blaðið - 01.07.2005, Page 8
föstudagur, 1. júlí 2005 I blaðið
ísraelsher lokar landnema-
byggðum á Gaza
bjornbragi@vbl.is
ísraelski herinn einangraði land-
nemabyggðimar á Gaza-svæðinu
í gær og lýsti því yfir að þær væru
nú „lokað hersvæði". Ariel Sharon,
forsætisráðherra ísraels, hafði lýst
því yfir að átökin á Gaza-svæðinu,
sem hafa átt sér stað síðustu daga,
}Tðu bæld niður, sama hvað þyrfti
til. Á miðvikudag bmtust út hörð
átök þar sem þjóðernissinnuðum
ísraelsmönnum lenti saman við bæði
öryggissveitir ísraela og palestínska
borgara. Talsmaður ísraelshers
sagði að herinn yrði í viðbragðsstöðu
á Gaza-svæðinu í kjölfar átakanna á
miðvikudag en að lokunin væri tíma-
bundin.
sraelskir lögreglumenn bera unga stúlku frá Palm Beach hótelinu á Gaza-svæðinu í
gær. Þjóðemissinnaðir gyðingar hafa síðustu daga mótmælt harðlega ákvörðun ísra-
elsstjórnar þess efnis að gyðingar skuli yfirgefa Gaza-svæðið.
Allt að 570 þúsund
ólöglegir innflytjendur í Bretlandi
bjornbragi@vbl.is
Samkvæmt tölum frá innanríkisráðu-
neyti Bretlands búa allt að 570.000
ólöglegir innflytjendur þar í landi. Þá
er ekki meðtalið það fólk sem sótt hef-
ur um landvistarleyfi eða hefur áfrýj-
að því að vera meinað um slíkt leyfi.
Árið 2001 var áætlað að um 430.000
ólöglegir innflytjendur byggju í Bret-
landi, eða um 0,7% af íbúafjöldan-
um.
Talsmaður innanríkisráðuneytis-
ins sagði að tölunum bæri þó að taka
með fyrirvara, fjöldinn gæti vel verið
mun lægri. Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, hefur ekki sjálfur
viljað gefa upp hversu margir ólögleg-
ir innflytjendur eru taldir búa í land-
inu en síðastliðna daga hefur verið
deilt um breytingar á innflytjenda-
lögum.
David Davis, þingmaður íhalds-
manna, sagði tölur Innanríkisráðu-
neytisins vera áfellisdóm yfir stefnu
Verkamannaflokksins í innflytjenda-
málum og sakaði Blair um að hafa
afvegaleitt bresku þjóðina sér til
framdráttar með því að leyna upplýs-
ingum og gefa upp rangar staðreynd-
ir.
"SSrá""
\
W
W
w
w
w
w
w
w
f l
w
w
■<jr _
\
1
Jk
v#' m
w
\
\-
ORÐLAUS KEMUR UT A LAUGARDAGINN
NÝTT BROT, ALVEG SVAKALEGA DJÚSÍ...
I
m —
\
\
o
Nixon kallaði Gandhi
„gamla norn“
bjornbragi@vbl.is
Richard Nixon, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, kallaði fyrrverandi
forsætisráðherra Indlands, Indiru
Gandhi, „gamla norn“ samkvæmt
eftirritum. Aðstoðarmaður Nixons,
Henry Kissinger, var litlu skárri í um-
mælum sínum og talaði um Indverja
sem „óþokka" í samtali árið 1971.
Eftirritin, sem koma frá forseta-
skrifstofu Hvíta hússins í Washing-
ton, lýsa í smáatriðum fundi Nixons
og Kissingers sem átti sér stað þar
stuttu eftir að Nixon fundaði með
Gandhi. Indverski leiðtoginn var þá
í Washington til að ræða hið eldfima
ástand sem ríkti milli Indlands og
Pakistans og hugsanlegt stríð sem
gæti verið fram undan milli ríkjanna.
Indland var þá náinn bandamaður
Sovétríkjanna en Pakistan var stutt
af Bandaríkjamönnum.
„Við smjöðruðum algerlega fyrir
gömlu norninni," sagði Nixon og tal-
aði um Indveija sem útsmogið og
svikult fólk. Kissinger svaraði með
því að segja: „Indverjar eru óþokkar.
Þeir eru frekasta fólk sem þú finnur."
Stríðið milli Indlands og Pakistans
braust út skömmu síðar og hafði í
fór með sér að ríkið Bangladesh var
myndað.
Eftirritin voru birt um það leyti
sem Donald Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, og
indverski kollegi hans, Pranab
Mukherjee, skrifuðu undir hemaðar-
sáttmála sem markaði þáttaskil og
greiddi götuna fyrir sameiginlegri
vopnaframleiðslu ríkjanna. Banda-
ríkjamenn höfðu, síðan 1998, beitt
refsiaðgerðum gegn Indverjum og
neitað að eiga hernaðarleg tengsl við
þá eftir að Indverjar gerðu tilraunir
með kjarnorkuvopn.
Auga fyrir auga í íran
Dómstóll í Teheran, höfuðborg írans,
hefur staðfest dóm upp á að augun
verði stungin úr 28 ára manni. Mað-
urinn var að vinna á ávaxtamarkaði í
Teheran þegar hann lenti í deilum við
annan mann. Kastaði hinn dæmdi þá
rafgeymi í manninn sem hann deildi
við, með þeim afleiðingum að sýra fór
í andlit hans og gerði hann blindan.
Þessi atburður átti sér stað fyrir 12
árum, þegar hinn dæmdi var 16 ára.
Maðurinn, sem hefur verið í fangelsi
síðan atburðurinn átti sér stað, hef-
ur ætíð haldið því fram að um slys
hafi verið að ræða - lok hafi losnað af
rafgeyminum en það hafi aldrei ver-
ið ætlun hans að valda svo miklum
skaða. Dómur mannsins, sem hefur
verið harðlega gagnrýndur af mann-
réttindasamtökum, er eftir lögmáli
úr sjaría-löggjöfinni, sem byggist á
forskrift Kóransins.
Hlaut skaðabætur fyrir
kynferðislega misnotkun
sem barn
Hæstiréttur í Birmingham í Englandi
dæmdi í gær 35 ára manni tæpar 75
milljónir íslenskra lcróna í skaðabæt-
ur íyrir kynferðislega misnotkun af
hálfu kaþólsks prests. Presturinn er
sagður hafa misnotað manninn yfir
tíu ára tímabil, frá því drengurinn
var átta ára. Maðurinn hefur þjáðst
af geðklofa og áfallaröskun. Prestur-
inn flúði undan lögreglunni þegar
ásakanir gegn honum komu fyrst
upp fyrir nokkrum árum og dó svo í
Ástralíu árið 1998. Talið er að dóm-
urinn geti haft í fór með sér að ein-
staklingar, sem orðið hafa fyrir kyn-
ferðislegu ofbeldi af hálfu kirkjunnar
manna, muni í auknum mæli leita
réttar síns. Kaþólska lcirkjan gæti
því staðið frammi fyrir svimandi há-
um útgjöldum í skaðabótakostnað.
Unglingsstúlkur
stela sem aldrei fyrr
bjornbragi@vbl.is
Innbyrðis samkeppni milli unglinga
um að vera fyrstir til að eignast það
nýjasta og flottasta þvingar þá út í
þjófnað. Þetta segir félagsráðgjafinn
Linda Kruger-Nielsen við danska
dagblaðið Frederiksborg Amts Avis.
Vilja tolla í tískunni
„Þeir segjast einungis vilja falla í
hópinn og vera eins og hinir. Að þeir
steli vegna þess að það geri þá jafn-
sérstaka og vinina og vinkonurnar,”
segir Rriiger-Nielsen. „Þeir reyna að
vekja sérstöðu með því að vera fyrst-
ir til að eignast það nýjasta og finnst
þeir óeðlilegir ef þeir tolla ekki í tísk-
unni.“ Samkvæmt tölum lögreglunn-
ar í Lyngby fer þjófnaður unglinga
sífellt vaxandi. Þá sýna tölurnar að
stúlkur undir 15 ára aldri eru í mikl-
um meirihluta þeirra unglinga sem
stela. Árið 2002 voru 63 unglings-
stúlkur kærðar fyrir búðarþjófnað,
en árið 2004 hafði þessi tala rúmlega
tvöfeldast því þá voru 139 stelpur
kærðar.
Röng viðbrögð foreldranna
Allan Nyring, aðstoðarlögreglustjóri
Lyngby-lögreglunnar, segir að ung-
lingsstúlkur steli í raun hverju sem
er. „Það eru ekki bara þær sem eiga
ekki pening sem stela,“ segir Nyring.
Hemn segir að foreldrar sem þurfa að
sækja börn sín, sem tekin eru fyrir
þjófnað, niður á lögreglustöð sýni oft
kolröng viðbrögð. „Sumir verða bara
vandræðalegir og aðrir bálreiðir en
stórum hluta virðist því miður vera
alveg sama.“
Barnasálfræðingurinn Gideon
Zlotnik segir að böm frá vel stæðum
fjölskyldum séu síst sjaldnar þau sem
leiðist út í þjófnað. „Samkeppnin um
veraldleg gæði er mun meiri meðal
þeirra unglinga sem koma frá góðum
heimilum. Ef maður t.d. byggi í tjaldi
hefði maður lítið til að keppast um en
þeir sem búa í fínu húsi í góðu hverfi
munu alltaf hafa fleiri og dýrari hluti
til að keppa um.“