blaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 4

blaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 4
4 I INNLEWDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 blaöiö Slippstöðin Starfsemi hefst á morgun Tveir fyrrverandi starfsmenn Slippstöðvarinnar eru í forsvari fyrir nýtt félag sem hyggst hefja starfsemi á ný á athafnasvæði Slippstöðvarinnar á Akureyri. Ekíd lá fyrir 1 gær hve margir starfsmanna fyrirtækisins sem tekið var til gjaldþrotaskipta fyrir skömmu yrðu ráðnir aftur. Samningar hafa tekist við skiptaráðanda og hafnaryf- irvöld um leigu á tækjum og húsnæði á svæðinu. Þorsteinn J Haraldsson sem gegndi stöðu trúnaðarmanns starfsmanna Slippstöðvarinnar sálugu sagðist sáttur við gang mála í samtali við Blaðið í gær. Hann sagði hlutina hafa gengið hratt fýrir sig og var ánægður fyrir hönd starfsmanna, þó ekki lægi fyrir hvort allir fengju strax vinnu á ný. Einnig sagði hann einhverja starfsmenn þegar komna í aðra vinnu. Umgengnisréttur virtur að vettugi Fjölmörg dæmi um það að mœður loki á umgengnisrétt barnsfeðra ogfá úrrœði virðast verafyrir þá til að knýjafram rétt sinn Fjölmörg dæmi eru um það að móð- ir með forsjá yfir barni neiti barns- föður að nýta umgengnisrétt sinn. Staða föðurs í svona tilfellum er afar erfið því erfitt getur verið fyr- ir hann að knýja barnsmóður til að virða umgengnisrétt og dæmi um að mál hafi verið að velkjast um í dómskerfinu í allt að fjögur ár. Kærutími í svona málum er langur og eflaust fáir feður sem vilja ná í börn sín með lögregluvaldi. Einn viðmælandi Blaðsins segir að rétt- ur barnsfeðra sé nánast enginn í svona málum og hann standi alveg ráðþrota. „Sýslumannsembættið er alveg valdalaust. Þeir hafa vald til að úrskurða en þeir hafa ekki vald til að fylgja úrskurðinum eftir. Þeir hafa gefið mér þær skýringar að þetta kunni að taka allt að hundrað daga en á meðan heldur móðirin áfram að brjóta á rétti mínum.“ 350 símhringingar á hverju ári Samkvæmt Garðari Baldvinssyni, formanni Félags ábyrgra feðra, er víða pottur brotinn í þessum mál- um. Hann segist fá yfir 350 sím- hringingar á hverju ári frá fólki sem er í þeirri stöðu að annað for- eldrið komi í veg fyrir að það fái nýtt sinn umgengnisrétt við börnin sín. Um 85% þeirra sem hringja inn eru karlar. „Jafnvel þegar foreldrar hafa sameiginlega forsjá og helgar- pabba umgengni þá er það ekki óal- gengt að móðirin tálmar umgengni. Lögin eru þannig að báðir foreldrar eiga að sjá til þess að umgengni eigi sér stað en lögin eru þannig að það eru bara tvö úrræði til að knýja fram umgengni. Það er annars veg- ar svoköliuð innsetning þar sem lögreglan er kölluð til og börnin tekin af viðkomandi og hins vegar eru það dagsektir. Þetta er það sem feður hafa til að knýja fram um- gengni lögformlega." Garðar segir flesta feður kjósa að reyna á annað áður en krafist er lögregluvalds. Hann segir að hjá sýslumönnum á landinu séu árlega um tvö til þrjú þúsund mál í gangi um umgengni og meðlag en aðeins tvö til fimm mál um dagsektir og þau geti verið sama málið aftur og aftur. „Að okk- ar mati eru því engin úrræði til af því að löggjafinn leggur sig fram að tryggja rétt forsjáforeldris en ekki umgengnisforeldris." Hallará barnsföður Garðar segir löggjafann oftast túlka mál og vitnisburði á þann hátt að það halli á barnsföður. Hann segir að faðir einn sem stundaði knatt- spyrnu hafi verið neitað um forsjá á þeim forsendum að knattspyrna væri ófjölskylduvæn íþrótt. „Við sjá- um að það þyrfti tvennt að gerast. Að löggjafinn breyti áherslum og virði rétt þessara þriggja aðila. Við teljum að lög um sameiginlega for- sjá og jöfn umönnun verði megin- regla við skilnað eða sambandsslit nema sýnt sé fram á að annað for- eldrið sé óhæft af einhverjum ástæð- um og að framlag foreldra skiptist einnig eftir tekjum.“ Garðar segir líka mikilvægt að lagðir séu meiri peningar af hálfu hins opinbera í Fjölmörg dæmi eru um aö móðir sem hefur forsjá með barni neiti barnsföður um að nýta umgengnisrétt sinn. þessi mál til þess að flýta fyrir öllu ferlinu. Að hans mati þarf að finna lausn svo hægt sé að beita einföld- um úrræðum til að knýja á um um- gengni. Nú sé staðan þannig að mál taki alltof langan tíma í kerfinu. Hann nefnir frystingu meðlags og barnabóta sem dæmi um möguleg úrræði. Unnið að endurbótum Jóhanna Gunnarsdóttir, lögfræðing- ur hjá dómsmálaráðuneytinu, segir að í lagaákvæðum um umgengni og þvingunarúrræði í þeim tilvik- um þar sem umgengni sé tálmuð sé mælt fyrir um ýmiss möguleg at- riði og hvernig skuli fara með þann- ig mál. Hún segir þó að í erfiðum málum geti málarekstur tekið lang- an tíma. „í ráðuneytinu er núna ver- ið að skoða þessi mál sérstaklega. Forsjárnefnd skilaði skýrslu fyrr á þessu ári um tillögur að ýmsum lagabreytingum á þessu sviði sem er verið að skoða í þessum töluðum orðum. Niðurstaðan af þessari end- urskoðun hér í ráðuneytinu er svo að vænta innan skamms,” segir Jó- hanna. ■ ÞREKTÆ34I P í úrvali ET-eaoD Mótor:1.5HPContinuous Hlaupaflötur:45x130cm Hraði: 0,8-16 Km/Klst Skjár: Tími-Vegalengd- Hraði-Kaloriur-Púls 7 Æfingakerfi Halli: Stillingar 0-12% Samanbrjótanleg:já Kr 97.900.-) Cá? FJALLAHJOLABÚÐIN FAXAFENI 7 S. 5200 200 MÁN - FÖS. KL. 9-18 lau kl. 10-14 WWW gQp ÍS íslensk Apple-búð í Svíþjóð slær í gegn Örtröð myndaðist á föstudagsmorgun þegar ný Apple-búð í eigu íslenska fyrirtækisins Apple IMC var opnuð I Stokkhólmi. Fjöldi manns kom sér fyrir í röð utan við búðina um nóttina og þegar opnað var að morgni voru um 500 spenntir aðdáendur Apple tilbúnir með veskin. Þetta er fjórða Apple-búðin með þessu sniði, sem opnuð er á Norðurlöndum, en ætlunin er að fjölga þeim frekar á næstu árum. Innan skamms verður Apple-búðin á fslandi svo flutt um set, en opna á glæsilegt Apple-setur í speglahúsinu svonefnda, sem er á horni Laugavegar og Kringlumýrarbrautar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.