blaðið - 14.09.2005, Page 16
16 I HEIMILI
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 blaðiö
Sjónvarp i
isskápnxtm
Ekki það nýjasta - en kannski framtíðin
Kóranski ísskápaframleiðandinn Di- er hægt að spara nokkurt pláss í eld-
os hefur nú hafið framleiðslu á nýj- húsinu. Vandinn er reyndar sá að
um ísskáp með innbyggðu sjónvarpi. erfitt er að tengja gamla videótækið
Þetta er reyndar ekki ný hugmynd við tækið, eða nýja DVD spilarann,
en útfærsla Dios er ákaflega smekk- en á móti kemur að þetta er ákaflega
leg og skemmtileg. Þeim fjölgar sí- hentugtþegarhorfteráJamieOliver
fellt sem kjósa að kaupa litlar íbúðir, - allavega auðveldara að herma eftir
sérstaklega i ljósi hækkandi íbúða- meistaranum þegar staðið er fyrir
verðs. Hver fermeter í íbúðinni er framan sjónvarpið. ■
því dýrmætur, og með þessari lausn
AO A. OSKARSSON EHF.
www.oskarsson.is SIMAR: 56« 6600 / 566 7200
ÓTRÚLEG VERÐ - ÓTRÚLEGT ÚRVAL
Hágæða nuddbaðker & sturtuklefar
með eimbaði og ótal aukahlutum...
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA
MILLI KL. 9-12 & 13-17
...þú getur hlustað á
útvarpið eða geisla-
spilarann og jafnvel
talað í símann á meðan
þú slappar af í baði!
Að setja
upp vegg-
fóður
Veggfóður hefur um árabil
átt undir högg að sækja en
virðist nú vera að komast í
tísku á ný. Margar mismun-
andi gerðir af veggfóðri eru til
eins og t.d. pappírsveggfóður,
vínilveggfóður, blautrýmis-
veggfóður, textílveggfóður og
glertreíjastrigi svo einhver
séu nefnd. Þegar byrjað er að
setja upp veggfóður er gott að
nota lóð í snúru eða hallamál
til að leggja lengjuna lóðrétt á
vegginn. Einnig er gott að finna
hentugan byrjunarstað t.d. út
við glugga eða dyr. Forðast skal
að leggja í horn á miðri vegg-
fóðurslengd en lengd brúnar
frá horni á að vera sem minnst
tveir cm. Ef veggfóðurslengjurn-
ar eiga að skarast er mikilvægt
að byrja út við glugga og vinna
sig inn í herbergið. Þannig sjást
samskeytin siður og minni
hætta á að þau varpi skugga
þegar sólin skín inn í herbergið.
Ef hitastig í herberginu er
undir 15 gráðum og lofttak
mikið er hætta á að límið þorni
seint og fellingar myndist. Ef
loftbólur myndast er hægt að
nota sprautur til að sprauta
veggfóðurslimi inn undir
veggfóðrið. Einnig er hægt að
gera lítinn skurð í loftbóluna
og koma lími inn með lidum
pensli og síðan lima fast. Til að
fella veggfóður að innstungum
og rofum er best að skera kross
í veggfóðrið á nákvæmlega rétt-
um stað. Síðan er lokið skrúfað
af, að sjálfsögðu eftir að búið
er að taka rafmagnið af. Þá er
auðvelt að leggja veggfóðrið yfir,
klippa flipana í burtu og skrúfa
lokið aftur á. Ef í veggnum
eru göt fyrir skrúfur eða nagla
sem á að halda er gott ráð að
stinga eldspýtu í gatið þannig
að hún standi aðeins út úr
gatinu. Bungan á veggfóðrinu
sýnir svo staðsetningu gatsins
og þar er auðvelt að negla
nagla þegar límið er þornað. ■