blaðið - 14.09.2005, Qupperneq 4
4IFRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 blaöiö
GSM staðsetningarkerfi
Deilt um kostnað
Deilur standa milli símafyrirtœkjanna um hver skuli bera kostnað afþví að tengja Og
Vodafone við kerfi sem gerir Neyðarlínunni kleift að staðsetja þann sem hringir úrfar-
síma í neyðartilfellum
Síminn og Neyðarlínan hafa verið
í samstarfi um rekstur kerfis sem
gerir það mögulegt að staðsetja
99.................
„Atburðir síðustu daga
hljóta að leiða það
i Ijós að við þurfum
að leysa þetta mál."
þann sem hringir í Neyðarlínuna úr
farsíma með nokkurri nákvæmni
síðan árið 2002. Að sögn upplýsinga-
fulltrúa Símans hefur Og Vodafone
aldrei óskað formlega eftir því að fá
aðgang að þessari þjónustu. Aðlaga
þarf kerfið svo Og Vodafone geti
tengst því og standa deilur um hver
skuli bera kostnað sem af því hlýst.
Ósanngjarnt að
Og Vodafone beri kostnaðinn
Árni Pétur Jónsson forstjóri Og Vod-
afone segir að viðræður hafi staðið á
milli þessara aðila af og til í gegnum
tíðina. „Neyðarlínan er með samn-
ing við Símann og okkur finnst eðli-
legast að þeir geri samning beint við
okkur líka. Með þvi fengist aukið
öryggi, til dæmis ef annað kerfið
bilaði. Neyðarlínan hefur hinsvegar
valið að vera hjá Símanum sem hef-
ur þýtt að við höfum þurft að senda
okkar merki til Símans. Það höfum
við gert um nokkurt skeið. Síminn
er hins vegar þannig í stakk búinn
að hann getur ekki sent merki okk-
ar áfram til Neyðarlínunnar án þess
að fara í ákveðna tæknivinnu
hjá sér. Þeir vilja að
við greiðum fyrir hana sem okkur
finnst mjög ósanngjarnt. Við erum
búnir að vinna okkar tæknihluta
og sendum merkið frá okkur, og að
beiðni Neyðarlínunnar erum við að
senda merkið áfram til Símans. Við
teljum að það sé ekki á okkar könnu
að sjá til þess að Síminn geti svo sent
það áfrarn," segir Árni Pétur en bæt-
ir við að atburðir síðustu daga hljóti
að leiða það í ljós að fyrirtækin þurfi
að setjast niður og leysa þetta mál.
Sóknargjöld
fyrir einn og
hálfan milljarð
Siðmennt heldurþvífram að Þjóð-
kirkjan vilji hcekka þau um 50%.
Siðmennt, félag siðrænna húman-
ista leggst alfarið gegn þeim tillög-
um Þjóðkirkjunnar að hækka beri
sóknargjöld. Félagið hvetur stjórn-
völd til að hafna öllum slíkum tillög-
um sem það kallar óréttmætar álögur
á almenning í landinú. í tilkynningu
frá félaginu segir að Þjóðkirkjan fái
3 milljarða frá ríkinu á ári til rekstr-
ar og þar af séu 1,5 milljarður í formi
sóknargjalda. Ennfremur segir að
krafa kirkjunnar sé sú að upphæðin
sem fæst með sóknargjöldum hækki
um 50%. Siðmennt telur það ekki í
verkahring stjórnvalda að sjá um að
innheimta sóknargjöld, fremur en
önnur félagsgjöld, og vill félagið að al-
hann
g r e i ð i
slíkan skatt
eða ekki.
Kirkjan kannast ekki
við þessar tillögur
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttur
verkefnastjóri upplýsingasviðs segir
menningur hafi frjálst val um hvort að tilkynning Siðmenntar byggi á
hafi
verið
farið
fram á að
sú skerðing
sem þegar hafi
verið gerð á sóknar-
gjöldum um 7% verði leið-
rétt. Fulltrúar Prófastdæmanna í
Reykjavík hafi farið á fund ráðherra
til að ræða það málefni. Það sé því
enginn fótur fyrir því að Þjóðkirkjan
hafi krafist hækkunar sóknargjalda
upp á 50%. ■
Beintflug frá Keflavík til hinna fögru miðaldaborgar
Tallinn í Eistlandi
Innifalið I verði: Flug, 4 stjörnu hótel m/morgunmat, akstur til og frá flugvelli,
fslensk fararstjórn og skattar.
Verð 49.900 kr.
Frá Akureyri Frá Keflavík
5.-9. október uppselt 12.-16.október uppselt
19.-23. október uppselt 28-31.októberaukaferð laussæti
26.-30. október uppselt
Tallinn hefur breyst f nútfmaborg með alþjóðlegu yfirbragði á sfðustu 10 árum.
Þrátt fyrir það eru íbúarnir stoltastir af gamla bæjarhlutanum. Þar eru götur steini
lagðar og við þær standa vel varðveittar stórkostlegar byggingar frá 11 -15 öld. Þá
setja markaðirnir mikinn svip á borgina. Tallinn hefur verið bætt við á heimslista
UNESCO sem ein best varðveitta miðaldarborg N-Evrópu. Menningarlíf íTalllinn
stendur með miklum blóma og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. (Tallinn er
hægt að gera góð kaup. Þar er ódýrt að versla og matur á veitingahúsum er ódýr.
Þá er, næturlífiö fjörugt, barir, skemmtistaðir og kaffihús á hverju götuhorni.
Tallinn er borg sem fangar, borg sem skilur eitthvað eftir, löngu eftir að komið er
heim.
Spennandi skoðunarferðir I boði með fslenskri fararstjórn
Trans-Atlantic
Sfmi 5888900 www.transatlantic.is
Mikið úrval af brjóstargjafa-
og meðgönguundirfatnaði í
mörgum litum
Einnig erum við með hinn
vinsæla Carters ungbarnafatnað
Hamraborg 7 • Kópavogi • Sími 564 1451
www.modurast.is
Gríðarleg
fjölgun há-
skólanema
Nemendum á háskólastigi
hefúr íjölgað hratt hér á landi
undanfarin ár og á árunum
1995-2003 íjölgaði háskólanem-
um hér á landi um 83%. Þetta
kemur fram í riti sem OECD
hefur gefið út um menntun í 30
aðildarríkjum stofnunarinnar.
Þar kemur fram að menntun-
arstig fer hækkandi í flestum
OECD löndunum og er ísland
engin undantekning þar á. Ef
sama innritunarhlutfall helst,
munu 83% ungs fólks stunda
fræðilegt háskólanám. Þó kem-
ur fram að innritunarhlutfall
á íslandi sé óvenjuhátt sem
skýrist að hluta til af fjölda
eldri háskólanema. Þetta háa
hlutfaU muni því ekki haldast
til lengdar þar sem fjöldi eldra
fólks sem aldrei hefur stundað
háskólanám er takmarkaður.
fsland í efsta sæti í útgjöld-
um til menntamála
Heildarútgjöld til menntamála
námu 7,4% af vergri lands-
framleiðslu árið 2002 og er
ísland þar með komið í efsta
sæti hvað þessi útgjöld varðar.
Bandaríkin koma næst á eftir.
Meðaltal OECD ríkjanna er
5,8%. Fjármögnun menntunar
er að breytast og þannig treysta
margir háskólar nú meira á
einkaíjármagn en áður. í ritinu
er einnig bent á þá staðreynd
að útgjöld og góður árang-
ur nemenda fari ekki alltaf
saman. Þannig eyða Finnar
til dæmis nálægt meðaltali
til grunnskólans en þeir hafa
jafnan komið einna best út í
PISA rannsókninni sem fram-
kvæmd er á 15 ára nemendum.
Haldið
sofandi
Konan sem slasaðist illa í
bruna fyrir rúmum tveimur vik-
um liggur enn á gjörgæsludeild
Landspítala Háskólasjúkra-
húss í Fossvogi. Vakthafandi
sérffæðingur segir að kalla
megi ástand hennar óbreytt
þar sem henni er haldið
sofandi og í öndunarvél. ■