona alt-
mulig-manneskjur. Þetta var meira
svona vinna, og lítill lærdómur eða
reynsla af þessu. Svo vorum við hafð-
ar í vinnu írá 9 á morgnana til 11 á
kvöldin og stundum til miðnættis eða
eitt um nóttina. Við náðum ekki að
sjá neitt, fengum ekkert frí og vorum
í raun þama í nokkurs konar þræla-
haldi.“
Fyrirsætur sífellt að minnka
„Yfirmanni sniðanna í tískuhúsinu
þar sem ég vann var tíðrætt um
minnkandi fyrirsætur. Föt eru hönn-
uð í stærðinni 36fr, svona yfirleitt,
en það hefur þurft að minnka það nið-
ur í 34 og jafnvel 32, þótt 36 standi
ennþá á miðunum. Við vorum að fá
fyrirsætur inn í „fitting" eða mátun
og það þurfti alltaf að minnka fótin.
90% af fyrirsætunum litu mjög illa
út, einfaldlega vannærðar og van-
sælar.“ Nokkuð hefur borið á því
að austantjaldslöndin haldi innreið
sína í fyrirsætubransann og Berg-
lind samsinnti því: „Það er mikið
um stelpur frá Austur-Evrópu, t.d.
Rússlandi, Moldavíu og fleiri löndum
- og það virðist vera mikið mál fyrir
þær að vera grennstar. Það eru hins
vegar ekki nema 2% af konum sem
eru svona fró náttúrunnar hendi og
það var hreinlega óhugnanlegt að sjá
þessar renglur upp á rúmlega 180 sm
sem héngu varla saman.”
Sauma ek
á herð
Betra að starfa sem óháður
hönnuður
Berglind segir farir sínar af lífi í
tískuhúsi ekki sléttar. „Þetta hentar
kannski sumum en ekki mér. Þó er
öllu betra að starfa sem óháður hönn-
uður. Svo veit maður ekki,“ bætir hún
við. „Ég flyt líklega til London í haust
og þá er aldrei að vita hvað maður
tekur sér fyrir hendur. Ég á í bak-
höndinni líffræðingspróf og gæti í
eins endað í dýragarðinum að mc
leðurblökuflór eins og að hanna fó
segir Berglind kát og hlær við. Því
hver að verða síðastur að skoða sk
unarverk Berglindar - á meðan b
er enn á landinu.
Hörkutilboð
KÓPAL STEINTEX
Útimálning fyrir íslenskar aðstæöur
10 lítrar
aóeins
5.990 kr.
4 litir, hvítt, marmarahvítt, hrímhvítt og antikhvítt
Útsölustaðir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfirði • Málningarbúðin Akranesi
Byko Akranesi • Axel Þórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfirði • Litabúðin Ólafsvlk
Núpur byggingavoruverslun ísafirði • Vilhelm Guðbjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki
Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfirði • Byko Reyðarfirði • Verslunin Vík, Neskaupstað • Byko Selfossi
Miðstöðin Vestmannaeyjum • Byko Keflavlk • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík
mátning
- það segir sig sjdlft -
Nýtt útilitakort á næsta sölustað
KÓPAL STEINTEX er frábær málning til notkunar á múr og
steinsteypta fleti þar sem krafist er mikils vebrunarþols.
KÓPAL STEINTEX er fáanleg í þúsundum lita.
Hentar einkar vel til endurmálunar.
• •
VATM^ MÚR OG STEINSTEYPU ÚTI:
vatnsþynnanleg akrýlplastmálning