blaðið - 10.10.2005, Page 10

blaðið - 10.10.2005, Page 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 blaöiö Rússar hætta notkun eldflaugar Mistókst að koma gervihnetti á sporbaug Rússar hafa hætt tímabundið notkun Rokot-eldflaugar sem notuð var við misheppnaða tilraun til að koma gervihnettin- um Cryosat á sporbaug um jörðu. Rokot-eldflauginni verður ekki skotið á loft aftur á meðan beðið er niðurstöðu rannsóknar á því hvað fór úrskeiðis hafði Rúss- neska ríkissjónvarpið eftir geim- rannsóknastofnun landsins. Gervihnötturinn féll í Atlantshafið eftir að hafa verið skotið á loft í Plesetsk í Norður-Rússlandi á laug- ardag. Svo virðist sem hluti eld- flaugarinnar hafi ekki skilið sig frá hnettinum vegna tækniörðugleika. Það gerði það að verkum að aðalvél hennar hélt áfram að ganga eftir að það hefði átt að slokkna á henni. Samkvæmt fréttum frá Evrópsku geimvísindastofnuninni sem stend- ur að Cryosat-áætluninni féll bæði gervihnötturinn og eldflaugin í haf- ið norður af Grænlandi, ekki langt Reiðarslag fyrir Geim- vísindastofnunina Þetta er mikið reiðarslag fyrir stofn- unina sem hafði vonast til þess að geta notað hnöttinn til að fylgjast með bráðnun íss á Norðurpólnum og útvega þannig áreiðanlegri upp- lýsingar sem nýta mætti til að rann- saka áhrif hlýnunar jarðar. Þetta þykir einnig mikið áfall fyrir Rússa sem hafa verið að reyna að hasla sér völl á þessu sviði geimrannsókna. Cryosat-áætlun Evrópsku geimvís- indastofnunarinnar hófst fyrir 7 árum og kostaði smíði gervihnattar- ins um 10 milljarða króna. Cryosat gervihnöttur Evrópsku geimvís- indastofnunarinnar féll f Atlantshaf eftir að hafa verið skotið á loft í Norður-Rúss- landi á laugardag. Gervihnötturinn Cryosat féll í Atl- frá Norðurpólnum. antshaf aðeins örfáum mínútum Kanpmannahöfn - La Villa ódýr og góð gisting miðsvæðis í Kaupmannahöfn. Tölum íslensku. Sími 0045 3297 5530 • gsm 0045 2848 8905 _____www.lavilla.dk • Geymið auglýsinguna_ Lítið loftljós 60 w Halog. Standlampi Kúplar frá Veggljós i-. Cube HM ■ V Ljósakróna Donald Tusk, forsetaframbjóðandi Borg- aralegs vettvangs, og Malgorzata kona hans, greiða atkvæði í forsetakosningun- um í Póllandi í gær. Forsetakosningar í Póllandi: Tusk talinn sigurstrang- legastur Donald Tusk, frambjóðanda Borg- aralegs vettvangs, var spáð sigri í forsetakosningunum í Póllandi sem fram fóru í gær. Tusk var spáð 40% fylgi en Lech Kaczynski, fram- bjóðandi Laga og réttlætisflokksins kemur fast á hæla hans með 35% fylgi samkvæmt könnunum. Þessir tveir flokkar sem báðir eru til hægri í stjórnmálum fóru með sigur af hólmi í þingkosningum í landinu fyrir tveimur vikum og eiga nú í stjórnarmyndunarviðræðum. Kjör- sókn var dræm framan af degi í gær en stjórnmálaskýrendur höfðu velt fyrir sér hvort margir myndu mæta á kjörstað í þetta sinn í ljósi afar slakrar kjörsóknar í þingkosning- unum. Þá var kjörsókn aðeins tæp 40% og hafði hún ekki verið lægri frá falli kommúnismans í landinu árið 1989. Alberto Fujimori, fyrrverandi forseti Perú, vonast til að geta boðið sig fram i forseta- kosningum f landinu á næsta ári. Fujimori vill bjóða sig fram Alberto Fujimori, fyrrverandi for- seti Perú, vonast til að geta boðið sig fram í forsetakosningum í land- inu á næsta ári. Fujimori sem er af japönskum uppruna hefur dvalið í útlegð í japan síðustu fimm ár eftir að hafa neyðst til að segja af sér emb- ætti vegna spillingarmála. Fujimori á yfir höfði sér málshöfðun ef hann snýr aftur til Perú þar sem hann er eftirlýstur fyrir aðild að spilling- armáli og vegna gruns um að hafa staðið að baki morðum á 25 meint- um uppreisnarmönnum Maóista. Stjórnvöld í Perú hafa meinað Fujimori að bjóða sig fram til ársins 2010. „Fujimori mun ekki geta boð- ið sig fram í forsetakosningunum vegna þess að um leið og hann stíg- ur fæti á perúíska jörð verður hann handtekinn og stungið í fangelsi,“ sagði Macchiavello, sendiherra Perú í Japan. Stuðningsmenn Fujimoris fara aftur á móti fram á að ákærur gegn honum verði felldar niður.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.