blaðið - 08.06.2005, Side 30
Mon/...
Velgengni kallar á
annað en fallegt útlit
Þegar ég settist niður með
tíu dropa í kaffitímanum mín-
um í dag rak ég augun í DV
- blað slúðursins og lyganna.
Blaðsins sem hefur það efst á
stefnuskránni að fmna mein-
bug á hverjum einasta þjóð-
félagsþegn landsins og kapp-
kosta við að leggja líf manna í
rúst. Af einhveijum ástæðum
ákvað ég að glugga í téð blað,
en þess má geta að ég tók það
blað sem hendi var næst eftir
að ég hafði þrisvar þaullesið
Moggann og vantaði því af-
þreyingu. Eftir að hafa rýnt í
gegnum helming blaðsins sá
ég, mér til mikillar armæðu,
grein eftir Einar Ingva Magn-
ússon um Meðal-Jón og Með-
al-Gunnu. Þar leiðir hann lík-
um að því að fólk þurfi að líta
út eins og Barbie-dúkkur eða
Hollywood-stjömur til þess
að njóta velgengni eða frama
í lífinu. Að meðalmenn séu
þeir sem ekki séu frægir. Þó
svo að ég taki þetta ekki per-
sónulega til mín, þar sem ég
er ekki ein af „fræga fólkinu“,
get ég ekki orða bundist. Ég
tel mig hvorki vera afspymu-
fallega, né fræga, en engu að
síður ætla ég mér að njóta
velgengni í lffinu þar sem ég
tel mig hafa metnað og gáfur
í að gera það sem ég vil. Þá án
þess endilega að það feli í sér
að verða fræg eða líta út eins
og lystarstolssjúklingur. Því
fer fjarri.
En hvemig er það - næ ég sem
sagt ekki þeim árangri sem ég
ætla mér af því ég er ekki nógu
falleg? Á ég að gefa drauma
um bjarta framtíð án sjálfs-
morðs upp á bátinn þar sem ég
lít ekki út eins og Jennifer Lop-
ez? Einar minn! Þetta er alveg
forkastanleg athugasemd! Til
háborinnar skammar og fyrir-
litningar. Annan eins yfirgang
hef ég sjaldan orðið vitni að og
ég er alveg rasandi yfir þess-
um yfirlýsingum þínum. Þú
segir t.d.: „Ef konur era ekki
Barbie-dúkkuvaxnar eins og
ameríska ímyndin segir til um
leggist stór hluti þeirra í þung-
lyndi, sjálfsmorðshugleiðing-
ar eða lystarstol." Þama verð
ég að fá að stoppa þig! Era
skilaboðin til þeirra sem eiga
við geðraskanir að stríða sem
sagt þau að þeir hljóti að líta
illa út og vera umhverfí sínu
og sjálfum sér til trafala? Nú,
eða heldurðu að fólk sem lítur
vel út geti ekki átt við vanda-
mál að stríða? Ég er nú ansi
hrædd um það. Grein Einars í
DV ber einfaldlega vott um að
Einar skorti á allan hátt víð-
sýni til lífsins og að hann af
einhveijum ástæðum finni til
öfundar til þeirra sem kunna
að standa sig vel - hvort sem
þeir era frægir eða ekki.
Annað vakti undran mína í
umræddri grein. Talað var
um að ímynd velgengninnar
væri að líta út eins og Holly-
wood-stjömumar. Sá sem seg-
ir svona hlýtur að rangtúlka
orðið velgengni. Fyrir mér er
velgengni hvers og eins það
sem hann lifir fyrir og kýs að
fá út úr lífinu. Leikskólastjóri
nýtur velgengni í lífinu. Lækn-
ir nýtur velgengni. Rithöfund-
ur nýtur velgengni. Era ein-
hveijar útlitskröfur í þessum
embættum? Þarf læknirinn
að uppfylla skilyrði um lág-
marksfituprósentu? Nei, ég
held nú ekki. Samt sem áður
nýtur hann velgengni í eig-
in lífi, sé hann í þeirri stöðu
sem hann hefur viljað vera.
Ég hefði haldið að læknirinn
tróni ekki á toppnum yfir fræg-
ustu einstaklinga landans en
hann er samt enginn meðal-
maður endilega. Hver útlistar
það hveijir séu meðalmenn
og hveijir ekki? Flestir eiga
að geta lifað góðu lífi og „not-
ið velgengni11 ef þeir vilja, án
þess að vera með andlit sem
prýtt gæti forsíður VOGUE.
Velgengni er ekki endilega að
vera flottur og frægur - þessu
má ekki ragla saman.
Það er mjög mikilvægt að fólk
geri sér grein fyrir því að fólk
kemst ekki langt á úthtinu
einu saman. Við þurfum að
vera samkvæm sjálfum okk-
ur og hafa trú á því sem við
viljum gera. Þá skipta gáfur
auðvitað höfuðmáli líka, með-
fæddar sem áunnar. Þeir sem
ná hvað lengst era þeir sem
stíga í vitið - ekki þeir sem
hafa sílikonbarm en ekkert í
höfðinu. Flestir ná langt í sín-
um störfum fyrir sköraglega
framkomu og gáfur á einu
eða öðra sviði. Þó svo að marg-
ir frægir séu vel útlítandi
og áberandi er yfirleitt um
fleira og allt annað en andlit-
ið að ræða. Svanhildur Hólm
hefur t.d. mjög margt við sig
annað en útlitið, Jón Ásgeir er
jú frægur en þar spila án efa
gáfur inn í og svo mætti lengi
telja. Þá má líka snúa þessu
við - hver sagði að Bill Gates
(einn sá frægasti í heiminum)
væri hinn myndarlegasti?
Auglýsingar 5103744
blaðið
miðvikudagur, 8. júní 2005 I blaðið
Jolie æst vegna
forsíðumyndar
Angelina Jolie æsti sig og fór í vöm
er hún ræddi við sjónvarpsfrétta-
konu um Brad Pitt. Kynnirinn, Ann
Curry, sýndi Jolie tímarit með for-
síðumynd af henni, syni hennar og
Pitt, þar sem þau eyddu stund á afr-
ískri strönd. Jolie snöggreiddist: „Þú
keyptir það, þú heldur á því. Stað-
reyndin er að þetta var hluti af þinni
dagskrá. Þetta er eitthvað sem við
erum enn að tala um.“ Leikkonan,
sem þekkt er meðal annars fyrir
hlutverk sitt í myndinni Tomb Rai-
der, sagði einnig að þetta fh' henn-
ar hafi ekki verið til þess ætlað að
birtast á forsíðu tímarits. „Þessi
dagur þarf að vera sá dagur sem ég
bjó til sandkastala með syni mínum.“
Við það tækifæri bauð Curry henni
að leiðrétta misskilninginn um sam-
band hennar og Brads. Jolie hafn-
aði því og sagði: „Við vitum báðar
að ég gæti komið með þúsund
athugasemdir núna og það skipt-
ir engu máli. Fjölmiðlar segja
það sem þeir vilja segja og það
er allt í lagi. Líf mitt mun halda
áfram og ég þarf að einbeita mér
að því.“ Bæði Jolie og Pitt láta alla
blaðamenn, sem taka viðtöl við
þau vegna myndarinnar Mr. and
Mrs. Smith, skrifa undir samning
þess efnis að bannað sé að spyrja
skötuhjúin um sambandshagi. Sé
ekki farið eftir því er Jolie og Pitt í
sjálfvald sett að ljúka viðtalinu og
ganga út.
Chris Martin bjargar heiminum
Þrátt fyrir að nýjasta plata Coldplay
sé nýkomin út einbeitir Chris Martin
sér ekki að því að selja plötur. Á blaða-
mannafundum réttir hann iðulega
upp vinstri hönd sína þar sem hann
hefur teiknað tvær láréttar, svartar
línur, auk þess sem hann hefur blátt
og rautt límband um tvo fingur sína.
Þetta er merki alþjóðlegu stofnunar-
innar, Fijáls verslun, sem berst fyrir
því að aflétta skuldum þriðja heims-
ins með ftjálsri verslun. „Hver sá
sem gagnrýnir mig fyrir að tala um
fijálsa verslun er ekki í lagi því öllum
ætti að vera annt um þetta málefni, á
sama hátt og öllum ætti að vera annt
um umhverfið því við búum hér öll,“
segir Chris með bros á vör.
Chris fer þó sínar eigin leiðir í bar-
áttunni - hann skrifar ekki mótmæl-
endalög né ber fána. Hans barátta
felst einkum í vinstri
hendi hans og einstaka
stuttermabol. Hann fær
því enga upp á móti sér
heldur reynir að breyta
heiminum án þess. „Ég
skil efasemdarmenn sem
spyrja af hveiju söngvari
sé að tala um þetta en við
tölum um fijálsa verslun
því við höfum séð hvaða
áhrif hún hefur," segir Chris. Á milli
þess sem hann bjargar heiminum
fjallar hann líka um nýjustu plötuna.
„Það er margt sem við gætum gert til
að selja fleiri plötur og margt sem við
gætum gert til að selja færri plötur.
Að endingu hættum við að hugsa um
plötusölu og viðtöl og reyndum bara
að heilla hver annan í litlu æfinga-
herbergi." Chris viðurkennir að vitan-
lega yrðu þeir ánægðir í
laumi ef platan seldist
vel en staðreyndin er að
þeir eru í draumastarf-
inu og það er nógu gott.
Ef þeir hugsuðu ó ann-
an hótt væri það mjög
hættulegt. „Textar okk-
ur eru endurspeglun
á öllu sem er að ger-
ast í lífi okkar. Sumir
hafa kvænst, sumir hafa misst
einhvern. Ég eignaðist dóttur og
allt þetta hellist í textana," segir
Chris málefnalega. „Það er eitt-
hvert sjálfstraust í þessu en líka
töluvert óöryggi. Það er hamingja
en það eru líka áhyggjur. Þetta er
hljómurinn af fjórum einstakling-
um sem urðu ótrúlega heppnir."
Hvað segir Ellý
um framtíðina?
SPAMaÐUR.IS
Vatnsberinn
(20. jan.-18. febr.)
©Tvíburarnir
(21. maf-21. júni) •
Vogin
(23. sept.-23. okt.)
$ Um þessar mundir virðist þú leggja mikla
áherslu á ábyrgð nútímans gagnvart komandi
kynslóðum, sem er vissulega jákvætt
V Snæfellsjökull segir til um dulúö vatns-
berans um þessar mundir og ekki síður kyngi-
magnaða og öfluga krafta sem hvíla innra með
honum.
©Fiskarnir
(19. febr.-20. mars)
$ Frjósemi, kraftur og auðlegð á vel við
stjörnu fiska þessa dagana því hér birtist lands-
lag sem er óvenjulegt á nánast allan hátt, og
storbrotið líkt og (Vestmannaeyjum.
V Samhliða myndrænni líkingu Vestmanna-
eyja kemur fram klettur. Heimakiettur nefnist
hann og sýnir að þú hefur einhvers konar grímu
fyrir hvaða hlutverk og aðstæður sem vera skal
og þannig virðistu vilja hafa það hér.
Hrúturinn
(21. mars-19. apríl)
S Mikil fuglabjörg sýna baráttuþrek og
seiglu hrútsins. Þú virðist vera fær um að takast
á vib meira en fimm eða jafnvel sex hluti i einu.
V Fuglaskoðun ætti hins vegar ekki vel við
þig því þú hefur skýr markmið þegar tilhugalíf
þitt er annars vegar. Þörf þín fyrir að sanna þig
er áberandi í dag og reyndar út júni.
Nautið
(20. apríl-20. maí)
$ Viðey (1,7 km2) birtist þegar stjarna þín
er skoðuð í dag. Þar er augljóslega verið að
benda þér á viðkvæmni þina. Slepptu takinu af
gömlum minningum ef þú vilt ná árangri sem þú
sættir þig við.
V Likami þinn þráir snertingu og atlot á
þessum árstíma.
$ Frá Hrisey er fögur útsýn til allra átta,
enda fjallahringurinn tilkomumikill. Hér kemur
fram vilji þinn til að forðast ábyrgð. Horfðu í
kringum þig og veittu öðrum hjálparhönd.
V Hrísey er alþekkt fuglaparadís en þessi fal-
lega myndræna líking sýnir að þú mættir huga
betur að fólkinu þínu með þvi að gefa þeim
meira af tíma þfnum.
©Krabbinn
(22. júní-22. julí)
$ Ekkert endist að eilífu. Ekki einu sinni
steinar. Hugaðu vel að þessari staðreynd ef um
fjárfestingar er að ræða.
V Öldur brjóta bergið og flytja mulninginn
fram og til baka við strendur landsins en ástin
er hins vegar eilff. Kærleiksböndin slitna aldrei
og þú ert minntur á það í dag.
©Ljónið
(23. júlí- 22. ágúst)
$ Náttúruvættum má enginn granda, spilla
né breyta. Mikilvægt er að þú leyfir þér að brjót-
ast úr fjötrum eigin hégóma, kæra Ijón, og hugir
að framferði þinu.
V Hér er minnst á friðlýst land, sem merkir
alls ekki að mönnum sé bannað að nióta tiltek-
ins svæðis. Þvert á móti. Leyfðu þer að vera
rómantlskur og hlustaðu á undirmeðvitund þlna
sem segir þér að njóta, treysta og upplifa þínar
innstu þrár.
CS Meyjan
9 (23. ágúst-22. sept.)
$ Óspillt náttúra segir að fólk fætt undir
stjörnu meyju hugsar vel um eigin hag og er
yfirleitt vinnusamt.
V Þú ert þvngdar þinnar virði í gulli en mátt
ekki gleyma að hlúa vel að tilfinningum þínum.
Gefðu af þér í meira mæli.
$ Árnar, vindurinn, jöklarnir og sjórinn, mylja
mikið af hrauni á hverju ári hér á landi og þessi
myndlíking virðist eiga við vogina þessa dagana
því hún birtist árásargjörn á einhvern máta.
V Þrætugirni kemur einnig fram I fari vogar
samhliða lýsingu hér að ofan. Þú virðist vera á
báðum áttum um eitthvert mikilvægt mál i lífi
þínu.
Sporðdreki
(24. okt.-21. nóv.)
$ Landið okkar liggur á mörkum heim-
skautasvæðis og hvað staðsetninguna varðar
má lesa að bogmaður virðist vera staddur á
brúninni og tekur áhættu. Allt fer nákvæmlega
eins og plön þín segja til um.
V Risatórar eldstöðvar eiga við tilfinning-
ar sporðdrekans þessa dagana (Grímsvötn og
Katla). Breyttu tilfinningahitanum í kærleika og
faðmaðu sjálfan þig.
Bogmaður
(22. nóv.-21. des.)
$ Eyrbyggja er sú saga (slendingasagna
sem einkum tengist Snæfellsnesi. Þessar sögur
greina m.a. frá Þórólfi Mostrarskeggi, landnáms-
manni sem hafði svo mikinn átrúnað á fjalli
nokkru að hann kallaði það Helgafell en sam-
hliða því ertu minntur á að besta hugsun fortlðar
er að fylgja framtiðinni með réttu hugarfari.
V Hér er blautur jarðvegur sýndur sem segir
gróðursælu og allt að alsælu einkenna stjörnu
bogmanns á tilfinningasviðinu þessa dagana.
©Steingeit
(22. des.-19. jan.)
$ Þú veist að jöklar þekja um 10% af Islandi
en samhliða þeirri staðreynd er komið inn á að
tilfinningar þinar eru sterkar fyrir markmiðum
sem virðast smá í fyrstu en þegar fram líða
stundir er reyndin allt önnur (vöxtur).
V Stærstu jöklarnir ná yfir umfangsmiklð
landsvæði en þar er verið að sýna lífslöngun
steingeitarinnar. Þú veist hvaö þú vilt og ert sig-
urvegari í eöli þlnu.