blaðið - 07.10.2005, Qupperneq 20
20 I VIÐTAL
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 blaöið
Forystumaður á að
taka akva
Íl'- 4H|
if |v
w.
*
wSmlmBl W8 mSfSB
I viðtali við Blaðið q a
á dögunum gagn- y s
rýndi Steingrímur
Hermannsson all-
harkalega Halldór
Ásgrímsson. „Við
Steingrímur Her-
mannson höfum
ekki alltaf verið
sammála," segir
Halldór um þá
gagnrýni. „Mín
skoðun hefur ætíð
verið sú að Fram-
sóknarflokkurinn
ætti að breytast með breyttum
tímum. Ef Framsóknarflokkurinn
hefði ekki gengið til móts við nýja
tíma þá hefði hann dagað uppi á
skeri. Annars held ég að það sé
best að einhverjir aðrir en við
Steingrímur skrifi sögu Framsókn-
arflokksins."
Hvernig verður þér við þegar þú
lest viðtal þar sem fyrrverandi
formaður flokksins gagnrýnir þig
harkalega?
„Ég er orðinn vanur því. Hver
hefur sitt lag. Annars virðist Stein-
grími vini mínum ekki sérlega lag-
ið að dæma sjálfan sig svo ég veit
ekki hversu ágætur hann er í að
dæma aðra.
Fylgi flokksins er nú ekki sérlega
mikið þessa dagana. Er það ekki
áhyggjuefni?
„Jú, og ég er ekki sáttur við það.
Miðjan í stjórnmálum skiptir
mestu máli í alþjóðlegum stjórn-
málum en sá sannleikur virðist
ekki nægilega metinn í íslensku
samfélagi. I fjölmiðlum er því
stundum haldið fram að Fram-
sóknarflokkurinn sé að hverfa. Ég
hef lesið þetta í áratugi og kippi
mér ekki upp við það enda er
Framsóknarflokkurinn enn á sín-
um stað. Stjórnarandstaðan hefur
lagt mikið upp úr því að ráðast að
Framsóknarflokknum, væntan-
lega í þeim tilgangi að laga eigin
stöðu. Mér sýnist það hafa tekist
að einhverju leyti hvað okkur varð-
ar, en henni hefur hins vegar mis-
tekist í því að laga eigin stöðu og
þess í stað tekist að laga stöðu Sjálf-
stæðisflokksins í skoðanakönn-
unum. Vissulega fagna ég því að
staða ríkisstjórnarinnar er sterk.
Ég held að hlutföllin milli fylgis
Sjálfstæðisflokksins og Framsókn-
arflokksins eigi eftir að jafnast.“
Talsmaður breytinga
Það er sagt að þú sért hægri mað-
ur í Framsóknarflokknum. Er það
rétt?
„Ég er afskaplega lítið gefinn
fyrir tal um vinstri og hægri. Það
er svo tilviljanakennt hvað menn
eiga við. Steingrímur Hermanns-
son var talinn hægri maður í Fram-
sóknarflokknum þegar hann barð-
ist fyrir álverinu í Straumsvík en
vinstri maður þegar hann var á
móti Evrópska efnahagssvæðinu.
Ég tel að Steingrímur hafi haft rétt
/-----------------------------
fyrir sér þegar
hann taldi að
við ættum að
byggja álverið í
Straumsvík. Ég
held að ég hafi
verið skilgreind-
ur sem hægri
maður vegna
þess að ég hef
verið talsmaður
breytinga, ekki
bara í Fram-
sóknarflokkn-
um heldur í ís-
lensku samfélagi.
Ég kom ungur í Framsóknar-
flokkinn og varð þingmaður þegar
ég var nýlega byrjaður að kenna
sem lektor við Háskóla Islands og
var þá nýkominn erlendis frá. Ég
hef verið þeirrar skoðunar að við
ættum að færa ísland nær alþjóða-
samfélaginu vegna þess að hags-
munir okkar lægju þar. Við ættum
að taka að okkur meiri ábyrgð
á alþjóðlegum vettvangi og vera
óhræddir að beita okkur í hinum
stóra heimi. Ég var ekki andvíg-
ur aðild okkar að EES og hef ekki
viljað útiloka aðild að Evrópusam-
bandinu. Ég hef verið talsmaður
náinnar alþjóðlegrar samvinnu og
alþjóðavæðingar. Ég hef verið tals-
maður útrásar íslenskra fyrirtækja.
Það hefur ekki öllum í Framsókn-
arflokknum líkað þetta og menn
spyrja: Hvar er gamli Framsóknar-
flokkurinn? Við gætum eins spurt:
Hvar er gamla Island? Framsókn-
arflokkurinn hefur breyst því tím-
arnir hafa breyst.
Ég er stoltur af því að hafa ver-
ið talsmaður þessara sjónarmiða í
Framsóknarflokknum og tel mig
hafa gert gott í þeim efnum. Allar
breytingar koma einhvers staðar
við og það er ekki öllum sem líkar
þær. Þess vegna hef ég oft og tíð-
um fengið á mig mikla gagnrýni,
líka í Framsóknarflokknum. Eins
og í öllum öðrum flokkum hafa
þar verið menn sem halda mun
meir upp á gamla tímann en þann
nýja.“
Hvað með þá gagnrýni að þú takir
ákvarðanir án samráðs við þing-
flokkinn?
„Ég er ekki hafinn yfir gagnrýni
frekar en aðrir. Forystumaður á að
taka ákvarðanir og þekkja sitt bak-
land. Mörg mál eru rædd í þing-
flokknum og ákvörðun um þau
flest er tekin á grundvelli þeirrar
umræðu sem þar á sér stað. Ráð-
herrar þurfa að taka ákvarðanir
í samræmi við það sem þeir telja
þjóðfélaginu fyrir bestu. Það sama
á við um forsætisráðherra. For-
ystumaður sem ekki getur tekið
ákvarðanir er lítils virði."
Fjölmiðlar og Baugsmálið
Víkjum að fjölmiðlum, er nauðsyn
á fjölmiðlafrumvarpi?
„Það er nauðsynlegt að til séu
reglur um starfsemi fjölmiðla.
Mörg dæmi eru um að fjölmiðlar
hafa dregið upp ranga mynd. Það
er ekkert séríslenskt fyrirbæri og
auðvitað er aldrei hægt að koma
í veg fyrir það að öllu leyti en við
hljótum að nýta það tækifæri sem
er núna til að vinna löggjöf á þeim
grundvelli sem samkomulag náð-
ist um milli allra flokka.“
Valgerður Sverrisdóttir sagði á dög-
unum eitthvað á þá leið að menn
í innsta valdakjarna Sjálfstœðis-
flokksins hefðu haft óeðlileg af-
skipti af Baugsmálinu. Hvaðfinnst
þér?
„Mér finnst mikilvægt að málið
sé leitt til lykta fyrir dómstólum.
Við hljótum að treysta dómstólun-
um fyrir því. Því hefur verið hald-
ið fram að sumir fjölmiðlar hafi
verið gerendur í málinu, komnir
út fyrir sitt verksvið og jafnvel far-
ið offari. Ég hallast að því. Málið er
sett þannig upp að menn verði að
taka afstöðu með eða á móti Baugi.
Ég tek ekki afstöðu með eða á móti
fyrirtækjum í atvinnulífinu, en
reyni fremur að leggja þeim lið ef
það er hægt.“
Finnst þér aðkoma Kjartans Gunn-
arssonar og Styrmis Gunnarssonar
að málinu vera eðlileg?
„Satt best að segja veit ég ekk-
ert meira um það en hefur komið
fram í fjölmiðlum.“
Finnst þér aðkoma þeirra benda til
pólitísks samsœris gegn Baugi?
„Ég veit ekkert meira um það en
þú eða aðrir landsmenn.“
Hef komið hugmyndum
mínum í framkvæmd
Var ekki erfitt að taka við forsœt-
isráðherraembœttinu afjafn sterk-
um og dóminerandi persónuleika
ogDavíð er?
„Nei, það fannst mér alls ekki.“
Þér finnst þú ekki vera í skugga
hans?
„Ég hugsa ekki þannig. Ég ein-
beiti mér að því sem ég tel mig
þurfa að gera. Ég er ekki upptek-
inn af skuggum og hef aldrei ver-
ið.“
--------------------------\
Það er nauðsynlegt
að til séu reglur um
starfsemi fjölmiðla.
Mörg dæmi eru um að
fjölmiðlar hafa dregið
upp ranga mynd.
VIÐ ERUM AÐ FLYTJA!
OPNUM NÝJA OG GLÆSILEGA VERSLUN
AÐ ASKALIND 2A - NÚNA í OKTÓBER
HÚSGAGNAVERSLUN