blaðið - 07.10.2005, Síða 21
blaðið FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005
99..............................................
„Ég hefði örugglega haft aðra afstöðu efég hefði vitað þá
að engin gjöreyðingarvopn væri þarna að finna."
Sumir segja að ríkisstjórnarsam-
starfið hafi gengið svona vel vegna
þess að það hafi verið gott persónu-
legt samband milli ykkar Davíðs.
„Það var mjög gott samband
milli okkar. Davíð er mjög hæfur
stjórnmálamaður, röggsamur og
ákveðinn og hefur náð miklum
árangri. Hann kveður íslensk
stjórnmál með afar góð eftirmæli.
Reyndar hef ég alltaf átt gott sam-
band við þá sem ég hef unnið með,
þótt ég hafi ekki alltaf verið sam-
mála þeim. Davíð tók mikið tillit
til minna skoðana og ég tel mig
hafa tekið tillit til skoðana hans.
Að stórum hluta finnst mér ég hafa
komið mínum hugmyndum og
hugsjónum í framkvæmd í þessu
ríkisstjórnarsamstarfi."
Heldurðu að Sjálfstæðisflokkurinn
veikist eða styrkist eftir að Davíð yf-
irgaf stjórnmálin?
„Það á eftir að koma í ljós. Pólit-
íkin er bara eins og lífið, þar kem-
ur maður í manns stað. Ég veit að
Geir Haarde verður mjög góður
forystumaður. Ég hef þekkt hann
lengi og veit að hann er heiðarleg-
ur og drengilegur. Ég veit að við
munum eiga gott samstarf, ég hef
engar áhyggjur af því.“
íraksmálið tóká
Allir stjórnmálamenn, og valda-
menn, gera mistök. Er ekki tíma-
bcert að viðurkenna að stuðningur
Islands við Iraksstríðið var mis-
tök?
„Það er ljóst að forsendur máls-
ins hafa ekki að öllu leyti staðist,
eins og komið hefur í ljós varð-
andi gjöreyðingarvopn. Bretar og
Bandaríkjamenn hafa alla tíð ver-
ið nánustu samstarfsmenn okkar
í öryggis- og varnarmálum. Við
verðum að taka tillit til þessa sam-
starfs í þeim veruleika sem við lif-
um. Ég held að það sé alveg sama
hverjir eru í ríkisstjórn á Islandi,
við verðum að hafa þennan veru-
leika í huga.“
Þú lítur á þetta sem eins konar
skuldbindingu?
„Þessi nána samvinna er viss
skuldbinding. Þú getur ekki ætlast
til þess að í nánu samstarfi sé bara
tekið tillit til þín þegar þú þurfir á
að halda en þú þurfir ekki að taka
tillit til annarra þegar þeir þurfa á
að halda.“
Efmenn hefðu haftréttar upplýsing-
ar {höndum hefði Island þá aldrei
lýstyfir stuðningi við innrásina?
„Það er alltaf auðvelt að vera vit-
ur eftir á. Ég hafði lýst því yfir að
vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu
þjóðanna þyrftu að fá meiri tíma,
en síðan var hættan af gjöreyðing-
arvopnum metin þannig að ekki
væri unnt að bíða endalaust vegna
pattstöðunnar í Öryggisráðinu. Ég
hefði örugglega haft aðra afstöðu
ef ég hefði vitað þá að engin gjör-
eyðingarvopn væri þarna að finna.
En ég hafði bara enga ástæðu til
að rengja þær upplýsingar sem
við höfðum frá færustu leyniþjón-
ustum heims og voru lagðar fyrir
Sameinuðu þjóðirnar.
Ég get ekki frekar en aðrir sagt
til um það hvað hefði getað gerst.
Ég veit af voðaverkum stjórnar
Saddams Husseins og held að
hann hefði ekki getað setið mjög
lengi áfram á valdastóli. Hann var
raunveruleg ógn við heimsbyggð-
ina. Allir geta verið sammála um
að það sé gott að hann er farinn
frá völdum. Það er skelfilegt að
hugsa til hryðjuverkaógnarinnar
í írak en þegar upp er staðið er
hún sameiginleg vá heimsbyggðar-
innar. Ekki einkamál neins. En ég
ætla ekki að neita því að þetta mál
hefur verið mér erfitt. Þetta hefur
tekið á mig. Ég er maður friðar en
ekki ofbeldis og átaka.“
Flíka ekki tilfinningum mínum
Það á misjafnlega við stjórnmála-
menn að vera í kastljósi fjölmiðl-
anna. Sumir sœkjast beinlínis eftir
því. Þú virðist ekki vera þannig
gerðar.
„Ég hef aldrei verið þannig."
Finnst þér óþægilegt að vera (fjöl-
miðlum?
„Nei, mér finnst það ekki óþægi-
legt en það tefur mig frá vinnu.“
Ertu mjög vinnusamur?
„Ég á ekki auðvelt með að sitja
iðjulaus. Ég vandist því strax sem
barn og unglingur að vinna mik-
ið. I dag væri sú vinna sennilega
skilgreind sem barnaþrældómur.
Samt á ég bara góðar minningar
frá þessum tíma. Ég fór á sjóinn 14
ára gamall og vann þar við hliðina
á fullorðnum mönnum og hafði
áður verið við vinnu í frystihúsi,
við uppskipun og í sveit. I þeim
störfum vann ég með fullorðnu
fólki þótt ég væri innan við ferm-
ingu. Þetta er það andrúmsloft
sem ég ólst upp í. Það hefur alltaf
fylgt mér og mótað mig að stórum
hluta."
Það er stundum talað um að þú
hafi fremurþunglamalega ímynd.
„Áttu við að ég þyki leiðinlegur?
Ég á ekki auðvelt með að lýsa sjálf-
um mér en fólki sem þekkir mig
finnst sú ímynd kolröng."
Ertu þáfremur dulur?
„Ég hef aldrei flíkað tilfinning-
um mínum opinberlega. Ég tek
starf mitt alvarlega en ég á líka af-
ar auðvelt með að skemmta mér í
góðra vina hópi.“
Finnst þér ofmikið um aðfólk beri
einkalíf sitt á torg?
„Það fer bara eftir hverjum og
einum. Slíkt hentar sumum. Ég
hef engan áhuga á því og er ekki í
þeim lesendahóp sem hefur áhuga
á einkamálum annarra.“
Er eitthvað til í því að þú sért að
hugsa um að hætta í stjórnmálum
eftir næstu kosningar?
„Það er ekkert til í því. En ég veit
ekki hvenær minn pólitíski ferill
endar. Maður ræður ekki alltaf
ferðalagi sínu á vettvangi stjórn-
málanna og ég er ekki ómissandi
fremur en aðrir.
Tekurðu hluti inn á þig?
„Það geri ég.“
Hvernig vinnurðu úr því?
„Ég fer yfir málið með sjálfum
mér, og stundum með öðrum, og
reyni að átta mig á því hvort ég
hafi gert rangt eða rétt. Ef ég er
sannfærður um að ég hafi gert rétt
þá líður mér vel. Ef ég kemst að
þeirri niðurstöðu að ég hafi gert
rangt þá reyni ég að bæta það. Á
löngum ferli í stjórnmálum gera
menn mistök. í pólitík verða menn
að vera fljótir að taka ákvarðanir í
ljósi atburða. Skjótar ákvarðanir
eru ekki alltaf réttar. Ég tel þó að
megnið af þeim ákvörðunum sem
ég hef tekið á ferlinum hafi verið
réttar. Mér líður ágætlega með þá
vitneskju.“
kolbrun@vbl.is
meö lceland Excursions
mmmmMmmmmmmmmmmm
Viö aöstoöum við skipulagningu á hvataferðum,
óvissuferðum, íþróttaferöum, starfsmannaferöum o.fl.
Ekkert er of stórt eöa of smátt fýrir okkur!
.
Hafðu samband í síma 540 1313 eöa í gegnum tölvupóst iea@iea.is
Höfðatún 12-105 Reykjavík • Sími 5401313 • Fax 5401310 • www.allrahanda.is • iea@iea.is