blaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 26

blaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 26
26 I SNYRTIVÖRUR MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 blaöiö Útsölustaðir: Debenhams, Hagkaup, Lyf og heifsa, Lyfja, nagla- og snyrtistofur. 2005 OPI Products Inc. Almennt hreinlœti má aldrei gleymast Vemdun húðar um vetur Nú þegar veturinn gengur í garð þá breytist umhirða húð- arinnar töluvert. Það þarf að vernda hana fyrir kulda enda er húðin viðkvæm fyrir öllum hitabreytingum. Sigríður Ólafs- dóttir hjá Snyrtistofunni Neroli er með nokkur góð ráð í handrað- anum um verndun húðarinnar í kuldaköstum vetrarins. Samkvæmt Sigríði er mjög einstak- lingsbundið hvernig krem henta hverjum og fer það algjörlega eft- ir húðgerðinni. „Oft er talað um að nota þykkari krem á veturna og þynnri á sumrin. Það er oft til samskonar krem í línunum og þá þykkari fyrir veturna og þynnri á sumrin. Það er meiri vörn í þykkari kremunum, þau eru lengur að fara inn í húðina og duga því lengur.“ Vanda þarf val á hreinsiefnum Sigríður segir að allir þurfi þó að vera meðvitaðir um hvernig húðgerð þeir séu með. „Fólk þarf að vera svo- lítið meðvitað um hvernig er húðin mín og hvernig bregst hún við kulda, hita og sól. Svo mega konur aldrei gleyma almennu hreinlæti og verða alltaf að þvo farðann af sér, þvo sér í framan áður en þær fara að sofa og setja á sig krem og olíur. Þegar mað- ur sefur þá er svo mikið endurnýj- unarstarf í húðinni. Svo þarf líka að vanda valið á hreinsiefnum og nota alls ekki of sterk hreinsiefni.“ Sérfræðiþjónusta til að finna rétta kremið Sigríður segir að það sé alltaf hægt að finna krem og olíur sem henti öll- um mjög vel. „Yfirleitt stendur það á kremunum fyrir hvaða húðgerð þau eru ætluð. Framsæknari merki eru þó farin að vanda sig rosalega í efna- innihaldi og þar þarf sérfræðiþjón- ustu til að finna rétta kremið.“ Að lokum gaf Sigríður lesendum með viðkvæma og feita húð nokkur ráð til að vernda húðina. Viðkvæm húð Þeir sem eru með viðkvæma húð eru með viðkvæmar háræðar og roðna í framan í kulda. Því fólki er ráðlagt að nota jafnvel farða áður en það fer út í kuldann og helst ekki kökumeik heldur fljótandi farða. Kökumeik er blandað púðri og það kemur svo mikil þéttni í það að húðin andar illa undir. Meikið er bara aukalag utan á húðinni sem verndar hana. Konur með viðkvæma húð eiga að nota mild efni því það eru efnin sem erta húðina. Þeir sem eru viðkvæm- ir þola oft ekki lyktarefni, litarefni eða rotvarnarefni. Feit húð Fyrir þá sem eru með feita húð er gott að nota púður því það tekur mesta glansinn af. Þeir sem eru með feita húð ættu að vera með léttari krem sem innihalda jafnvel minni fitu og til eru krem með aromatísk- um olíum sem koma jafnvægi á húð- ina. Margir álíta að það eigi ekki að setja olíur á feita húð en með þess- um olíum virkar það. ■ svanhvit@vbl.is Möndlukossar ILush má finna guðdóm- legt andlitskrem sem ber nafnið Almond kisses. Kremið inniheldur möndluolíu, kókoshnetu- smjör og avacado olíu. Eftir notkun verður húð- in mjúk, ilmandi og þægi- leg viðkomu. g Krem í stað húðslípunar Endurnýjun yfirborös húðar L'oréal hefur sent frá sér frábær krem sem virka líkt og húðslípun að því leyti að þau end- urnýjayfirborðs- meðferð húðar- 'C. innar. Kremin eru einföld, þægi- leg og eru orðin gríðarlega vinsæl á þeim tíma sem þau hafa verið í sölu. L'oréal ReFinish kremin eiga að gefa húðinni einstaka út geislun og frísklegra útlit auk þess sem þau minnka fínar línur, hrukkur og fjar- lægja skemmdir af völdum sólarinnar. -Ul\ «SB* Fyrst er fyrra kremið borið á sem er krem- kennd, öflug for- múla sem inni- heldur efnasam- setninguúrörsmá- um kristöllum. Krem þetta hreins- ar húðina og end- urnýjar yfirborðið. Seinna kremið er eftirmeðferðar- krem sem gefur raka og fullkomnar árangurinn. ■ svanhvit@ vbl.is Silkimjúk húð með Nutri Intense Frá Lancóme er kominn góður maski fyrir þurra húð sem mýkir hana og endurnýjar. Maskann á að bera í þykku lagi á andlitið og láta vera í fimm mínútur. Síðan á að fjar- lægja maskann af með bréfi en ekki þvo andlitið. Húðin í andlitinu virk- ar afslöppuð og silkimjúk. ■

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.