blaðið - 14.09.2005, Side 30
30 I ÍPRÖTTIR
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 blaAÍ6
Kári Jónsson, íslenskur mótorhjólakappi:
Rústaði heimsmeistara í þolkeppni
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Kári tekur forystuna í startinu viö Bolöldu. Þetta var ekki óalgeng sjón í sumar.
Sautján ára íslenskur strákur
sigraði fyrrverandi heims-
meistara í þolkeppni á mótor-
hjólum í byrjun mánaðarins. Með
sigrinum tryggði Kári Jónsson sér
einnig íslandsmeistaratitilinn í sín-
um flokki sem er góður árangur
fyrir drenginn. Hann sigraði Peter
Bergval sem var heimsmeistari árið
2002 til 2003.
A heimsmælikvarða
Keppt var í tveimur umferðum á
nýrri braut við Bolöldu og var hvor
umferð um ein og hálf klukkustund.
Startað var í hóp og náði Kári þar
öðru sæti strax í byrjun. Hann sýndi
þó fram á yfirburði sína með því að
vinna sig upp í fremsta sæti strax á
fyrsta hring af sex. Kári hélt foryst-
unni allan timann og kom örugglega
í mark tæpum tveimur mínútum á
undan næsta manni en Peter Berg-
val, fyrrverandi heimsmeistari, varð
þriðji. I síðari umferðinni jók Kári for-
skot sitt og sigraði mótið örugglega.
Að loknu mótinu hafði Bergval á orði
að Kári ætti fullt erindi í keppnir á
erlendum vettvangi. Hann spáði hon-
um meira að segja á meðal tíu hæstu
manna á GNCC mótinu í Bandaríkj-
unum færi Kári þangað að keppa.
Búinn að æfa í tíu ár
Kári hefur þrátt fyrir ungan aldur
töluverða reynslu á hjólinu en hann
hefur stundað sportið frá sjö ára
aldri. Hann segir að stefnan hafi
alltaf verið að fara utan til keppni.
„Ef maður kemst eitthvert út þá fer
maður. Þetta er spurning um að
finna styrktaraðila af því að það er
svo dýrt“, segir Kári. Fyrir utan að
sigra Peter Bergval var Kári einnig á
undan stóra bróður sínum. „Það var
ekki fyrr en hann tók sér fri í fyrra
sem ég fór framúr honum. Hann
keppti nefnilega lítið sem ekkert í
fyrra.“
Fjölmargir leikir í Meistaradeildinni
í kvöld verður keppt í A, B, C og
D riðlum Meistaradeildar Evrópu
um víðan völl. Club Brugge tekur á
móti Juventus og Rapid Vín fær Bay-
ern Munchen í heimsókn á A riðli. í
B riðli mætir Arsenal svissneska lið-
inu Thun og Sparta tekur á móti Aj-
ax. C riðillin fer af stað með leikjum
Bremen og Barcelona annars vegar
og Udinese og Panathinaikos hins
vegar. I D riðli mætast svo Benfica
og Lille og Villareal tekur á móti
Manchester United.
Meiðsli hjá Arsenal
Arsenal gaf frá sér tilkynningu í gær
þar sem sagt var frá þvi að Thierry
Henry, sóknarmaðurinn franski,
verður frá í sex vikur sökum
meiðsla á nára. „Ég býst við því að
hann verði frá í sex vikur“, segir Ar-
sene Wenger, þjálfari liðsins. „Allt
sem bendir til annars þangað til
verða góðar fréttir. Auðvitað viljum
við helst hafa Henry með í liðinu
þar sem hann er leikmaður á heims-
mælikvarða. En ég lít einnig á þetta
sem gott tækifæri fyrir yngri leik-
menn á borð við Robin van Persie,
Jose Antonio Reyes og Quincy Ow-
usu-Abeyie til þess að láta ljós sitt
skína“, segir Wenger.
Ferguson prófar Smith
Alex Ferguson ætlar að láta Alan
Smith fá sitt stærsta verkefni sem
miðjumaður í kvöld þegar Manchest-
er United fer til Spánar að keppa við
Villareal. Þar verður það verkefni
Smith að passa lykilmann spænska
liðsins, Juan Roman Riquelme, en
Roy Keane verður fjarverandi sök-
um tognunar á aftanverðu lærinu
frá leik laugardagsins. „Laugardag-
urinn var erfiður til þess að dæma
getu stráksins, það er einfaldlega
vegna þess að hann hafði ekkert að
gera. Það verður þó ekki sama sag-
an gegn Villareal þar sem Riquelme
er mjög hættulegur andstæðingur“,
sagði Ferguson í gær. Þá telur hann
liðið vera mun betra en það var fyrir
ári siðan og býst við góðum hlutum
frá því í Meistaradeildinni í ár.
Sol Campbell leggur línurnar á æfingu hjá Arsenal í gær
Ástralía
Aflimartilað
bættaleik
Leikmaður í ástralska fót-
boltanum ætlar að láta lækna
taka af sér einn fingur í því
skyni að bæta leik sinn. Brett
Backwell, sem spilar fýrir liðið
Glenelg frá úthverfi Adelaide,
segist hafa þjáðst og haíf
takmarkaða hreyfigetu í fingri
frá því hann fingurbrotnaði
fyrir þremur árum. Þá stungu
læknar upp á því að beinin í
fingrinum yrðu tengd saman
með aðgerð en Backwell vildi
það ekki. Hann trúir því að
aflimun sé eina leiðin til þess
að hann geti spilað almenni-
lega og sársaukinn hverfi.
Kvennahandbolti
A-landsliðið á
mótíHollandi
A-landslið kvenna mun taka
þátt á Alþjóðlegu móti í Hol-
landi dagana 10-16 október
en það verkefni er stór liður
í undirbúningi liðsins fyrir
undankeppni EM sem fram fer
í Sviss í nóvember. Liðið spilar
á móti Slóvakíu, Tékldandi,
Rúmenum og tveimur liðum
frá Hollandi. A og B. Land-
sliðshópurinn verður tifleynn-
tur um næstu mánaðamót.
Formúlan
Liðinlækki
kostnaðinn
Alþjóða akstursíþróttasam-
bandið hefur ákveðið að í regl-
um um Formúlu 1 sem verða
að veruleika árið 2008 verði
ákvæði um að liðin þurfi að
lælcka óþarfa kostnað allveru-
lega. „Ný lið sem hafa áhuga
á að taka þátt árið 2008 hafa
látið í ljós að þau geti einungis
komið til keppni ef kostnaður
er lækkaður verulega“, segir
Max Mosley, forseti samband-
sins. Þá eru lið Formúlunnar
og sambandið sammála um
að íþróttin geti ekki þrifist ef
ekkert verði að gert í málunum.
Eiður Smári
Ekkimeðígær
vegna veikinda
Eiður Smári Guðjohnsen var
ekki með í leikmannahópi
Chelsea í leik liðsins gegn An-
derlecht í Meistaradeildinni í
gær.Ástæðan sem gefin var upp
var að Eiður Smári er veikur
heima með sýkingu í hálsi.
Advocaat tekur við
Suður-Kóreu
Suður-Kóreahrifln
af Hollendingum
Fyrrverandi landsliðsþjálfari
Hollands, Dick Advocaat
hefur verið ráðinn þjálfari
Suður-Kóreu þar til heims-
meistaramótið í Þýskalandi er
liðið. Hann verður því þriðji
Hollendingurinn til þess að
stýra landsliði Suður-Kóreu.