blaðið - 07.10.2005, Qupperneq 8
8 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 blaðiö
Sífellt fleiri
farþegar fara
um Keflavík-
urflugvöll
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
voru um 18% fleiri í nýliðnum
september mánuði en í sama
mánuði í fyrra. í lok september
höfðu 1,4 milljónir gesta farið
um völlinn frá áramótum sem
er u,3% fjölgun. Farþegar á leið
til landsins í september voru
65.180 og á leið úr landi 71.675.
Áfram- og skiptifarþegar voru
um 28.000 í september. Þessar
tölu koma fram á heimasíðu
Ferðamálaráðs Islands í gær. ■
Framkvæmda-
stjóri Lífiðn-
ar hættir
Friðjón Rúnar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins
Lífiðnar, hefur sagt starfi sínu
lausu hjá sjóðnum frá og með
1. október 2005. Þetta kom fram
á heimasíðu sjóðsins í gær. Þar
segir ennfremur að Friðjón hafi
starfað hjá Lífiðn í 7 ár og skili
mjög góðu búi. „Lífiðn stendur
tryggingarlega fremst meðal líf-
eyrissjóðanna. Friðjón tekur við
starfi sem framkvæmdastjóri
fjárfestingarsviðs Sjóvár innan
skamms. Ólafur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri verðbréfafyr-
irtækisins Virðingar hf. hefúr
verið ráðinn ffamkvæmdastjóri
til bráðabirgða til næstu fjög-
urra mánaða og hefur hann
störf innan skamms" segir í til-
kynningu á heimasíðu Lífiðnar. ■
Alþingi:
Samfylkingin efins um
lækkanir á tekjuskatti?
Helgi Hjörvar vekur máls á efasemdum um hyggindi fyrirhugaðra tekjuskattslækkana.
Segir stefnu Samfylkingarinnar óbreytta.
Athygli vakti í 1. umræðu um fjár-
lög á Alþingi, að Helgi Hjörvar, 5.
þingmaður Norður-Reykjavíkur
fyrir Samfylkinguna, vék að fyrir-
huguðum lækkunum á tekjuskatti
og dró hyggindi þeirra í efa. Þótti
sumum, sem þar bæri á breyttum
áherslum flokksins í skattamál-
um, en í samtali við Blaðið segir
Helgi svo ekki vera. „Ég var ekki
að leggja neinar línur í ræðunni og
stefna flokksins er óbreytt. Ég var
einungis að vekja athygli á spurn-
ingum, sem fram hafa komið um
væntanlegar skattalækkanir og
hagræn áhrif þeirra.“
Arni Mathiesen, hinn nýi fjár-
málaráðherra.kynntifjárlagafrum-
varp ríkisstjórnarinnar á Alþingi í
gærmorgun. Kvað hann að megin-
drættir þess væru frekari lækkun
Helgi Hjörvar þingmaður.
skulda, skattalækkanir, efling
menntamála og rannsókna og auk-
ið aðhald í ríkisfjármálum. Stjórn-
arandstæðingar sögðu frumvarpið
á hinn bóginn óraunhæft og ekki
í takti við veruleikann. f því sam-
hengi minntist Helgi Hjörvar á
fyrirhugaðar skattalækkanir, sem
hann kvað menn engan veginn ein-
huga um.
Aðspurður sagði Helgi við Blaðið
að allir sérfræðingar væru á einu
máli um að aðhald í fjárlagafrum-
varpinu væri ófullnægjandi. „Það
verður ekki annað séð en að ríkis-
stjórnin hafi gefist upp á því að
halda aftur af verðbólgunni og það
er mikið áhyggjuefni, enda eru for-
sendur kjarasamninga brostnar
og skuldir heimilanna í hámarki,"
segir Helgi og telur lífsnauðsynlegt
fyrir íslenskan efnahag að halda
verðbólgunni niðri. „En stjórn-
in treystir sér hvorki til þess að
minnka útgjöld né auka tekjur,”
Að sögn Helga skiptir því miklu
máli að menn leggist á eitt um að
hjálpa ríkisstjórninni, „Seðlabank-
inn með vaxtastefnunni, aðilar
vinnumarkaðarins í viðræðum um
kjarasamninga, bankarnir með
útlánaaðhaldi og við f stjórnarand-
stöðunni með góðum tillögum til
úrbóta."
En vill Samfylkingin þá ekki
hrófla við fyrirhuguðum lækkun-
um á tekjuskatti? „Við erum að
skoða útgjaldahliðina núna og það
er ekki tímabært að velta tekju-
hliðinni fyrir sér fyrr en útgjöldin
liggja fyrir,“ segir Helgi. Aðspurð-
ur um tillögur Samfylkingarinnar
í þeim efnum segir hann að þær
verði kynntar í lok nóvember þegar
fjárlagafrumvarpið verður tekið til
2. umræðu. ■
1400 Svíar á leið
til Reykjavíkur
Reykjavíkurborg og Vara komm-
un í Svíþjóð hafa gert með sér sam-
komulag um að allir starfsmenn
hins sænska sveitarfélags, alls
1400 manns, heimsæki stofnanir
borgarinnar og kynni sér starf-
semi þeirra. Hópnum er skipt í
sex hópa og dvelur hver hópur hér
á landi í eina viku í senn. Fyrstu
hóparnir eru þegar komnir og
kynntu þeir sér m.a. starfsemi á
skrifstofum borgarstjóra og borg-
arstjórnar, starfsmannamál á
Stjórnsýslu- og starfsmannasviði,
upplýsingamál á Þjónustu- og
rekstrarsviði auk þess sem tæp-
lega 80 manns kynntu sér öldrun-
arþjónustu borgarinnar. 1 næstu
viku er von á um 150 manns til
viðbótar, en fjölmennasti hópur-
inn er hinsvegar væntanlegur til
landsins í lok október þegar allir
leik- og grunnskólakennarar Vara
kommun, alls tæplega 400 manns,
munu koma og kynna sér starf-
semi kollega sinna hjá borginni. ■
Fyrsti hópurinn heimsækir borgarstjórnarsal Ráðhússins
Notijm
Hlað-skot
OG BORÐUM
RJÍJPUR Á
JÓLUNUM
FORD TAURUS SES V6
árg 2004 á aðeins 1.499.000.
'
_ ______________________________________________
Bíllinn er hlaðinn búnaði td, sjálfsk, aksturstölva, cd, þjófavörn, AC, cruise
control,160 hestöfl, ekinn 47 þús km. Framhjóladrifinn
Taurus er margfaldur bíll ársins í BNA, eyðslugrannur og glæsilegur.
Tilbúinn til afhendingar
Upplýsingar í síma 820 5220
Vyrapmaster
Skammtari fýrir ál-og plcistfilmur
Klippir álfilmur og plast
35% sparnaður
Ódýrari áfyllingar
Má setja í uppþvottavél
Afar auðvelt í notkun
Kynningarverð aðeins kr.
1.690.-
J
<3J»
engar flækjur ekkert vesen...
Kynning í FJARÐARKAUP
fimmtudagogföstudag DANCO
HEILDVERSLUN
Sími: 575 0200 Fax: 575 0201 danco@danco.is www.danco.is