blaðið - 08.06.2005, Qupperneq 16
miðvikudagur, 8. júní 2005 1 blaðið
■■1 ■ ■ ■ ■ ÆT JC ■ ÆT
Ekki bara groði i
fasteignabraskinu
Kostnaður mun meiri en fólk almennt gerir sér grein fyrir
halldora@vbl.is
Það hefur vart farið fram hjá nein-
um, sem kynnt hefur sér breytingar
á fasteignamarkaði hér heima, að
íbúðaverð hefur hækkað gífurlega
undanfarin misseri. Nóg hefur verið
að gera hjá fasteignasölum landans
en margir fjárfesta til þess eins að
geta selt innan nokkurs tíma - með
það fyrir augum að græða fúlgu fjár
við söluna. Þá hafa alltént þónokkr-
ir kej^pt á óheppilegum tíma, þegar
verðlag hefur verið í hámarki.
Blaðinu lék forvitni á aö vita hvort
um raunverulegan gróða sé að ræða
þegar fólk kaupir til þess eins að selja
á hærra verði því algengt er að fólk
selji fasteignir sínar á nokkrum millj-
ónum meira en þegar keypt var.
Grétar Jónasson, framkvæmda-
stjóri Félags fasteignasala, segir þó
mikilvægt að tekið sé mið af kostnaði
á kaupum og sölu fasteigna þegar tal-
að er um gróða. Þ
að marka þær töl-
ur sem fólk nefnir
í þessu samhengi
- margt þurfi að
taka með í reikn-
inginn. „Auðvitað
er ekki hægt að
neita því að fólk
sem keypt hefur
fyrir hækkunina er auðsjáanlega að
ávaxta peningana vel. Þar fyrir utan
er þó mikill kostnaður sem þessu fylg-
ir, fólk þarf að greiða þinglýsinga- og
stimpilgjöld, söluþóknun, lántöku-
gjöld, ýmsan flutningakostnað, auk
þess sem fólk eyðir oft háum upphæð-
um í endurbætur á fasteigninni. Svo
má ekki gleyma því að það er ákveð-
inn viðhaldskostnaður sem fylgir,
en það er oft talað um að 1% af kaup-
verði fari í viðhald, þó svo að það sé
auðvitað breytilegt."
Eins og Grétar segir er engin laun-
ung á því að þetta getur oft og tíðum
verið góð ávöxtun og margir fara vel
út úr kaupum og sölu af þessu tagi.
Hins vegar er þetta auðvitað ein
af mörgum ávöxtunarleiðum sem í
boði eru. „Það er svo margt hægt að
gera til að ávaxta peningana - þetta
er bara ein leið sem sumum finnst
sniðug en aðrir leggja ekki í. Þetta
getur tekið gríðarlegan tíma frá fólki
og verið mikið mál,“ segir Grétar, en
hann hyggur að byltingin hafi orðið á
fasteignamarkaði í kjölfar nýju 100%
lánanna sem bankarnir eru famir að
veita. Hvert framhaldið verði sé erf-
itt að segja til um eins og staðan sé
núna. „Ef ytri þættir fara að bresta
getur ýmislegt gerst en það eru eng-
in teikn á lofti eins og staðan er nú
um að það sé einhver hætta fram und-
an.“ ■
Hlynur Sigurðsson, dagskrárstjóri
og framleiðandi þáttarins Þak yfir
höfuðið:
„Það er auðvitað kaffikannan - þetta er alveg mögnuð græja. Konan gaf mér hana
í jólagjöf um síðustu jól við mikla ánægju af minni hálfu. Þetta er rosalega sniðug
kanna - hún er bæði fyrir espresso og þetta venjulega, auk þess sem hún lagar alveg
einstaklega gott kaffi. Ilmurinn er auðvitað góður og svo er þetta hin mesta eldhús-
prýði."
Stórfelld hækkuná rbúðaverði
Sex milljóna hækkun á íbúð stefnumótadrottningarinnar á tveimur árum
halldora@vbl.is
Gunnhildur Helga Gunnarsdóttir,
annar þáttastjómenda Djúpu laug-
arinnar, er um þessar mundir að
huga að búferlaflutningum, en hún
Tilbúin bútasaumsteppi í
miklu úrvali. Einnig húsgögn
og gjafavörur.
hyggst koma sér fyrir í íbúð sem hún
sjálf keypti fyrir rúmum tveimur
árum. Gunnhildur hefur hingað til
leigt íbúðina út en nú er svo komið
að stefnumótadrottningin vill fara
að koma sér fyrir í íbúðiniii, sem er
VIRKA H úsgögn
Mörkin 3, sfmi 568 7477
www.virka.is
á Seljaveginum. Það eru rúm tvö
ár síðan hún fjárfesti í 70 fermetra
íbúð á 9,8 milljónir en í ljósi mikillar
hækkunar á fasteignaverði gerir hún
ráð fyrir að fá um 16,5 milljónir fyrir
hana núna.
„Ég keypti hana þarna í lok ársins
2002 og á einum mánuði rauk hún
strax alveg þvílíkt upp. Miðað við 70
fermetra íbúð eru 9,8 milljónir mjög
lítið, eða svona miðað við það sem
maður þekkir núna. Svo hefur íbúðin
farið hækkandi alveg frá því ég keypti
hana,“ segir Gunnhildur, en hún seg-
ist ætla að gera einhveijar breyting-
ar í íbúðinni áður en hún flytur inn.
„Það liggur mest á því að skipta um
gólfefni, rífa veggfóðrið af og mála.
Svo gerir maður eitthvað með tíman-
um auðvitað - það er ekki allt gert í
einu - en ég myndi einnig vilja gera
upp eldhúsið á næstu árum. Það verð-
ur bara að koma í ljós hversu hratt
ég fer í þetta en burtséð frá því held
ég að ég ætti að geta selt hana á 16,5
milljónir núna.
Gunnhildur segir mjög greinilegt
hversu mikið íbúðir hafa hækkað
síðustu árin og prisar sig sæla með
að hafa fjárfest á eins góðum tíma
og hún gerði. „Þetta var einmitt þeg-
ar allt var að fara að hækka þannig
að ég var rosalega heppin að kaupa
á þessum tíma. Ég keypti rétt fyrir
hækkunina, en eins og ég sagði var
mikil hækkun strax á fyrsta mánuð-
inum. Maður sér líka alveg þvílíkar
hækkanir hjá fólki í kringum sig
- það er allt búið að vera að rjúka
upp,“ segir Gunnhildur, en hún seg-
ist ekki komast hjá þvi að fylgjast
með breytingum þessu tengdu á
markaðnum. „Maður fylgist eðlilega
með þessu þegar maður á íbúð - það
er spennandi að sjá hvað er að gerast
í fasteignabransanum. Svo er náttúr-
lega ekki annað hægt en að taka eftir
sprengjunni sem hefur verið upp á síð-
kastið - það er rosalegur munur alls
staðar."
Ibúðalán jm mmm g
4,15°/o
Kynntu þér kostina við íbúðalán
Landsbankans. Fáðu ráögjöf hjá
sérfræöingum okkar og veldu
leiðina sem hentar þér best. Hafðu
samband í síma 410 4000 eða á
fasteignathjonusta@landsbanki.is
410 4000
landsbanki.is
Landsbankinn
Banki allra landsmanna