blaðið - 14.09.2005, Blaðsíða 24
24 I NEYTENDUR
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 blaöið
Einnota grein
lesist og hendist
Eg hef gaman af fallegum hlut-
um, rétt eins og hver annar.
Ég er alin upp á þeim tíma
sem ýmislegt smádót fór að verða
almenningseign, og börn áttu al-
mennt of mikið af dóti. Það breytti
því þó ekki að þegar kaupa átti dýr-
ari hluti til heimilisins, eins og raf-
tæki eða eldhústæki, var vand-
að til verksins og frekar keypt
aðeins dýrara því þá entist það
betur. Hugsunarhátturinn að
passa upp á hlutina sína, fara
vel með bækur, stoppa í sokka
því þá entust þeir lengur, og
fleira í þeim dúr, var í há-
vegum hafður, því það voru
hreinlega ekki til peningar
til að spandera aftur og aft-
ur í sömu hlutina. Þessi
hugsunarháttur er því
miður á hverfanda hveli
því að í dag er allt til í
ofgnótt. Neytandi dags-
ins í dag kaupir sér ekki
dýrari hluti vegna þess
að hann endist þá leng-
ur. Nei, hann kaupir sér
dýrari hluti, þrátt fyrir að
hann viti að hluturinn bili
eftir 5 ár, í allramesta lagi
8 ef hann er heppinn. Hlut-
ir sem framleiddir eru í
dag eru einfaldlega ekki
gerðir til að endast.
Tækin í ruslið
Hinn almenni neytandi í
dag er búinn að átta sig á
þessu, og í stað þess að búast við að
hluturinn endist og svekkja sig svo
þegar hann bilar, -allt of snemma,
er það alveg tilbúið til að kaupa
nýtt á fimm ára fresti. Neyslu-
Vfenjur fólks eru jafnframt farnar
að ganga út á það að fólk breyti
sífellt um innbú, hvort sem um
blómavasa, stofulampa eða
hljómtæki er að ræða. Fólk
sem byrjar að búa kaupir
gjarnan búslóðina í búð-
um eins og Góða hirð-
inum, sem selja notaða
hluti, en þeir eru þá fram-
leiddir á sjöunda, áttunda
eða í mesta lagi níunda
áratugnum. Það var í þá
gömlu góðu daga þegar
sjónvarpstækið eða stof-
ugræjurnar kostuðu
tvenn mánaðarlaun og
safnað var fyrir þeim
áður en keypt var. Svo
gengu þessi stofustáss
og stöðutákn í erfðir
til erfingjanna þegar
þeir fluttu að heim-
an, og þá var enn allt
í lagi með allt. 1 dag er
hægt að fá brauðrist,
myndbandstæki, DVD,
sjónvarp, ryksugu,
þvottavél og flest ann-
að sem hugurinn girn-
ist svo ódýrt, að það
hreinlega borgar sig
ekki að gera við gamla
dótið þegar það bilar.
y
Ruslahaugar nútímans eru
óðum að fyllast af hlutum sem gætu
með mjög litlum tilkostnaði þjónað
nýjum eigendum, en það nennir eng-
inn að gera við neitt því það kaupa
allir nýtt. Og fyrst við erum að tala
um ruslahauga eru þeir víst líka að
fyllast af EINNOTA bleyjum sem all-
ir nota í dag.
Hvað er einnota í dag?
Hugtakið einnota er fremur nýtil-
komið því áður fyrr datt engum í
hug að búa eitthvað til sem entist
bara í eitt skipti, hvílík sóun. Það
þótti ótrúleg tækninýjung þegar
sokkabuxur hættu að vera úr silki
og fóru að vera úr hinu nýja efni næl-
oni, og þóttu nælonsokkar eftirsótt
vara. Líftími nælonsokkabuxna er
brotabrot af líftíma silkisokkanna,
svo neytandinn tapaði heldur betur
á þessari nýjung. I dag kaupir fólk
iðulega einnota rafhlöður í stað
hleðslubattería, og meira að segja
er hægt að kaupa einnota rafhlöð-
ur í gsm-símann sinn. Síminn sjálf-
ur er líka svo gott sem einnota, því
farsímar eru gerðir til að endast í
mesta lagi í i ár. Rakvélar og -blöð,
sérstaklega þau sem ætluð eru fyrir
konur til að fjarlægja líkamshár, eru
líka einnota. Til eru einnota andlits-
þvottaklútar, afþurrkunarklútar,
tannburstar, augnlinsur, og ýmsar
einnota snyrtivörur. Mörg af þeim
leikföngum sem í boði eru fyrir börn
í dag eru nánast einnota, því plast-
dótið má ekki við miklu hnjaski áð-
ur en undan lætur og tárin streyma,
og þá er um að gera að vera fljótur út
í búð að kaupa nýtt. Þegar kemur að
matvöru er vinsælasta dæm-
ið um einnota vöru
poppkornspokar
fyrir örbylgju.
Það dettur eng-
um í hug að
poppa upp á
gamla mátann.
Nei, betra er að
setja tilbúinn poka
inn í örbylgjuofn og
þurfa ekkert að hafa fyr-
ir neinu. Meira að segja lítil
kók í gleri er nú orðin einnota,
og þá er fokið í flest skjól.
Skyndi- og einnotaæði
Ný og spennandi tækniundur skjóta
upp kollinum eins og gorkúlur í
hverjum mánuði og virðist einnota-
æði hafa gripið um sig hjá fólki.
Tækniframfarir, og minnkandi
þörf fólks á að hafa fyrir hlutunum
hraðar á þessari þróun frekar en
hitt, og í dag eru skyndi- og einnota
töfraorðin sem eiga að tryggja fólki
tíma til að sinna öðrum málum en
grunnþörfunum. Enginn efast um
að mikið er að gera hjá nútímamann-
inum, en ef til vill þurfum við líka
að hlúa að okkur sjálfum með því að
hætta að vera neytendur á hlaupum.
Við græðum ef til vill svolítinn tíma
með því að notast við skyndilausnir
í stað varanlegra rótgróinna aðferða,
sem dugðu ömmum okkar og öfum
vel, en við eyðum þeim tíma hvort
eð er fyrir framan sjónvarpið okkar.
Hættum nú öllu neyslusukkinu og
vöndum okkur við að vera til.
heida@vbl.is
www.toyota.is
RAV4 aukahlutapakki aö andvirði 185.000 kr. fylgir meö
Nú færð þú glæsilegan RAV4 með veglegum aukahlutapakka að andvirði
185.000 kr., heilsársdekk, dráttarbeisli, vindskeið, aurhlífar og krómgrind á
afturljós. Komdu, prófaðu RAV4 og upplifðu meira en þú hafðir látið þig
dreyma um. Þú gerir ekki betri kaup fyrir veturinn!
Verö frá 2.690.000 kr.
Mánaðarleg greiðsla frá 35.990 kr.*
Heilsársdekk
Krómgrind
á afturljós
Vindskeið
Aurhlífar
Dráttarbeisli
50% afsláttur af lántökugjaldi.
* m.v. 10% útborgun og 84 mánaða bílasamning hjá Glitni.
Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070
í samstarfi við
Glitnir TODAY TOMORROW TOYOTA