blaðið - 14.09.2005, Qupperneq 6
6 I FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 blaðiö
Steinn
Kárason í
5-6 sætið
Full ástæða til að hafa áhyggjur
Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags íslands, segir að-
stöðuleysi leiða til þess að menn stundi skotœfingar á ólöglegum
svœðum.
Landssvæði I Krýsuvfk sem skotáhugamenn hafa nýtt sér til æfinga án leyfis.
Steinn Kára-
son hefur
ákveðið að
gefa kost á sér
í 5-6 sætiá
lista Sjálfstæð-
isflokksins
í prófkjöri
vegna
borgarstjórnarkosninganna í
vor. í tilkynningu frá honum
segir: „Steinn er viðskipta- og
umhverfisstj órnunarfræðingur
sem margir þekkja úr út-
varps- og sjónvarpsþáttum um
garðyrkju og umhverfismál.“ ■
Nýr fram-
kvæmdastjóri
hjá Rauða
krossinum
Skortur er á æfingasvæðum fyrir
skotveiðimenn og áður en slíkt svæði
var opnað í Álfsnesi hafði engin að-
staða verið fyrir skyttur í Reykjavík
um langt skeið. Á mánudaginn birti
Blaðið frétt um að skotáhugamenn
stunduðu æfingar á svæði sem ekki
hefði verið gefið leyfi fyrir að nýtt
yrði til slíkra æfinga.
„Það er gríðarlega alvarlegt ef
menn eru að skjóta af rifflum á
svæðum í nálægð við byggð og það
ætti ekki að líðast“, segir Sigmar B.
Hauksson, formaður Skotveiðifélags
Islands. Hann telur að slíkar æfingar
séu þó ekki algengar en full ástæða
sé til að hafa áhyggjur af þessu, sér-
staklega ef menn eru að skjóta af
stórum rifflum.
Sigmar segir hálfgert ófremdar-
ástand hafa ríkt í þessum málum.
,Menn hafa verið að finna sér einhver
svæði til að æfa sig á. Sveitarfélögin
hafa ekki staðið sig nógu vel í þessu.
Það er fyrst núna sem við erum að fá
skotæfingasvæði í Reykjavík“, segir
Sigmar.
Líka óþrifnaður
Fyrir utan hættuna sem af þessu
skapast hafa skotmennirnir gengið
illa um svæðið og skilið eftir sig rusl.
Sigmar segir að fyrir utan einn og
einn slóða gangi skotveiðimenn yfir-
leitt vel um umhverfið. „Við höfum
það mottó að skilja ekkert eftir nema
sporin okkar. Við höfum verið með
átak í samvinnu við Olís í nokkur ár
um að menn hirði skothylki sin og
annarra á fjöllum uppi. Ástandið hef-
ur alveg gjörbreyst. Maður sér varla
tóm skothylki miðað við það sem áð-
ur var“, segir Sigmar B. Hauksson.a
Kristján Sturluson hefúr verið
ráðinn framkvæmdastjóri
Rauða kross Islands og tekur
hann við því starfi af Sigrúnu
Árnadóttur i lok október.
Sigrún hefur gegnt starfinu
síðasthðin 12 ár. Kristján hefur
frá árinu 2000 verið sjálboða-
liði í Kjósarsýsludeild Rauða
kross Islands, verið formaður
deildarinnar frá 2001 og setið í
stjórn Rauða kross íslands í 3 ár.|
Fellibylurinn Katrín
Islendingar styrkja Banda-
:::::::::: 30 milljónir
Ríkistjórn íslands ákvað í gær að
veita Bandaríkjamönnum fjárstuðn-
ing til enduruppbyggingar í þeim
fylkjum sem verst urðu úti þegar
fellibylurinn Katrín reið yfir. Sam-
þykkt var að verja hálfri milljón
dala til verkefnisins, eða um 31 millj-
ón íslenskra króna.
Einnig kemur fram í tilkynningu
forsætisráðuneytisins að sérstök
fjársöfnun sé hafin til stuðnings
fórnarlömbum fellibylsins undir for-
ystu tveggja fyrrverandi forseta, Bill
Clinton og George Bush eldri. Það fé
sem safnast mun verða notað til end-
uruppbyggingar í þeim ríkjum sem
verst urðu úti; Alabama, Louisiana
og Mississippi. ■
Islendingar leggja sitt af mörk-
um til stuðnings fórnarlamba
Katrínar
Komdu og taktu meö,
boröaðu á staönum
eða fáöu sent heim
Við sandum holm:
109,110,111,112,113
■ Rizzo: Poppcrono. laukur, svcppir, Tt-:’'- fenkur hvitlaukur, jalopano, sv pipar
Wf Naples: Skmka. popperone. svoppir, sv. óHfur, hvttlaukur. grænn pipar, parmcsan (íyöi
Toscana: Poppcronc. jalapcnos, r]6maostur. ananas, sv. ótííur, hvitlaukur, svappir, krydd 6w°I
STARFSMENNTUN
Bókhald grunnur
110 kennslustunda hagnýtt og hnitmiðað nám fyrir
starfandi skrifstofufólk eða þá sem vilja styrkja stöðu
sína á vinnumarkaði. Hentar einnig sjálfstætt starfandi
atvinnurekendum eða þeim sem eru að hefja rekstur
og vilja vera sem mest sjálfbjarga við við bókhaldið.
Kennslan byggir á fyrirlestrum og verklegum æfingum
og þátttakendur fá hagnýt verkefni með
raunverulegum fylgiskjölum sem eru merkt og færð
með tilheyrandi uppgjöri og útskriftum. Prufuútgáfa
af bókhaldsforriti fylgir.
Uppbygging námsins miðast við nemendur með
grunnþekkingu í tölvum og Excel.
Helstu kennslugreinar:
• Verslunarreikningur
• Virðisaukaskattur, reglur og skýrslur
• Bókhaldsgrunnur og handfært bókhald
• Tölvufært bókhald í Navision
Kennsla hefst 20. september og lýkur 4. nóvember.
Bjóðum upp á morgun- og kvöldtíma. Verð kr. 86.000,-
o Bókhald framhald
Stutt framhaldsnámskeið í Navision tölvubókhaldi. Sjá
nánari lýsingu á heimasíðu skólans www.tsk.is
Þjóðarút-
gjöld aukast
umfram lands-
framleiðslu
Þjóðarútgjöld íslendinga
jukust um tæp 12% á öðrum
árstjórðungi þessa árs miðað
við sama ársfjórðung í fyrra.
Landsframleiðslan jókst hins
vegar mun minna vegna mik-
ils innflutnings eða um tæp
7%, samkvæmt tilkynningu
frá Hagstofú íslands í gær.
Ef landsframleiðsla á síðasta
ári er skoðuð kemur í ljós að
hún var 885 milljarðar króna,
sem er rúmum 6% meira
en á fyrra ári.„Vöxturinn
einkenndist af miklum vexti
einkaneyslu sem óx um 6,9%
og fjárfestinga sem uxu um
21,0%. Þjóðarútgjöldin uxu því
talsvert umfram landsfram-
leiðsluna eða um 8,4% og leiddi
það til verulegs halla á vöru- og
þjónustuviðskiptum við útlönd“
segir ennfremur í tilkynningu
Hagstofunnar frá því í gær. ■
Lögreglueftirlit við skóla
96 tekn-
ir í sömu
götunni
Lögreglan í Reykjavík tók 96
ökumenn í einni og sömu
götunni í siðustu viku. Sérstakt
eftirlit var við skóla í vestur-
bænum og er þetta afrakstur
þess. Mældur var hraði bifreiða
sem óku um götur í námunda
við skólana og aðallega á
skólatíma. Mælingarnar fara
fram með hraðamyndavélum
sem eru í ómerktum lögreglu-
bifreiðum. Á götunum er 30
km hámarkshraði og mikið
af börnum á ferð yfir og við
þær. Ökumennirnir óku um
Neshaga og óku þrír þeirra
svo hratt að þeir mega búast
við að verða sviptir ökuréttind-
um. 1 ljós kom að 22% þeirra
sem óku um Neshaga meðan
mælingar fóru fram óku of
hratt. I þessari viku munu
laganna verðir söðla um og
mæla hraða íbúa í Grafarvogi. ■
Frjálslyndir:
Vilja innan-
landsflugið
til Keflavík-
urflugvallar
Bæjarmálafélag Frjálslynda
flokksins í Reykjanesbæ
vill að innanlandsflugið og
skyld starfsemi verði flutt frá
Vatnsmýrinni í Reykjavík til
Keflavíkurflugvallar. Segir í
tilkynningu frá félaginu að
slíkt myndi styrkja atvinnulíf
og samgöngur í Reykjanesbæ.
„Þverpólitísk samstaða um
flugvallarmál er til marks
um styrk Reykjanesbæjar
á sama tíma og hver hönd-
in er upp á móti annarri í
Reykjavík og nágrenni" segir
ennfremur i tilkynningunni. ■