blaðið - 29.07.2005, Blaðsíða 16
16 I VEIÐI
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 blaöiö
Straumarnir:
200 laxar
komnir á land
Ingimundur Bergson á urriðasvæðinu í Laxá Þingeyjarssýslu en góð veiði hefur
verið á svæðinu.
„Það eru komnir 200 laxar í Straum-
unum og það hefur verið allt í lagi
þar, veiðimenn hafa fengið góða
veiði,“ sagði Þorkell Fjeldsted í Ferju-
koti, er við spurðum um stöðuna á
svæðinu.
„Á eyrunum fyrir ofan hjá mér
veiddi veiðimaður fyrir nokkrum
dögum 12 sjóbirtinga en veiðin er öll
að komast af stað þarna. Fiskurinn
er líka farinn að gefa sig í síkjunum.
Það eru alltaf að koma veiðimenn
hingað og skoða veiðisafnið hjá mér
hérna í Ferjukoti við Hvítá. I fyrra-
kvöld komu hingað þrír Skotar til að
skoða og fannst aðstæður góðar, og
gömlu veiðistangirnar sérstaklega
flottar. Þeir voru að veiða í Grímsá í
Borgarfirðisagði Þorkell ennfrem-
ur.
Margir veiðimenn hafa lagt leið
sina að Ferjukoti til að skoða gamla
tímann við ána, þegar netaveiði var
stunduð að kappi.
Gamlir munir um gamla tímann
eru til, og það er merkilegt að skoða
þá þegar veiðimenn eiga leið þarna
um svæðið.
BÁTALE'ca
Reynisvatn er mjög vinsælt hjá veiðimönnum enda nóg af fiski
í vatninu og sjaidgæft að fólk fari tómhent heim. í vatninu er
aðallega regnbogasilungur en einnig bleikja. Hægt er að leigja
stangir og báta og er aðstaðan tilvalin fyrir starfsmannahópa
sem og veislur af ýmsu tagi. Á staðnum er veitingasala, fjöldi
grilla, innisalur og útipallar. 561 0752 og 693 7101
Eitt kort /EIÐIKORTIÐ
2Q vatnasvæði w^m
< 2 0 0 5
Eldislaxinn
Kominn til að vera
SportvörugerSln hf..
Skipfiolt 3. s. 562 H3«3.
Laxinn sem veiddist í Breið-
dalsá fyrir skömmu er ekki
sá eini sem hefur veiðst í
veiðiánum fyrir austan. Veiðimenn
sem veiddu fiskinn fóru með hann
upp á Veiðimálastofnun og þar kom
sannleikurinn í ljós. Eldislax hefur
áður veiðst í veiðiánum en það hefur
ekki verið talað hátt um hann, þegar
laxarnir af norskum stofni sluppu, í
Norðfirði. Þá veiddust laxar í Breið-
dalsá, Selá og Hofsá. Áhyggjur
veiðimanna eru miklar, eldislax er
enginn fögnuður fyrir veiðimenn í
veiðiárnar.
Margar ætla að veiða
Það ætla margir að renna fyrir fisk
um helgina, en hægt er að komast í
veiði fyrir lítið og veiðivonin er tölu-
verð. Hægt er að renna fyrir fisk í
Meðalfellsvatni, en veiðileyfi eru
seld í Kaffi Kjós og hafa veiðimenn
verið að fá laxa í vatninu.
Út á Mýrum er hægt að renna
fyrir fisk í vötn eins og Langavatn,
Hítarvatn og Hlíðarvatn, en veiði-
menn sem voru í Hlíðarvatni fyrir
skömmu veiddu vel af urriða og
bleikjum.
Vatnasvæði Lýsu stendur alltaf
fyrir sínu en veiðimenn sem voru
þar fyrir skömmu, veiddu vel af laxi.
Töluvert hefur víst veiðst af laxi á
svæðinu. Það er Laxá sem selur veiði-
leyfi á Vatnasvæði Lýsu.
Sérfræðlngar
i flucjuveiði
Nælum stangir,
splæsum ifnur
og setjum upp.
IUI
t 1
Vöðluviðgerðir ■ vöðluleiga
Sérhœfð. viðurkennd GoreTex® þjónusta
VEIÐI
GunnarBender
I Vatnsdalsá í Vatnsfirði er gam-
an að renna fyrir fisk en laxveiði hef-
ur nú verið leyfð í ánni aftur eftir
nokkurra ára hlé. Hægt er að veiða
silunga í vatninu.
Já það er víða hægt að renna fyr-
ir fisk, veiðileyfin eru ódýr og veiði-
vonin er mikil, 2000-3000 króna
veiðileyfi er vel sloppið. Hægt er að
kaupa Veiðikortið fyrir 5000 kr. og
renna fyrir fisk í yfir 20 veiðivötn-
um. Margir hafa tryggt sér Veiði-
kortið fyrir helgina.
Stuttar fréttir.
Það er ekki möguleiki að fá veiði-
leyfi i Elliðaárnar, hvað þá Korpu,
fyrr en í ágúst. Veiðin hefur verið
góð i ánum og í Elliðavatni er laxinn
byrjaður að veiðast í vatninu. Ungur
veiðimaður veiddi fyrsta laxinn í
vatninu við brúna við bæinn Elliða-
vatn.
Það er hörkuholl veiðimanna að
veiða í Eyjafjarðará en það eru Egg-
ert Skúlason og Bjarni Hafþór Helga-
son og bræðurnir Stefán og Gylfi
Kristjánssynir. Ekki hefur frést af
aflabrögðum hjá þeim félögum en
veiðin hefur glæðst verulega í ánni
síðustu daga. Mjög líklegt er að flug-
urnar hans Gylfa verði reyndar eins
og Mýsla og Krókur.
Tailwater og Shakespeare vöðlur og vöðluskór
Snowbee Max-4 Camo vöðlur - Camo fatnaður frö Deben
Scott flugustangir - Marryat fluguhjól
Scientific Anglers flugulínur - Maðkar - Flugur
Lítið inn, úrvalið er meira en þig grunar!
1 J. Vilhjólmsson ehf.
5 Dunhaga 18.107 Reykjavík
; Sfml: 561-1950
| J.vllhjalmsson@byssa.ls
2 www.byssa.ls