blaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 blaðiö Kvennafrídagurinn endurvakinn Mótmæla kynjabundn- um launamun Kvennaírídagurinn verður endur- vakinn 24. október nk en þá verða liðin 30 ár síðan um 25 þúsund konur íjölmenntu á Lækjartorg til að mótmæla stöðu kvenna í atvinnulíf- inu. Markmiðið nú er líkt og áður að vekja athygli á vinnulramlagi kvenna fyrir íslenskt eínahagslíf. í fréttatilkynningu aðstandenda Kvennafrídagsins kemur ffam að þrátt fyrir að atvinnuþátttaka kvenna á íslandi sé með því hæsta í heiminum séu laun kvenna að meðaltali mun minni en laun karla. Að sögn Eddu Jónsdóltur, verkefiia- stjóra Kvennafrídagsins, standa tíu kvennafélög ásamt launþegahreyf- ingunni að kvennafrideginum að þessu sinni. Hún segir að á þessum þrjátíu árum hafi ýmislegt breyst til batnaðar en bætir við að enn sé langt í land að fullu jafiirétti sé náð. „Markmiðið hjá okkur núna er að vekja athygli á þessum launamuni sem er ennþá til staðar. Ennþá í dag sé miðað við skattskýrslur frá því í fýrra þá er launamunurinn sá að konur eru með 64,15% af atvinnutekjum karla,“ segir Edda. Stakirjakkar í miklu úrvali Opnunartími mán-fös. 10-18 laugardaga 10-16 Ný heiðursverðlaun Myndstef veitir ífyrsta skipti verðlaun fyrirframlag til myndlistar Heiðursverðlaun fyrir afburða framlag til myndlistar verða afhent í fyrsta skipti 31. október nk. Verð- launin verða veitt fyrir afburða framlag til myndlistar, framúrskar- andi myndverk eða sýningar. Til greina koma allir myndhöfundar á Islandi sem hafa það sem meginat- vinnu að skapa myndverk. Er þá um að ræða ljósmyndara, myndlistar- menn, arktitekta, grafíska hönnuði og leikmynda- og búningahönnuði. Verðlaununum verða ekki ætlað að heiðra sérstaklega ævistarf höf- unda heldur fyrst og fremst ný eða nýleg verk. Að sögn Knúts Bruun, formanns stjórnar Myndstefs, er þetta leið fyrir félagið að koma þeim peningum sem félagið innheimtir í formi höfundarréttargjalda til baka til þeirra 1.400 félagsmanna sem skráðir eru í félagið. „Myndstef er að innheimta höfund- arréttargjöld sem höfundarnir eiga. í nokkrum tilvikum koma innheimt- urnar með nafni, þ.e. við vitum ná- kvæmlega hverjum er verið að borga. Stærsti parturinn er þó að koma inn í þannig formi að ómögulegt er að skilgreina höfundinn. Við þurfum samt sem áður að koma þessum pen- ingum út aftur og það gerum við í formi styrkja til höfunda. Við höfum nú úthlutað tæpum 20 milljónum á síðustu þremur árum í formi verk- efna- og ferðastyrkja,“ segir Knútur. Að sögn Knúts er áætlað að veita þessi verðlaun a.m.k. til næstu þriggja ára og sjá síðan hvernig stað- an verði þá. í dómnefndinni sitja Val- gerður Bergsdóttir, myndlistakona, Guðmundur Ingólfsson, ljósmynd- ari og Björgólfur Guðmundsson fyrir hönd Landsbankans en bank- inn er fjárhagslegur bakhjarl verð- launanna sem nema einni milljón króna. „Við teljum okkur vera búin að tryggja þessi verðlaun í þrjú ár. Eftir það sjáum við hvort þetta hafi kannski runnið sitt skeið. Manni finnst pínulítið eins og t.d. með Edduna að það sé nú svolítið fárán- legt að vera með þetta ár eftir ár í svona litlu samfélagi. Fólk verður þreytt á þessu og þess vegna ákváð- um við að hafa þetta bara fyrst í stað í þrjú ár og sjá svo til hvernig þetta skilar sér.“ ■ Knútur Bruun, formaður stjórnar Myndstefs. BlaimteinarHugi Engin strætókort fyrir Árbæ og Grafarvog Eftir breytingar á leiðarkerfi strœtisvagna á höfuð- borgarsvœðinu er ómögulegtfyrir íbúa Grafarvogs ogArbæjar að nálgast strœtókort í sínu hverfi (búar Grafarvcgs- og Árbæjarhverfis verða að bíða um stund eftir að sala á strætókort- um hefjist í þeirra hverfum. tbúar Grafarvogs og Árbæjar geta ekki lengur keypt strætókort í sínu hverfi eft- ir að hið nýja leiðarkerfi Strætó bs. var tekið í notkun í sumar. Við breytingarn- ar var skiptistöðin í Ártúni lögð niður og þá í sömu mund eini staðurinn sem hingað til hafði þjónustað íbúa þessara hverfa um sölu strætókorta. Nokkur óánægja er meðal íbúanna enda finnst þeim ólíðandi að strætó vanræki jafn stórt hverfi. Einn óánægður viðskipta- vinur benti á að í Grafarvogi einum á stigaganginn Falleg aðkoma aö heimilinu skiptir máli. Teppi er slitsterkt gólfefni sem auðvelt er að þrífa, hljóðeinangrandi og hlýlegt. iím Við seljum vönduö og endingargóð teppi sem eru ofnæmisprófuð og á góðu verði. o óáp/j^i/ byggi fleira fólk en á Akureyri og hrein fásinna að jafn fjölmennur hópur geti ekki nálgast þessa grunnþjónustu í sínu nágrenni. „Þetta er óþolandi þjónusta við fólk sem þarf kannski helst á Strætó að halda, þ.e. fólk sem býr í úthverfiin- um,“ sagði einn íbúi Grafarvogs. Beðið eftir smartkortum Að sögn Þórhalls Halldórssonar var það vitað fyrirfram að við breytingarn- ar á leiðarkerfmu mundi þessi tegund þjónustu falla niður í áðurnefndum hverfum. Hannsegir að nú sé verið að undirbúa rafrænt greiðslukerfi fyrir strætisvagnana en ekki sé búið að festa ákveðna dagsetningu í þeim efnum. „Við höfum verið að undirbúa rafrænt greiðslukerfi í vagnana. Það hafa ekki komið fastar dagsetningar á það en ef það verður meiri dráttur á því þá verð- um við okkur útum söluaðila í Grafar- vogi,“ segir Þórhallur. Hann segir erfitt að gera samninga við einstakar sjoppur í hverfunum um sölu strætókorta en bendir á að nokkrar lausnir séu inni í myndinni ef til þess kemur að hefja sölukortaáný. Nokkuð kvartað Þórhallur segir að Strætó bs. hafi borist þó nokkrar kvartanir vegna þessa máls alveg frá því að kerfinu var breytt í sum- ar. Aðspurður um það hvað íbúar þess- ara hverfa eigi til bragðs að taka til að verða sér úti um strætókort segir hann nokkra möguleika í stöðunni m.a. að kaupa kort af strætisvagnstjóra. „f þess- ari stöðu eru næstu sölustaðir Mjóddin, Hlemmur, Smáralind eða Kringlan því miður er það þannig. Ef við fáum að láta þennan mánuð líða þá verður fljótlega bætt úr þessu en í millitíðinni getum við lítið annað gert en að biðjast velvirðingar á þessu.“ ■ Góð Heilsa gulli betri www.nowfoods.com Nýbýlavegi 12 200 Kópavogi Sími 554 4433 ni 533 5060 epp.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.