blaðið - 14.09.2005, Síða 22
22 I VIÐTAL
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 blaðiö
Skapandi íólk tekur
ekki vfð fyrirskip unum
kolbrun@vbl.is
Einn af gestum Bókmenntahátíð-
ar í ár er kanadíska skáldkonan
Margaret Atwood. Hún er ekki
einungis þekktasta skáldkona
Kanada heldur ein virtasta skáld-
kona heims í dag. Hún er fjölhæf-
ur höfundur og viðfangsefnin
eru margbreytileg. Þekktust er
hún fyrir skáldsögur sínar. Staða
kvenna, valdabarátta, kúgun og
samskipti kynjanna eru áberandi
umfjöllunarefni í skáldsögum
hennar. Sumar hverjar, eins og
Saga þernunnar og Oryx and
Crake, endurspegla hrollvekjandi
framtíðarsýn.
„Ég byrjaði að skrifa fimm ára
gömul og á handrit frá þeim tíma,“
segir Atwood. „Frænka mín sagði
að ég hefði á þeim aldri sagt að ég
ætlaði mér að verða rithöfundur, en
ég get ekki ímyndað mér að ég hafi
sagt það. Þetta voru aðallega ljóð og
svo skáldsaga sem ég lauk ekki við
og fjallaði um frænku. Þetta voru
dæmigerð verk fimm ára barns með
myndum. Ekkert sérstakt og engin
ástæða til útgáfu.“
Eiginmaður Atwood, Graeme Gib-
son, er sömuleiðis gestur Bókmennta-
hátíðar en hann er rithöfundur og
handritahöfundur. „Ég byrjaði ekki
að skrifa fyrr en rúmlega tvítugur.
Ég var í skóla en sinnti ekki náminu.
Ég eyddi dágóðum tíma í hernum og
naut þess mjög,“ segir hann. „Ég tók
aldrei þátt í bardögum. Ég var góð
skytta og góður leiðtogi. Ég stóð mig
vel en vildi ekki verða hermaður að
atvinnu og þess vegna byrjaði ég að
skrifa. Allt frá táningsárum líkaði
mér ekki heimurinn í kringum mig
og ég ákvað því að skrá mína eigin
útgáfu af hlutunum. Þannig fæddist
fyrsta skáldsaga mín.“
Engin forskrift
Þótt Margaret Atwood sé gagnrýnin
og djarfur höfundur virðist hún lítt
gefin fyrir að skilgreina skáldskap
sinn og segist ekki vera hugmynda-
fræðilegur höfundur. Hún segir rit-
höfunda ekki skulda neinum neitt.
„Þegar menn fara að segja rithöf-
undum hvað þeir eiga að gera þá
gera þeir eitthvað annað. Það er ekki
hægt að skipa þeim fyrir. Þeir gera
það sem þeim hentar og síðan má
virða það fyrir sér og leggja dóm á
það. Það er ekki hægt að gefa rithöf-
undum forskrift að því hvernig þeir
eigi að haga sér eða hvað þeir eigi að
segja. Skapandi fólk tekur ekki við
fyrirskipunum,“ segir hún.
„Ég held að rithöfundar hafi
ákveðnar skyldur rétt eins og aðrir
borgarar,“ segir eiginmaður henn-
ar. „Eins og til dæmi þær skyldur að
launa gott með góðu og sýna heiðar-
leika eins og fólk á að gera sem lifir
í hópum. Að því leyti höfum við
öll okkar skyldur. En aðrar skyldur
hafa rithöfundar ekki.“
Hjónin eru sammála um að rit-
höfundar hafi ekki jafn mikil áhrif
og áður, en telja um leið að ekkert
komi í staðinn fyrir skáldskapinn.
,Það sem hefur breyst er að við fáum
fréttirnar samstundis úr sjónvarpi
en skilgreining á atburðum birtist
síðan í dagblöðum sem taka sig al-
varlega. Þar er því lýst að fellibylur
hafi haft ákveðin áhrif og menn
rýna í eftirleikinn,“ segir Atwood.
,En þeirri tilfinningu sem fylgir því
að vera manneskja og lifa fellibylinn
verður einungis lýst í skáldsögu, og
stundum í gegnum kvikmyndir en
yfirleitt í minna mæli. Kvikmyndir
eru takmarkaðar og það eru skáld-
sögur einnig með sínum hætti. Það
er til dæmis engin tónlist sem fylgir
skáldsögunni.“
„Nema þá í huga rithöfundarins,“
skýtur Gibson inn í.
„Heilinn er mun virkari þegar
menn lesa en þegar þeir horfa á
sjónvarp eða sjá kvikmynd," held-
ur Atwood áfram. „Þegar þú lest
fer mikil heilastarfsemi í gang, þú
sérð umhverfið fyrir þér, hefur
hugmyndir um það hvernig fólk lít-
ur út og ímyndar þér hvernig rödd
þess hljómar. Skáldsagan gefur þér
ákveðna mynd sem þú fyllir upp í og
heilinn er mjög virkur á meðan.“
Ólíkir höfundar
Þar sem tveir rithöfundar í hjóna-
bandi eiga í hlut þá er ekki fráleitt
að spyrja hvort þeir skiptist á hug-
myndum. „Við erum gjörólíkir rit-
höfundar og því ráði sem annað okk-
ar myndi gefa hinu yrði aldrei fylgt,“
segir Gibson. Atwood tekur undir
þetta: „Það er engin samkeppni á
milli okkar vegna þess að við erum
svo ólík. Þegar við hittumst vorum
við rithöfundar og fátt kom okkur á
óvart. Ég hef séð nokkur hjónabönd
BlaliS/lngó
Margaret Atwood og Graeme Gibson. Hún mun sennilega seint hætt að skrifa skáldsögur en hann segist mjög líklega vera hættur
skáldsagnaskrifum.
kunningja minna bresta vegna þess
að þegar parið giftist hafði konan
ekki gefið út bækur. Síðan kom að
því að hún sendi frá sér skáldverk
og karlmaðurinn, sem var ekki rit-
höfundur, komst að því að hann átti
maka sem var að fá mikla athygli og
gleymdi fyrir vikið að strauja skyr-
turnar hans og elda kvöldmatinn
fyrir hann.“
Atwood er gríðarlega afkastamik-
ill rithöfundur en þegar hún er spurð
hvort hún skrifi á hverjum degi seg-
ir hún: „Ég vildi geta svarað því ját-
andi en það er bara ekki þannig.“
„Ég geri það alls ekki,“ segir Gib-
son. „Síðasta skáldsaga mín kom út í
byrjun tíunda áratugarins og ég held
að hún sé mín síðasta. Sem skáld-
sagnahöfundur hef ég ekkert lengur
að segja. En ef ég fæ góða hugmynd
þá mun ég að sjálfsögðu skrifa bók.
Ég hafði aldrei sérlega gaman af því
að vera skáldsagnahöfundur. Það
var erfið vinna og ég var um það
bil átta ár með hverja bók. Ég var
ánægður með árangurinn og mér
líkaði lífsstíllinn en ég naut þess
ekki að skrifa skáldsögur.“
Hann er nú samt með bók á leið-
inni, The Bedside Book of Birds, þar
sem er að finna texta skálda og rit-
höfunda um fugla ásamt rúmlega
too litmyndum af alls kyns fuglum.
Hann hefur eytt fimmtán árum i bók-
ina sem kemur út í október. Á sama
tíma kemur út bók eftir Atwood,
Penelópukviða, þar sem skáldkon-
an fjallar um Penelópu, eiginkonu
Ódysseifs, og tólf þjónustustúlkur
hennar sem voru hengdar undir
lok Odysseifskviðu. Bókin kemur út
víða um lönd, þar á meðal á Islandi
þar sem Bjartur gefur hana út.
- '
NU ER TÆKÍFÆRIÐ
FRABÆRi T1LBOÐ
12 VIKNA ATAK
3 MÁN. EUROWAVE
24 TÍMAR HLJÓÐBYLGJUR M/CELLONUDDI
6X CELLONUDD
6X HÚÐBUSTUN
6x AQUA - DETOX AFEITRUN
6X 1 /2 LEIRVAFNINGUR
TILBOÐSVERO 47.900.-
TÍMINN Á AÐEINS 399kr,- 120 TÍMAR ALLS
8 VIKNA ÁTAK
2 MÁN. í EUROWAVE
16X HJÓÐBYLGJUR M/CELLONUDDI
4X CELLONUDD
4X HÚÐBUSTUN
4X AQUA - DETOX AFEITRUN
4X 1 /2 LEIRVAFNINGUR
TILBOÐSVERÐ 36.900.-
INN Á AÐEINS 462kk.- 80 TÍMAR ALLS
4 VIKNA ATAK
1 MÁN. I EUROWAVE
8 X HJÓÐBYLGJUR M/CELLONUDDI
2 X CELLO - NUDD
2 X HÚÐBUSTUN
2 X AQUA - DETOX AFEITRUN
2 X 1/2 LEIRVAFNINGUR
TILBOOSVERÐ 25.900,-
TÍMINN Á AÐEINS 648kr,- 40 TÍMAR ALLS