blaðið - 01.07.2005, Page 20

blaðið - 01.07.2005, Page 20
20 helgin • ■ r-5 föstudagur, 1. júlí 2005 I blaðið Margir á faraldsfæti um helgina Fram undan er mikil ferðahelgi og búist er við að margir leggi land undir fót. Island er fagurt land og það eru því ýmsir ferða- möguleikar í boði. Hvort heldur sem ferðast er með húsbíl, felli- hýsi eða tjald, þá er auðvelt að fá gistingu víðs vegar um landið. Akureyri Tjaldsvæðið við Þórunnarstræti er á góðum stað í miðjum bænum, rétt við Sundlaug Akureyrar. Ásgeir Hreið- arsson er umsjónarmaður tjaldsvæð- anna á Akureyri og hann segist eiga von á fjölda fólks. „Það er alltaf margt fólk þessa helgi. Tjaldsvæðið við Þór- unnarstræti fyllist oftast og það er reytingur á tjaldsvæðinu við Hamra." Á svæðinu er góð aðstaða fyrir felli- hýsi og húsbíla, auk þess sem þar er góð snyrtiaðstaða og sturtur. Nóttin kostar 700 krónur fyrir 14 ára og eldri og aðgangur að rafmagni kostar 200 krónur. Atlavík Náttúruperlan Atlavík er vinsæl á sumrin og búist er við ansi mörgum þar um helgina. Þór Þorfinnsson, skógarvörður á Austurlandi, segir að fólk elti yfirleitt sólina. Jíf veðurspá- in verður okkur hliðholl þá býst ég við að hér komi þokkalegur fjöldi." I Atlavík er salemisaðstaða með heitu og köldu vatni og góð aðstaða er fyr- ir fellihýsi og húsbíla. Þar er einnig rekin bátaleiga og skipið Lagarfljóts- ormurinn hefur þar viðkomu. Tilvalið er að fara í gönguferðir í Atlavík og frá tjaldsvæðinu eru margar merktar gönguleiðir. Nóttin kostar 650 krón- ur fyrir 12 ára og eldri. Margmenni á Arnarstapa um helgina. Jónas guðmundsson Alltaf margt fólk á Akureyri fyrstu helgina í júlí. í Skaftafelli er í boði sex hektara tjaldsvæði. Atlavík er vinsæl á sumrin. Skaftafell í Skaftafelli er boðið upp á gistingu á sex hektara tjaldsvæði með hreinlæt- isaðstöðu. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður segist búast við margmenni. „Hér er alltaf fullt. Svo er líka Humarhátíð á Höfn þannig að ég býst við nokkuð hundruð manns. Reyndar fer það allt eftir veðri hvort það verða hér bara útlendingar eða líka íslendingar." Á tjaldsvæðinu er sérstakt svæði sem er ætlað fyrir húsbíla og fellihýsi. Nóttin kostar 600 krónur fyrir 16-67 ára en ókeypis er fyrir aðra. Arnarstapi Snæfellsnesið er lokkandi staður og hægt er að gista á tjaldsvæðinu á Arn- arstapa. Tryggvi Konráðsson er fram- kvæmdastjóri Snjófells, og samkvæmt honum er nóg um að vera á Amar- stapa um helgina. „Samkvæmt áætl- un verður margmenni hér um helgina. Það verða til dæmis nokkur stór fjöl- skyldumót. Tjaldstæðið á Arnarstapa er með salemis og snyrtiaðstöðu. Nóttin kostar 800 krónur fyrir 12 ára og eldri en rafmagn er ekki í boði. ■ Hvað á að gera um helgina? „Ég er akkúrat núna staddur með pensil í hendi og er að mála íbúðina mína,” segir Gísli Galdur Þorgeirsson tónlistarmaður. „Ég spila á Sirkusi um helgina en ætla einnig, ásamt nokkmm vinum mínum, að halda flóamarkað sem verð- ur á Laugaveginum, rétt við Kjörgarð. Á sunnudaginn væri ég svo alveg til í að sjá nýju Batman-myndina." Hljómsveit Gísla, „Trabant", heldur i tónleikaferð til Englands á næstu misserum og stendur undirbúningur þeirrar ferðar nú yfir. Skemmtilegar bílferðir I neyð í bílnum þarf líka að vera plastpoki undir msl, sjúkrakassi, eldhúsbréf, snarl og vatn. Bílaleikir Það em til alls kyns bílaleikir. Til að mynda getur hver manneskja í bíln- um valið sér ákveðinn bílalit og sá vinnur sem sér flesta bíla með þeim lit. Einnig getur hver og einn valið sér staf og svo reynt að finna hluti sem byrja á þeim staf. Það er alltaf gaman að ferðast í bíl en einstaka sinnum getur myndast pirringur og þá kannski einna helst hjá yngstu kynslóðinni. Ef ferðin er vel und- irbúin er hægt að koma í veg fýrir pirring og ferðin verður öll skemmtilegri. Stoppa reglulega Stoppið á tveggja tíma fresti. Full- orðnir fá tækifæri til að teygja úr sér og krakkamir geta hlaupið um. Skemmtilegur poki Búið til poka sem hvert barn fær. í pokanum gæti til dæmis verið trélit- ir, skæri, bækur, pappír, límmiðar, fingurbrúður og spil. Notið ímynd- unaraflið en takið tillit til aldurs og fæmi. Tryllt Þeir sem eru í bænum um helgina geta skellt sér á listasýninginu „Welove", sem hefst í Nýlistasafn- inu laugardaginn 2. júlí kl. 16.00. „Welove" er hópur erlendra og ís- lenskra listamanna, sem kemur saman á íslandi í nafni vinátt- unnar til að lifa, skapa og elska. Hópurinn hefur dvalið síðustu viku á Seyðisfirði og mun vinna úr því sem þau fundu þar, jafnt sem önnur áhrifum, eins og fant- asíu, vináttu og pallíettudrauga. í hópnum eru bæði villtir nátt- úmunnendur og tryllt partídýr. Listamennirnir eru Tammo Rist, David Schumm, Piotr Wolf, Jan Molzberger, Lisa c.b. Lie, Voin de Voin, Joseph Marzolla, Julie Coutureau, Berglind Ágústsdótt- ir og Ásgrímur Már Friðriksson. Innan hópsins er gjömingahóp- urinn „Dreamachine" sem mun flytja uppákomu á opnuninni. Sýningin stendur til 24. júlí. Utsalan í fullum gangi! Nýhýtavegi 12 * 200 Kópavogi Sími 554 4433 Opnunartími mán - föst. 10-18 laugardaga 10-16

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.