blaðið - 29.07.2005, Side 24

blaðið - 29.07.2005, Side 24
24 I TÍSKA FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 blaöiö Versace Vandevorst Stella McCartney Balenciaga Ralph Lauren Svartur ábertmdi þegar hawsta tekur - svarti liturinn heldur velli og verður enn vinsœlli Tíska hvers tíma er margslungin og nýjar stefnur líta dagsins ljós í hvívetna. Fjölbreytileikinn hefur verið í fyrirrúmi undanfarið og fá eru tískuslysin þar sem allt er í raun leyfilegt. Fjölbreytni verður vonandi áfram að einhverju leyti Ann Demeulemeester en ef fram fer sem horfir verður svarti liturinn hvað vinsælastur þegar hausta tekur. Mörgum kann að þykja undar- legt að talað sé um svart sem kom- andi aðallit, þar sem hann hefur alltaf haldið velli, en nú vilja Celine margir hönnuðir meina að glitr- andi og skærir litir láti í minni pokann fyrir svörtum lit. Of mik- ið skraut má hvað úr hverju fara fyrir bý og grípandi kynþokki verður í hávegum hafður. Svartar sveiflandi yfirhafnir, litlir kjólar Mendel og galakjólar verða áberandi, þó svo að mörgum þyki nú við hæfi að lífga aðeins upp á klæðnaðinn með smávegis lit. Það er því um að gera að hrista rykið af svörtu kjólunum, kápunum og peysun- um sem lítið hafa verið notaðar Valentino undanfarna mánuði og setja sam- an glæsilegt, svart og þokkafullt ,dress“. halldora@vbl.is Gucci Rokk og rósir á Laugavegi - ný ogglœsileg „second hand“ verslun Sara Oddsdóttir, verslunarstjóri i Rokk og rósir ásamt Asu Ottesen, en þær kappkosta aó veita landanum sem besta þjónustu. Blaöiö/Gúndi Wýverið opnaði verslun sem ber hið skemmtilega nafn „Rokk og rósir“ að Laugavegi 32 í Reykjavík. Verslunin, sem vakið hefur mikla athygli, býður upp á úrval not- aðra flíka auk þess að selja ýmiskonar aukahluti í öllum stærðum og gerðum sem setja punktinn yfir i-ið. Búðin var opnuð síðastliðinn mið- vikudag en þá var haldið opnunarteiti við góðar undirtektir gesta og gang- andi. „Þetta var rosa gaman, það var alveg fullt út úr dyrum og fólk verslaði alveg þvílíkt," segir Sara Oddsdóttir, verslunarstjóri. Hún segir viðbrögð fólks við nýju versluninni vera framar öllum vonum og greinilegt sé að íslend- ingar hafi mikinn áhuga á notuðum klæðnaði. „Þetta er „second hand“ búð, en við reynum samt sem áður að vera með fáguð föt. Þau eru vönduð og kannski frekar kvenleg - fyrir stelpur og konur sem vita hvað þær vilja og hafa sinn stfl. Hérna færðu þér kjól og skó og getur gengið út frá því að enginn annar eigi slíkt hið sama,“ segir hún og bætir því við að ásamt því að vera með mikið af fínum klæðnaði sé einnig hægt að fá hversdagslegan klæðnað. Rokk og rósir bjóða upp á allt það sem fylgjendum tískunnar vantar. í búðinni er skemmtilegt samansafn af pelsum, kápum, skarti, skóm, beltum, töskum og fleiri aukahlutum. Lagt er upp með að hafa fallegar og fágaðar vör- ur án þess að viðkomandi þurfi að vera of stífur eða uppstrílaður. „Svo náttúru- lega erum við með alveg frábæra þjón- ustu,“ segir Sara að lokum og hlær. halldora@vbl.is Aukahlutir einniff í svörtu Aukahlutir hvers konar verða einnig áberandi í svarta litn- um en töskur, hálsmen, eyrnalokkar, armböndsem ogskór bera þess merki að svarti liturinn cetli að ryðja sér ennfrek- ar til rúms á nœstunni. Þess ber þó að gæta að svartur get- ur orðið þungur efenginn annar litur er hafður með ogþví óskandi að konurjafnt sem karlar leyfi hugmyndafluginu að njóta sín og brjóta upp klœðaburðinn með litum.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.