blaðið - 07.10.2005, Page 24
24 I VEIÐI
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 blaðiö
_______________________Afi.____________________________1_________________<í-------------------------------------------
Bræðurnir Haraldur og Stefán Ólafssynir með góða gæsaveiði ásamt hundinum Magnúsi sem er með á myndinni.
Mjög kalt við
veiðiskapinn
.Veiðiskapurinn hefur gengið sæmi-
lega fyrir austan, en það eru sveiflur
í veiðinni. Menn eru að fá eitthvað af
fugli,“ sagði Sverrir Sch. Thorsteins-
son, er við spurðum um gæasveið-
ina. Veðurfar hefur verið erfitt fyrir
marga veiðimenn að undanförnu,
sérstaklega á norðanverðu landinu,
og fullyrða má að kalt hefur verið í
mörgum veiðitúrum. Þar er gæsin
engin undantekning og væntanlega
hafa margir veiðimenn átt kalda
daga í einhverjum skurðinum.
Gæsaskyttur sem við fréttum af
í kringum Akureyri hafa verið að
fá ágæta veiði þrátt fyrir kuldann.
Bræðurnir Haraldur og Stefán Ól-
afssynir eru meðal þeirra sem hafa
ekki látið veðrið á sig fá, og hafa þeir
gert nokkra góða túra í kringum Ak-
ureyri.
Rjúpnaveiðin
Þessa dagana eru veiðimenn að spá
í rjúpuna og skipuleggja hvert eigi
að fara til veiða fyrstu dagana sem
má veiða. Blaðið heyrði að mönn-
um hefði gengið illa að fá svæði til
að skjóta á, enda væri aðsókin mjög
mikil og margir ætluðu fyrstu dag-
ana sem má skjóta.
Á veggspjaldi sem dreift verður á
næstu dögum til rjúpnaveiðimanna,
segir að fjöldi veiddra rjúpna sé ekki
forsenda góðrar veiðiferðar og veiði-
menn hvattir til að virða lög. Það eru
Bændasamtökin, Skotvís, Umhverf-
isráðuneytið, Umhverfisstofnun,
Náttúrufræðistofnun og Fuglavernd
sem gefa veggspjaldið út ■
SKOT m A
EXPRESS w
ELEY 0 MiV
SPORTVÖRUGERÐIN
SKIPHOLT 5 562 8383
icjahhá
PVERÁ
rJuœr af Sesiu
SiVRÐUit ehf K
Lígmúla " 108 Reykjavík Sími: 0860 l'ax Sí>H OíhS m a
spordur'f/ spordur is
Allt fyrir
RJÚPNAVEIÐINA
zl'.or /aPalifirjfifi-Mas
www
Hla5 ehf. • BíldshöfSa 12 - S
Geymslu skotvopnafylgir mikil ábyrgð
Eitt slys er einu
slysi of mikið
„I fyrsta lagi á alltaf að hafa byssurn-
ar óhlaðnar. 1 öðru lagi að vera með
gikklás. Lás sem fer í gikkinn og
læsir honum. Þetta er aukabúnaður
sem þarf að kaupa með byssunum,"
segir Ólafur Vigfússon hjá Veiði-
horninu. Hann segir þetta tvennt
vera grundvallaratriði þegar kemur
að geymslu skotvopna.
„Það er til reglugerð frá yfirvöld-
um sem segir það að ef þú átt fjórar
byssur eða fleiri þarftu að eiga við-
urkenndan skotvopnaskáp. Hann
verður að vera úr þriggja millimetra
þykku stáli og hafa ákveðnar örygg-
islæsingar. Ef þú átt þrjár byssur eða
færri er þér skylt að eiga öryggislás á
allar byssurnar," segir Ólafur.
Hann segir reglugerðina líka segja
til um það að eigandi byssunnar sé
ábyrgur fyrir skotvopnunum.
„Eigandi verður að sjá til þess að
ekki komist börn eða óvitar í byss-
urnar og ekki síður þessi villingalýð-
ur sem veður uppi út um allt.“
Ólafur segir reglugerðir í mörg-
um nágrannalöndum okkar vera
þannig að við fyrstu byssu er skylt
að eiga þar til gerðan skáp. Hann
segist einnig spá því að innan fárra
ára verði reglugerðinni breytt í þá
áttina hér á landi, það sé það eina
skynsamlega.
Allir ættu að vita að það er mjög
óábyrgt að geyma skotvopn og skot
á sama stað.
„Það er nú heilbrigð skynsemi
að geyma aldrei skotvopn og skot
á sama stað. Það á alltaf að ganga
tryggilega frá öllum skotfærum. Ef
þú átt byssuskáp sem er með læstu
innra öryggishólfi þá máttu geyma
skotin í því. Ekki allir skápar hins
vegar eru með þannig hólfi en vel-
flestir," segir Ólafur.
Slysin gera ekki boð á undan sér
og Ólafur segir að aðalatriðið sé að
geyma skotvopn á öruggum stað.
„Ég veit nú ekki hvort hægt sé að
segja að slys tengd skotvopnum séu
algeng. Það er ekki nema um það bil
ár síðan að hræðilegt slys varð á Sel-
fossi þega óvitar voru að fikta með
byssur. Eitt slys er alltof mikið.“ ■
Sjóbirtingsveiði í Grímsá
Sjóbirtingsveiði er leyfð núna í Grímsá og byrjaði í fyrradag. Verður spennandi að sjá
hvernig tekst til, en oft er mikið af sjóbirtingi í henni á þessum tíma árs. A myndinni sést
Auður Óttarsdóttir sem búin er að setja í Maríulaxinn f Grfmsá fyrir skömmu en Ágúst
Bjarnason bfður eftir löndun fisksins.