blaðið - 17.08.2005, Page 37
dagskrái37
blaöiö MIÐVÍk'tJDAGUR Í7. ÁGUST 2805
■ Fjölmiðlar
Frasier og
sjálfstraustið
Það er löngu tímabært að skrifa um
Frasier þótt þættir hans séu ekki
sýndir lengur. Ekkert getur komið
í stað Frasier í hjarta mínu, það er
að segja þegar að sjónvarpsefni kem-
ur. Frasier er reyndar maður sem
ég myndi aldrei þola nálægt mér í
raunveruleikanum en í sjónvarpi er
hann hreint ómótstæðilegur. Við átt-
um saman vikulegan hálftíma einu
sinni (viku í mörg ár. Nú eru þau ár
liðin en ég hugsa oft til hans.
Frasier birtist reyndar enn á skján-
um í endursýndum Staupasteinsþátt-
um á Skjá einum. En þar er hann
ekki eins og Frasier minn. f Staupa-
steini birtist ungur og grannur Frasi-
er sem fær sitt rými og stendur sig
ágætlega en nýtur sín samt ekki til
fulls vegna þess að leikarinn, Kels-
ey Grammer, hefur ekki nægt sjálfs-
traust. í Frasier þáttunum mætti
hann hins vegar til leiks fullur af
sjálfstrausti og fyllti út í skjáinn.
í lífinu skiptir sjálfstraust miklu.
Kelsey Grammer varð miklu betri
leikari með árunum vegna þess að
hann öðlaðist sjálfstraust. Einhverj-
ir myndu kannski halda því fram að
handritshöfundar Frasier þáttanna
hefðu gert stjörnu úr Grammer.
Ekki ætla ég að gera lítið úr því en
ég held samt að sjálfstraustið hafi
haft sitt að segja.
Ég hef margoft séð svipuð dæmi
í lífinu og ekki síst þegar listamenn
eiga í hlut. Þeir fá tækifæri og góðar
viðtökur og byrja að blómstra. Svo
eru önnur dæmi um gríðarlegt hæfi-
21:00-23:00 23:00-00:00 00:00-6:00
22.00 Tíufréttir 22.20 Formúlukvöld 22.45 Medlci-ættln - Guöfeður endurreisnarinnar(1:4) (The Medici: Godfathers of the Renaissance) Bandarlskur heimildarmyndaflokkur um hina voldugu Medici-ætt 1 Flórens á öldum áður. Medici- menn ráku stærsta banka Evrópu og voru traustir bakhjarlar og velgjörðarmenn margra af fremstu listamönnum sinnar tlðar. (e) 23.40 Eldlfnan (6:13) (Line of Fire) Bandarfskur myndaftokkur um starfsmenn alríkislögreglunnar i Richmond i Viriginíufylki og baráttu þeirra við glæpaforingja. Meðal leikenda eru Leslie Bibb, Anson Mount, Lesiie Hope, Jeffrey D. Sams, Julie Ann Emery, Brlan Goodman, Michael Irby og David Paymer. Atriði i þáttunum eru ekki við hæfi barna. (e) 00.25 Kastljósiö Endursýndur þáttur frá því fyrr um kvöldiö. 00.50 Dagskrárlok
21.30 Strong Medicine 3 (16:22) (Samkvæmt læknisráöi 3) Vönduð þáttaröð um tvo ólíka en kraftmikla kvenlækna sem berjast fyrir bættri heilsu kynsystra sinna. Hjá læknunum Dönu og Lu rikir engin lognmolla en til þeirra leita konur úr öllum þjóðfélagshópum. Whoopi Goldberg er einn framlelðenda Strong Medicine. 22.15 Oprah Winfrey (Exduslve: Brooke Shields's Struggle For Sanlty) 23.00 Kóngur um stund (12:16) Hestamenn eru þekktir fyrir að vera skemmtllegt og lifsglatt fólk og hér fáum við að kynnast mörgum þeirra, landsþekktum sem lltt þekktum. Umsjónarmaður er Brynja Þorgeirsdóttir og hún fjallar um allar hliðar hestamennskunnar f þætti sinum. Það verða þvi óvæntar uþpákomur og sumarstemning á Stöð 2 (allt sumar. 23.25 Playing Mona Lisa (Einsog Mona Lisa) 01.00 Mile High (16:26) (Háloftaklúbburinn 2) Velkomin aftur um borð hjá lággjaldaflugfélaginu Fresh. Bönnuð börnum. 01.45 Medical Investigations (18:20) (Læknagengiö) 02.25 Fréttir og Island f dag Fréttir og Island f dag endursýnt frá þvl fyrr 1 kvöld. 03.45 Island í bítið 05.25 Tónlistarmyndbönd frá PoppTíVf
21.00 Dr. Phil Sálfræðingurinn vinalegi Dr. Phil McGraw er mættur aftur á skjáinn. 22.00 Law&Order 22.45 JayLeno 23.30 CShMiami (e) Kona er drepin og bllnum hennar rænt. Lögreglan kemst að því að konan var sþilaflkill og kom fjölskyldufyrirtæki mannsins slns á hauslnn. 00.15 Cheers(e) Þátturinn var vinsælasti gamanþáttur 1BNA 7 ár í röð og fjöldi stórleikara prýddi þættina. 00.40 TheO.C. 01.20 TheLWord 02.05 Óstöövandl tónlist
21.00 Spurtaö leikslokum (e) Leikskipulag, leikkerfi, umdeild atvik og fallegustu mörkin eru skoðuð frá ýmsum hliðum og með nýjustu tækni. 22.00 Wigan -Chelsea frá 14.08. 00.00 Portsmouth - Tottenham frá 13.08. Leikur sem fram fór slðastliðinn laugardag. 02.00 Dagskrárlok
21.00 Rescue Me (8:13) (Inches) 21.45 Sjáðu 22.00 Kvöldþátturinn Beinskeyttur spjall- og skemmtiþáttur þar sem viðburðir dagsins eru hafðir aö háði og spotti. 22.45 David Letterman Góðir gestir koma (heimsókn og Paul Shaffer er á sínum stað. 23.35 Joan Of Arcadia (7:23) Táningsstelpan Joan er nýflutt til smábæjarins Arcadia þegar skrltnar uppákomur fara að henda hana. Þáttaröðin var tilnefnd til Emmy verðlauna auk þess sem hún hlaut Peoples Choice Award fyrir bestu dramaþættina. 00.25 Frlends 2 (14:24) (Vinir) (The One With The Prom Video) 00.50 Kvöidþátturlnn 01.35 Seinfeld 3 (The Letter)
um sfðustu helgi. 22.00 Olissport 22.20 Landsleikur f knattspyrnu (Króatía - Brasilía) 00.00 Landslelkur (knattspyrnu (Danmörk-England) 01.40 Bandarfska mótarööin f golfi (The International)
22.00 Fourplay (Ástin er óutreiknanleg) Rómantísk gamamynd þar sem samskipti kynjanna eru (brennidepli. Ben er handritshöfundur viö vinsælan sjónvarpsþátt í Bretlandi. Allen er framleiðandi þáttarins og kvæntur aðalleikkonunni, Carly. Fiona er förðunardaman en hún og Ben er bæði einhleyp Fólkiö vill gera góðan sjónvarpsþátt enn betri en það er erfitt þegar ástarmál þeirra eru komin í algjöra flækju. Bönnuð börnum. 00.00 Young Frankenstein (Hinn ungi Frankenstein) Óborganleg gamanmynd. Maltin gefur myndinni þrjár og hálfa stjörnu og segir hana eina albestu grlnmynd allra tlma. Aðalhlutverk: Gene Wilder, Peter éoyle, Marty Feldman, Madeline Kahn, Cloris Leachman,Teri Garr. Leikstjóri, Mel Brooks. 1974. 02.00 Celebrity (Fræga fóikið) Bönnuö bömum. 04.00 Fourplay (Ástln er óútreiknanleg) Bönnuð börnum.
leikafólk sem gæti gert svo margt en
gerir svo lítið vegna þess að það hef-
ur ekki næga trú á sjálfu sér. Skortur
á sjálfstrausti getur því leikið marga
grátt. Menn verða hins vegar að
gæta sín á hrokanum. Annars verða
þeir alveg eins og fulltrúar R-listans
í borginni - og það er ekki ákjósan-
legt hlutskipti.
kolbrun@vbl.is
bmaaugiysmgar
510-3737
Augiysingaaeita
510-3744
blaðMk,
Veislumánuóur
PEPSI
PfiPINOS
Nú býöur Papinos til veislu allan ágúst mánuó
899 kr 1000 kr
Stór
með
Stor
með
pizza
pizza
áleggstegundum
áleggstegundum
Brauð
stangir
°g
sosa
99^
sími: 59 12345
Papinos Núpalind 1 Kópavogi
Papinos Reykjavíkurvegi 62 Hfj
Opid alla 16-22
PflPINOS
p i z z n
■ Af netinu
Ég verð bara að segja nokkur orð
um nýjasta raunveruleikafirringa-
þáttinn sem hóf göngu sína á Stöð
tvö í gær. Extreme makeover home
edition í upphafi hélt ég að hér væri
að hefjast einhver skelfilegur þáttur
þar sem óheppnir ammríkanar yrðu
teknir í lýtaaðgerð, heima hjá sér. En
nei, til allrar guðs lukku var það nú
ekki raunin. Hér var í raun á ferð
ansi hreint góður þáttur, fjölskyldan
rekin til Bahamas í eina viku á með-
an 7 léttgeggjaðir hönnuðir rifu hús-
ið nánast til grunna og endurbyggðu
það með 50 manna verktakaher. Flott
hugmynd og skemmtilega uppsett.
http://kaupfelag.blogspot.com/
Sirkus er ný sjónvarpsstöð og ég verð
að viðurkenna að ég hef gaman af
henni. Mér finnst nefnilega Seinfeld
skemmtilegur, Vinir ánægjulegir
og Guðmundur Steingríms sniðug-
ur. Að vísu voru þessir Kvöldþættir
skelfilegir til að byrja með, en þeir
fara ört skánandi. David Letterman
er meira að segja nett glúrinn stund-
um. Það eina leiðinlega (þessu er að
móttökuskilyrðin á þessari sjónvarps-
stöð hérna hjá mér eru afspyrnu slök
og mun verri eftir að ég fékk ADSL-
sjónvarpið frá Símanum. Það er eins
og “undratækið” (eins og Kári kallar
það) trufli þegar lélega loftnetsteng-
ingu. Á móti kemur að allar sjón-
varpsstöðvarnar þar eru náttúrulega
afar skarpar og ég er búinn að hanga
yfir Discovery og BBCPrime síðustu
daga. Enda hef ég lítið gaman af góðu
veðri miðað við sjónvarpið.
http://danielfreyr.blogspot.com
Ljótu andarungarnir? Ég var að
horfa á The Swan á Skjá einum sem
ég horfi nánast aldrei á. Manneskjur
öðlast langþráð sjálfsálit á 3 mánuð-
um. Gott mál að fá aukið sjálfsálit
en af hverju að breyta öllum eins?
Beinna nef, sléttur magi, ljóst hár,
stór brjóst, hvítar tennur. Allt til að
nálgast það að líta út eins og forsíð-
urnar á glanstímaritunum, jafnvel
dagatölunum á veggjunum á bílaverk-
stæðunum. Lýtalæknirinn (sem var
sjálfur með kinnarnar á bakvið eyr-
un og fast bros vegna sömu aðgerð-
ar) stráði salti í sár þátttakenda með
því að segja að þær væru með skakkt
nef, hangandi andlit, sokkin augu,
bauga Sveins og litu út fyrir að vera
að minnsta kosti fertugar. Halló! Svo
fullyrti jólasnjóhvíthærði kventann-
læknirinn með góm í sama lit að þær
væru með tennur eins og kandís eða
gamalt grindverk og að þær yrðu sko
ekki ánægðar eða frambærilegar fyrr
en þær væru komnar með svona krón-
ur og brosti eins og kóreskur túristi
við Jökulsárlón. Sorrí en mér finnst
þetta vera svo röng skilaboð. Þáttur-
inn í kvöld var að minnsta kosti með
virkilega myndarlegum, venjulegum
konum um þrítugt með falleg augu
og bros og menn sem elskuðu þær
eins og þær voru. Það sem mér fannst
aðallega að þeim var sjálfsmyndin
því þær kenndu gömlum kærustum,
brottfluttum föður eða öðrum lífs-
förunautum um hvernig þeim leið
í dag. Það kom aldrei fram að þær
tækju ábyrgð á eigin lífi. Þær voru
þegar báðar á fullu í líkamsrækt, önn-
ur búin að missa 45 kg jafnt og þétt á
löngum tíma, þegar The Swan gengið
mætti eins og fulltrúar íslenskrar get-
spár til að tilkynna þeim gleðitíðind-
in um þátttökuréttinn og þær misstu
sig af gleði á hlaupabrautinni.
Ofangreindar ástæður fyrir öllum
breytingunum eru að sjálfsögðu
til þess að selja þættina en svona í
Reykjavíkuralvörunni - þá finnst
mér raunhæfara að taka svona makeo
ver á margfalt minni hraða, sleppa
lýtalækninum, stóru brjóstunum og
hvíta hárinu, laga bara holurnar hjá
tannsa, fara í gymið, eiga áhugamál,
rækta vinaböndin og tjá sig hjá sér-
fræðingum ef svo ber undir.
http://www.olgabjort.blogspot.com/