blaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 10
föstudagur, 1. júií 2005 I blaðið
erlent
ís'
30 ára fangelsisdómur yfir
nauðgara og morðingja staðfestur
bjornbragi@vbl.is
Franskir dómstólar hafa staðfest fyrri
dóm yfir Spánveija sem nauðgaði og
myrti síðan 13 ára breska stúlku ár-
ið 1996. Hinn 55 ára Francisco Arce
Montes var dæmdur í 30 ára fangelsi,
en hann áfrýjaði dómnum á þeim for-
sendum að hann hafi myrt stúlkuna
af slysni.
Stúlkan, Carohne Dickinson, var
í skólaferð í Frakklandi og var stödd
á farfuglaheimili fyrir ungt fólk þeg-
ar flakkarinn Montes réðst á hana,
nauðgaöi henni og kæfði hana síðan
til dauða. Montes kvaðst aldrei hafa
ætlað sér að myrða stúlkuna og bað
Dickinson-flölskylduna ítrekað afsök-
unar á gjörðum sínum. „Það sem ég
gerði var skelfilegt. Það var hryllilegt
og ég á mér engar málsbætur. Eg
biðst afsökunar og ég sé eftir því sem
ég gerði en það var aldrei ætlun mín
að drepa dóttur ykkar.“
Eftir vikulöng réttarhöld þurfti
kviðdómurinn klukkustund til að
komast að niðurstöðu. John Dickin-
son, faðir Carohne, sagði það hafa
verið „sársaukafullt að endurupplifa
atburðina" og sagðist vona að leit fjöl-
skyldunnar að réttlæti fyrir Caroline
væri loks lokið og hún gæti fengið að
hvíla í friði. Montes vill áfrýja dómn-
um á ný, þrátt fyrir að lögfræðingar
hafi sagt að það geti orðið til þess að
dómurinn yfir honum verði þyngdur.
Francisco Montes á leið út úr réttarsal-
num.
12 ára
fangelsi fyrir
manndráp
Danskur maður á fertugsaldri var í
gær dæmdur í 12 ára fangelsi fyrir að
drepa vændiskonu með því að stinga
hana 22 sinnum með hníf. Morðið
átti sér stað 4. ágúst í fyrra. Maður-
inn hafði farið niður á Vesturbrú í
leit að vændiskonu. Fór hann með
hina 36 ára Carinu Reimer í kjallar-
ann á Frederiksberg-sjúkrahúsinu,
þar sem hann vann, og endaði á því
að myrða hana. Lögreglan var fljót
að hafa hendur í hári morðingjans
sem játaði sekt sína frá upphafi.
Bar hann því við í rétti að hafa verið
undir áhrifum eiturlyfja þegar hann
framdi verknaðinn.
omsTumHusiD
Tómstundahúsið
Nethyl 2,
sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
Spænska þingið lögleiðir
hjónabönd samkynhneigðra
Elskhugar fallast í faðma fyrir utan spænska þingiö í gær eftir að frumvarp, sem hefur
í för með sér griðarlega réttindaaukningu fyrir samkynhneigða, var samþykkt.
Spænska þingið samþykkti í gær
lagafrumvarp sem heimilar samkyn-
hneigðum pörum að ganga í hjóna-
band. Þá felur frumvarpið einnig
í sér að samkynhneigðum hjónum
verði leyft að ættleiða börn og erfa eig-
ur hvort annars. Af 338 þingmönnum
sem sátu kosninguna voru 187 fylgj-
andi, 147 andvígir en fjórir sátu hjá.
Samkynhneigðir og aðrir talsmenn
réttinda þeirra fógnuðu ákaft fyrir ut-
an þinghúsið og sendu þingmönnum
fingurkossa.
Spánn er þar með þriðja Evrópurík-
ið sem lögleiðir hjónabönd samkyn-
hneigðra, á eftir Belgíu og Hollandi.
Þá samþykkti neðri málstofa kanad-
iska þingsins á þriðjudag frumvarp
um að hjónabönd samkynhneigðra
verði leyfð, frumvarp sem öldunga-
deildin þarf síðan að samþykkja. Tal-
ið er fullvíst að það muni ganga eftir
og að Kanada verði þar með fyrsta
ríkið utan Evrópu til að leyfa hjóna-
bönd samkynhneigðra.
Umdeilt frumvarp
Kaþólska kirkjan á Spáni mótmælti
því ákaft að frumvarpið yrði sam-
þykkt og þá sagði leiðtogi eins stjórn-
arandstöðuflokkanna að samþykkt-
in gæti haft í fór með sér klofning í
spænsku samfélagi. Jose Luis Zapat-
ero, forsætisráðherra Spánar, var þó
á öðru máli. „Við erum að auka ham-
ingju fyrir nágranna okkar, vinnufé-
laga, vini og ættingja. Þótt þetta sé
ekki nema ein viðbótarmálsgrein í
lagasafhið hefur þetta gríðarmikla
þýðingu í lífi margra þúsunda," sagði
Zapatero eftir að frumvarpið var sam-
þykkt. „Við erum ekki fyrsta ríkið og
ég er viss um að við erum ekki það
síðasta. Á eftir okkur munu fylgja
fjölmörg önnur lönd, knúin áfram af
tveimur óstöðvandi öflum: Frelsi og
réttlæti."
NHTUZZI
FUOTUST
FRÁ 20.JÚNÍ TIL 10.JÚLÍ ER HAGSTÆTT AÐ MÆTA MEÐAL ÞEIRRA FYRSTU
Natuzzi býður núna upp á sérstaka útsölu með allt að 30% afslætti á völdum sófum, hæginda-
stólum og öðrum aukabúnaði. ítölsk hönnun, gæði og handbragð eru tryggð af Natuzzi,
heimsins fremsta framleiðanda á leðursófum.
GÆÐAFRAMLEIÐSLA FRÁ ÍTALÍU - Vottaö ISO 9001-14001
Fáöu frckari upplýsingar eöa ókcypis cintak af Natuzzi
baeklingnum. Hringdu gjaldfrjálst í síma 800-4477 cöa
smelltu á www.natuzzi.com
NHTUZZI
It’s how you live
Natuzzi vcrslunin: SMÁRALIND 201 Kópavogur - Sími 564 4477
Verslunin cr cinnig opin á sunnudögum frá kl. 13-18