blaðið - 08.06.2005, Qupperneq 27
blaðið I miðvikudagur, 8. júní 2005
/ikmyndir 27
ATH: A Lot Like Love er leyfð öllum aldurshópum
STJUSTA KVIKMYHDAHÚS UNDSINS • HAGATORGI • S. 5» 1*19 • wwnhadniobiojs
'WJiumi rffi/3
KómantÍNk t$annuunyiul
mcó ucbra Mcssing úr
YVilI s, Grace" |>áttununi
ashton kutcher
amanda peet
ashton kutcher
amanda peet
HILTÖN PADAIÍCKI
1UU
HUUðfc Uf VvaA
RÓMANTÍK GETUR EYDILAGT GÓÐA VINÁTTU!
ROMANTIK GETUR EYÐILAGT GOÐA VINATTU!
irrs. kemur aö því aö viö rekumst á hvert annað
ÁLFABAKKI
KEFLAVÍK
KRINGLAN
A LOT LIKE LOVE
A LOT IIKE LOVE VIP
HOUSE OF VAX
CRASH
HITCHHIKER'S GUIDE...
KL 3.45-6-8.15-10.30
KL 3.45-6-8.15-10.30
KL 3.45-6-8.15-10.30 B.l. 16
KL 6-8.15-10.30
KL 3.45-6-8.15-10.30
HOUSE OF VAX KL. 10.30
STAR WARS - EPISODEIII KL8
KINGDOM OF HEAVEN KL. 8-10.30
AKUREYRI
A LOT LIKE LOVE
HOUSE OF VAX
THE WEDDING DATE
KL. 6-8.15-10.30
KL. 6-8.15-10.30
KL. 6-8-10
A LOT LIKE LOVE
VOKSNE MENNESKER
CRASH
HITCHHIKER'S GUIDE TO THE GALAXY
THEJACKET
THE MOTORCYCLE DIARIES
KL. 6-8.15-10.30
KL. 5.45-8-10.15
KL. 5.45-8-10.15 B.l.l6óra
KL. 5.45-8-10.15
KL. 8-10.10 B.1.16 ára
KL 5.40
Væntanlegt frá Hollywood
Stórstjörnur
í Batman-leiknum
leikkonan Rosamund Pike, sem lék
meðal annars í myndunum Doom og
Die Another Day, taki að sér aðal-
hlutverkið í myndinni Devil You
Know sem James Oakly leikstýrir.
Það er alltaf
nóg að gerast
í Hollywood
og stöðugt
verið að íram-
leiða nýjar
stórmyndir.
Nýjustu frétt-
ir vestanhafs
hermaaðleik-
ararnir Nico-
las Cage og
Will Smith
muni fara
með aðalhlut-
verk í væntanlegri mynd frá Colum-
bia Pictures. Myndin fjallar um tvo
feður sem lenda í miklum erjum þeg-
ar þeir komast að því að þeir verða að
deila saman gististað í draumafríi fjöl-
skyldunnar. Smith lék síðast í mynd-
inni Hitch en Cage verður næst á
hvíta tjaldinu í myndunum The We-
ather Man og Ghost Rider.
Leikarinn Josh Lucas hefur geng-
ið til hðs við framleiðendur myndar-
innar The Poseidon Adventure
í leikstjórn Wolfgangs Petersen en
Lucas lék meðal annars í myndun-
um Hulk og Wonderland. The Po-
seidon Adventure er endurgerð
samnefndrar
myndar frá ár-
inu 1972 en hún
fjallar um sldp-
ið S.S. Poseid-
on sem lendir í
miklum sjávar-
háska og fylgst
er með afdrifum
skipbrotsmann-
anna. Fleiri
leikarar í nýju
myndinni eru
Kurt Russell,
Richard Drey-
fuss, Emmy Rossum og Mike Vog-
el.
Að lokum hefur verið staðfest að
Electronic Arts og Warner Bros.
Interactive Entertainment hafa til-
kynnt að stórstjörnur myndarinnar
Batman Begins taki þátt í gerð sam-
nefnds tölvuleiks. Christian Bale
leikur Batman í nýjustu myndinni
og mun hann einnig tala inn á. Auk
þess munu Michael Caine, Liam Nee-
son, Katie Holmes, Cillian, Tom Wilk-
inson og Morgan Freeman leika þær
persónur sem þau léku í myndinni.
Leikurinn kemur út daginn fyrir
frumsýningu myndarinnar Batman
Begins enhúnverðurfrumsýndíkvik-
myndahúsum 17. júní. Það er Christ-
opher Nolan sem leikstýrir myndinni
og leikurinn er byggður á þeirri sögu.
Því fá leikmenn að kynnast upphafi
Batman-persónunnar og tímans þeg-
ar hann lætur fyrst til sín taka í Got-
ham-borg. Þeir þurfa að elta glæpa-
menn og illmenni og þekktir óvinir
Batmans, eins og Scarecrow, Ra’s A1
Ghul og Carmine Falcone, koma við
sögu. Auk þess fá leikmenn að aka af EA og Eurocom, en hann er vænt-
um á hinum stórkostlega Batmobile. anlegur 16. júní fyrir PlayStation2,
Batman Begins leikurinn er gerður Xbox og Nintendo GameCube.
Blómstrandi sumar hjá
sjálfstæðu leikhúsunum
Tilnefningar til Grímunnar, íslensku
leiklistarverðlaunanna,vorutilkynnt-
ar síðastliðinn mánudag og þar voru
sjálfstæðu leikhúsin með 15 af þeim.
Blaðið náði tali af Kristínu Eysteins-
dóttur, framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðu leikhúsanna og það er ekki
annað að heyra en það verði nóg um
að vera í sumar. „Það er alltaf fullt af
sýningum í gangi hjá sjálfstæðu leik-
húsunum á sumrin. Það sem hæst
ber að nefna þar er sýningin Kabar-
ett, sem leikhópurinn Á Senunni er
að æfa þessa dagana," segir Kristín,
en söngleikurinn verður frumsýndur
4. ágúst í íslensku óperunni. Leik-
stjóri er Kolbrún Halldórsdóttir og
meðal leikara eru Felix Bergsson, Þór-
unn Lárusdóttir og Magnús Jónsson.
Annie er annar sumarsöngleikur sem
leikhópurinn Andargift er að vinna
að. Þetta er í fysta sinn sem sýningin
um munaðarleysingjann er sett upp
hér á landi en hún verður frumsýnd
í Austurbæ í júlí. „Andargift er nýr
leikhópur sem var stofnaður sérstak-
lega í kringum þessa sýningu og hún
er í leikstjóm Viðars Eggertssonar,"
segir Kristín. Meðal leikara er Guð-
mundur Ingi Þorvaldsson og Þórdís
Elva Backmann.
Spennandi verkefni hjá Vestur-
porti
„Leikhópurinn Vesturport er einn-
ig að vinna að virkilega spennandi
sýningu sem heitir Voyzheck og verð-
ur frumsýnd í Borgarleikhúsinu í
september,“ bætir Kristín við, en hún
verður jafnframt sýnd á leiklistarhá-
tíð erlendis. Auk þess má bæta við
að sýningar á Kalla á þakinu halda
áfram í allt sumar og Álveg brilljant
skilnaður með Eddu Björgvins verð-
ur sýndur út júní. „Einnig eru Ólafur
Darri, Agnar Jón og Guðmundur Ingi
að vinna að leiksýningu sem heitir
Glæpur gegn diskóinu og verður frum-
sýnt í Borgarleikhúsinu. Þeir vom all-
ir saman í bekk og eru núna að vinna
aftur saman.“ Sú sýning verður for-
sýnd núna á laugardag og sunnudag
en frumsýnd í haust. „Síðan er vert
að nefna að starfsemi hjá Möguleik-
húsinu er í fullum gangi í sumar en
það rekur mjög öflugt barnaleikhús,"
segir Kristín að lokum.
Motu-Fest hefst í kvöld
Harðkjarna- og rokkhátíðin Motu-
Fest hefst í kvöld með tónleikum
bandarísku sveitarinnar Paint it
Black ásamt Myra, Isidor og Mania,
í Hellinum að Hólmaslóð 2. Hátíðin
heldur áfram á fostudag en þá verða
tónleikar með Urkraft og fleiri sveit-
um á Grand Rokk og á laugardags-
kvöld verður risa rokkveisla í gamla
Sjónvarpshúsinu. Það er ekkert ald-
urstakmark á tónleikana í kvöld en
miðaverð er 1.000 krónur.
Bandariska harðkjamasveitin Paint it
Black spilar í Hellinum í kvöld.
:rumsýningu
The Pink Panther fi stað
Enn er búið að fresta útgáfudegi
myndarinnar The Pink Panther, sem
Shawn Levy leikstýrir fyrir Sony
Pictures. Myndin, sem er sjálfstætt
framhald upprunalegu Peter Sellers
myndarinnar frá árinu 1964, átti að
koma í kvikmyndahús í ágúst á þessu
ári en nú er búið að ýta útgáfudegin-
um aftur til 10. febrúar árið 2006.
Ástæðan fyrir þessu er sögð sú að
myndir sem hafa verið frumsýndar
í kringum Valentínusardaginn hafa
gengið ótrúlega vel í miðasölu og má
þar nefna Hitch og 50 First Dates.
Kvikmyndafyrirtækið ætlar þó ekki
að sitja auðum höndum heldur nýta
þennan tíma til að kynna myndina
vel en það eru ekki verri leikarar en
Steve Martin, Kevin Kline, Beyoncé
Knowles og Jean Reno sem fara með
aðalhlutverkin í myndinni.