blaðið - 07.10.2005, Page 38
22
www.vb.is
Lífið
Viðskiptablaðið 7. október 2005
Haustfagnaður Eimskips
Eimskip stóð fyrir haustfagnaði
fyrir starfsmenn sína á skemmti-
staðnum Nasa síðastliðinn föstu-
dag. Mikill fjöldi fólks maetti á
staðinn og var það mál manna að
vel hefði til tekist. Á meðan á
skemmtuninni stóð var starfs-
mönnum boðið upp á mat og vín.
Hljómsveitin í svörtum fötum
spilaði fyrir dansi og hélt uppi
miklu stuði.
Við þetta tækifæri var nýtt skipu-
lag kynnt starfsmönnum Eimskips
en unnið hefur verið að breyting-
um á skipulaginu undanfarnar
vikur.
Baldur Guðnason og Arna
Alfreðsdóttir.
Útkomu Fít-
onblaðsins
fagnað
Auglýsingastofan Fíton fagnaði á
föstudaginn útkomu hins árlega
Fítonblaðs. Haldin var vegleg sam-
koma vegna tilefnisins. Fjölmenni
mætti en m.a. boðið var upp á mat
og hljómsveit. Var það álit manna
að mjög vel hefði til tekist.
Efni Fítonblaðsins er fjölbreytt að
vanda. Einkum er þar að finna ým-
islegt sem tengist auglýsingabrans-
anum og ekki síst litið á hann út frá
sjónarhóli grafískrar hönnunar.
Þemað í blaðinu var brennivínið
en sá merki drykkur fagnar nú 70
ára afmæli.
Það gladdi því geð guma í sam-
kvæminu er þeir skelltu í sig
brennivíns „skotum", sem svo er
kölluð en gengu áður undir því
danska nafni snafs.
Konukvöld Debenhams:
Þjóðþekktar fyrirsætur
Hið árlega konukvöld Deben-
hams var haldið í fyrrakvöld,
miðvikudagskvöldið 5. október, í
verslun Debenhams í Smáralind.
Konukvöldið var til styrktar V-
dags samtökunum og veitti Deb-
enhams samtökunum styrk að
upphæð 1.000.000 kr. til stuðn-
ings baráttunni gegn ofbeldi á
konum.
Á konukvöldinu voru tónlistar-
atriði, brot úr Píkusögum og upp-
lestur Gerðar Kristnýjar úr vænt-
anlegri bók hennar og Thelmu
Ásdísardóttur. Síðast en ekki síst
var þjóðþekkt fólk með tískusýn-
ingu þar sem þau sýndu föt úr
Debenhams. Flest þeirra voru að
stíga sín fyrstu fyrirsætuskref, en
gerðu það til styrktar baráttunni
gegn ofbeldi á konum.
Fyrirsætur kvöldsins voru: Arn-
mundur Ernst Björnsson, Björn
Ingi Hilmarsson, Elma Lísa
Gunnarsdóttir, Gísli Marteinn
Baldursson, Guðni Ágústsson,
Hildur Petersen, Kolbrún Hall-
dórsdóttir, Inga Lind Karlsdóttir,
Ingibjörg Stefánsdóttir, Jasmine,
íslenski dansflokkurinn, Jón
Ólafsson, Logi Bergmann Eiðs-
son, María Björk Sverrisdóttir,
Stefán Jón Hafstein, Stefán Hilm-
arsson, Svanhildur Hólm, Þór-
unn Clausen og Þórunn Lárus-
dóttir.
í V I K U L 0 K
Kolbrún Halldórsdóttlr og Gísll Marteinn fara fyrlr ödrum fyrirsœtum.
Verulegar verðhækkanir Bordeaux-vína á Bretlandsmarkaði:
Ragnar Gunnarsson og Þormóður
Jónsson
Magnús Ragnarsson og Vidar
Gardarsson.
Stefón Snœr Grótarsson og Bragi
Ólafsson.
Um langtíma- og skammtímafjárfestingar
Gunnlauour Árnason
Góðir árgangar Bordeaux-vína
hafa hækkað verulega í verði
vegna hugsanlegra breytinga á
reglum um lífeyrispamað í Bret-
landi. Ef breytingarnar ná í gegn
verður leyfilegt að binda lífeyr-
inn með mun frjálslegri hætti en
áður og reikna vínsérfræðingar
með auknum fjárfestingum í gæða
vínum.
Margir versla með vín eins og
hlutabréf og hækka verðin í sam-
ræmi við framboð og eftirspurn.
Vínseljendur í Bretlandi segja að
verðhækkun Bordeaux-vína þar
megi að miklum hluta rekja til
væntanlegra breytinga á reglum
um lífeyrisspamað.
„Ég hef aldrei séð neitt þessu
líkt,“ segir Simon Staples, sölu-
stjóri hjá Berry Bros & Rudd, sem
er ein elsta vínverslun Bretlands.
„Eftirspurnin hefur rokið upp
þrefalt og um 80% hennar má
rekja til breytinga á reglum um
lífeyrisspamað. 1982-árgangur-
inn (af Bordeaux) hefur hækkað
um 30-60% á síðustu vikum.“
segir Staples.
Eftir verðhjöðnum síðustu ára
hefur eftirpum eftir góðum Bor-
deaux-árgöngum — 1982, 1990,
1996 og 2000 — aukist mikið og
verðið hefur hækkað að meðaltali
um 15-20%.
„Það er greinilega meiri áhugi
nú á Bordeaux-vínum en áður,"
segir Chadwick Delaney, sölu-
stjóri Justerini & Brooks vínversl-
unarinnar. „Það virðist sem svo
að vínmiðlarar og fjárfestar séu að
tryggja sér flöskur áður en regl-
urnar taka gildi,“ segir Delaney.
Hann tekur þó fram að hugsan-
legir kaupendur verði að varast
að láta ekki plata sig og kaupa vín
sem á endanum em ekki góð fjár-
festing. „Það eru aðeins 40 eða 50
góðir fjárfestingarmöguleikar."
Sumir vínseljendur benda þó á
að margt sé líkt með verðhækk-
unum Bordeaux-vína nú og þegar
kampavínsbólan sprakk stuttu
eftir aldamótin. Búist var við að
skortur yrði á freyðivínum frá
Champagne-héraði vegna alda-
mótanna og tilheyrandi fögnuði
tengdum þeim. Ekki rættist sú
spá og verðið lækkað fljótt aftur
þegar kom í ljós að nóg var til.
En fyrir þá sem vilja taka áhætt-
una og fjárfesta í Bordeaux-vín-
um er vert að hafa vaðið fyrir neð-
an sig. Eftirfarandi framleiðendur
em með þeim sterkustu í hérað-
inu og allir eru fyrsta flokks
(premier cm). Chateau Laflte-
Rothschild, Chateau Latour,
Chateau Margaux, Chateau
Haut-Brion og Chateau Mouton-
Rothschild.
Ágætis skammtímafjárfesting.
Það má ekki gleyma því að vín er
gert til þess að njóta þess. Norton
Cabernet Sauvignon Reserve
(Birgir: Rolf Johansen & Co ehf.;
Verð: 1.390 krónur) ergóð skamm-
tímafjárfesting. Þetta er þétt og
samþjappað vín með sterkum
ávexti og súkkulaði undirtónum.
Ég náði ekki að negla ávöxtinn en
hefði gert tilraun til að galdra hann
fram með smá súkkulaðimola ef ég
hefði átt hann til. Ávöxtur í rauðvín-
um getur orðið auðþekkjanlegri ef
víninu er rennt yfir súkkulaðimola
sem maður geymir í munninum.
Annars drakk ég vínið með
lambalundum og smellpassaði
það. Þetta ákveðna Norton-vín er
þurrt og með góða fyllingu og fínt
með villibráð. Svo er líka hægt að
laga lamb í villibráðarstíl. Grilla
lundir eða fillet, setja rifsberja-
hlaup og balsamico-edik í pott og
nota sem sósu og rífa parmaost yfir
og pipra. Gæti ímyndað mér að
Norton Malbec Reserve (Birgir:
Rolf Johansen & Co ehf.; Verð:
1.390 krónur) gæti líka passað vel
með þessum rétti, án þess þó að
hafa bragðað það.