blaðið - 29.07.2005, Síða 15
blaðið FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005
ÁLIT I 15
Skattakrumlan
seilist of langt
HHætta er á að mörg-
um bregði í brún
þegar þeir opna
skattseðil sinn á
næstu dögum, því
fólk mun sitja uppi
Jóhanna með verulegar
sigurðardóttir skattahækkanir og
............... skerðingu á bótum
vegna hækkunar á
fasteignamati.
Fasteignaeigendur blóðmjólk-
aðir af ríki og sveitarfélögum
Veruleg skerðing verður á vaxtabót-
um bæði vegna þeirra skerðinga sem
ríkisstjórnin beitti sér fyrir með lög-
um á tveimur síðustu þingum og
síðan vegna gífurlegrar hækkunar
á fasteignamati. Þannig voru vaxta-
bætur skertar með lagabreytingum
um 6oo milljónir á s.l. ári og munu í
ár skerðast um 300 milljónir kr. eða
alls um 900 milljónir. Bara þessar
skerðingar einar og sér hafa skert
og munu skerða vaxtabætur nú
hjá fjölda einstaklinga um tugþús-
undir króna. Því til viðbótar hafa
vaxtabætur verið að skerðast vegna
gífurlegra hækkana á fasteignamati,
en fasteignamat á íbúðarhúsnæði
hækkað um 18% á s.l. ári og hefur í
heild hækkað um tæplega 67% á fjór-
um árum frá árinu 2000-2004. Auk
þess munu skattgreiðendur sjá veru-
lega hækkun á eignaskatti á skatt-
seðli sínum vegna hækkunar á fast-
eignamatinu, auk þess sem hækkun
fasteignamatsins mun enn auka á
tekjur ríkissjóðs af stimpilgjaldi
vegna íbúðarkaupa. Því til viðbótar
hirða svo sveitarfélögin til sín veru-
lega hækkun á fasteignagjöldum
vegna þessa.
Komið aftan að fólki
Það er auðvitað fullkomlega óeðli-
legt að ríkissjóður eða sveitarfélög
skuli hagnast um fúlgur fjár af
hækkun fasteignamats. Hefði auð-
vitað verið eðlilegt að fríeignamörk-
in í eignaskatti hefði hækkað vegna
hækkunar á fasteignamati, skerðing-
armörkum vaxtabóta hefði átt að
breyta og fasteignagjöld lækkuð til
að áhrifin af hækkun fasteignamats
komi ekki fram í skattahækkunum
og skerðingum á vaxtabótum. Sam-
kvæmt fjárlögum ársins í ár og nið-
urstöðu álagningar á eignaskatti
einstaklinga tekur ríkissjóður til
sín um 550 milljónum meira í eigna-
skatt en fjárlög gerðu ráð fyrir ekki
síst vegna hækkunar á fasteignamat-
inu. Gróðinn í ríkissjóði af hækkun
fasteignamats er m.a. fenginn með
verulegri skerðingu á vaxtabótum
þeirra sem ekki hafa staðið í nein-
um fasteignaviðskiptum að und-
anförnu, en sitja uppi með verri
vaxtakjör en þeir sem átt hafa í við-
skiptum eftir að skriðan fór af stað
á fasteignamarkaðnum fyrir um ári
síðan. Allt þetta heitir að koma aft-
an að fólki þegar það situr uppi með
verulegar skattahækkanir og skerð-
ingu á bótum vegna hækkunar á fast-
eignamati. Ríki og sveitarfélög ættu
að sjá sóma sinn í að leiðrétta þetta
og skila aftur þessum fjármunum,
því þarna hefur skattkrumla hins
opinbera seilst of langt og haft fé
með afar óeðlilegum hætti af skatt-
greiðendum.
Jóhanna Sigurðardóttir
www.althingi.is
Mangó pizza og grill í Grafarvogi býöur Grafarvogsbúum og nærsveitungum uppá
ekta ameriskan brunsh á sunnudögum á milli kl 11:00 - 15:00
Hrærð egg, beikon, pyisur, og baunir, frábær ieið tii að
hefja sunnudaginn. Þetta er skemmtileg nýbreytni í veitingahúsaflóruna
hér í borg, þó þessi staður sé ekki í miðbænum, þá er hann gríðalega vinsæll, enda
frábært að koma á þennan stað, því þjónustan er í senn góð og stemningin
mögnuð, það
gjörsamlega Ijómar af starfsfólkinu.
Fjölbreytileikinn á Mangó er mikill, því að þar er einnig boðið uppá td. Ekta eld-
bakaðar pizzur, hádegishlaðborð, grillhlaðborð, fiskirétti ofl.
Því má segja með sanni að Mangó er sannkallað gersemi sem fólk má ekki láta
fram hjá sér fara.
Verð leikjatölvu með 1 Q Q
einu spili aðeins I ✓ /V"
£sso
Þjðlfaðu hetjuna þína og kepptu við aðra
Hverri leikjatölvu fylgir rafrœnt spilakort með
einni af hetjunum úr heimi Tims. Þú þarft að
þjólfa upp hetjuna með því að gefa henni að
borða, œfa hana og hvíla, en það er gert með
því að spila stutta leiki. Þegar því er lokið,
geturðu farið að keppa við aðra.
Leikurinn snýst um að gera hetjuna að meistara
- að byggja upp heilsustig hennar þannig að
hún verði hreystin uppmóluð. Á bak við
heilsustigin eru þrír þœttir; hraði, kraftar og
töfrar. Þessa þœtti þarf alla að byggja upp með
því að skora ó aðra í keppni, skipta við þó ó
einhverjum eiginleikanna þriggja eða eiga við
þó viðskipti um þó.
Afbragðs afþreying fyrir krakkana á ferðalögum
ORMSSON
SÍOUMULA 9 - SMÁRAUND
ll«. Þfða'a£L
snlðugl og ödyrt