blaðið - 10.10.2005, Side 30
V
30 I ÍPRÓTTIR
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 blaöiö
Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals:
Sorgleg niðurstaða
Valur tapaði i-8fyrir þýska liðinu Potsdam á
Laugardalsvelli í gcer. Tapið var alltofstórt en
Potsdam eru núverandi Evrópumeistarar.
Valsstúlkur töpuðu 8-i fyrir Evrópu-
meisturum Potsdam í Evrópukeppni
meistaraliða á Laugardalsvellinum í
gær. Þetta var fyrri leikurinn í 8-liða
úrslitum keppninnar en ljóst er að
við ramman reip verður að draga á
sterkum heimavelli liðsins í seinni
leiknum næstkomandi sunnudag.
Potsdam leiddi 2-1 i hálfleik en
Laufey Jóhannsdóttir varð fyrir því
óláni að skora sjálfsmark en Guðný
Óðinsdóttir jafnaði fyrir Val. Pots-
dam stillti upp níu landsliðskonum
Þýskalands sem eru heimsmeistar-
ar en liðið er meðal allra sterkustu
kvennaliða í heiminum í dag. Elísa-
bet Gunnarsdóttir þjálfari Vals var
sammála því að tapið væri alltof
stórt: „Já, munurinn á liðunum er
ekki sjö mörk í þessum leik, það er
alveg klárt mál. Við spiluðum mjög
vel á köflum og þá sérstaklega í fyrri
hálfleiknum þar sem við réðum
gangi leiksins á köflum. Við sköpuð-
um okkur fullt af fínum færum og
við vissum það fyrir leikinn að við
þurftum að nýta þau vel en það tókst
því miður ekki. Þær nýta líka átta af
níu færum sínum í þessum leik, það
er ekkert flóknara en það, þær áttu
eitt skot yfir en nýttu annars öll sín
færi.“
Óásættanleg niðurstaða
Varnarleikur Vals var ekki til fyr-
irmyndar eins og tölurnar gefa til
kynna: „Já hann var dapur en við
erum að spila á móti leikkerfinu 3-4-
3 sem er leikkerfi sem við þekkjum
ekki og höfum aldrei spilað gegn.
Þær hafa 100% sóknarmenn í hverri
einustu stöðu, sjö alveg frábæra
sóknarmenn, og það var mjög erfitt
fyrir okkur að leysa það. Við hefð-
um getað gert þetta miklu erfiðara
með því að setja á þær mörk þegar
við höfðum tækifæri til þess. Svo
eru þarna vafaatriði í fyrri hálfleik
sem ég vildi gjarnan fá að líta betur
á því það hefði getað breytt leiknum
að fá það dæmt okkur í hag“ segir
Elísabet. Lið Potsdam er eins og áð-
ur sagði ógnarsterkt og var vitað að
leikurinn yrði Valsstúlkum erfiður:
„Já við getum kannski ekki ætlast til
þess að fara með sigur af hólmi gegn
svona góðu liði en 8-1 er niðurstaða
sem er ekki ásættanleg." Þrátt fyrir
stórtap og enga möguleika á því að
komast áfram er árangur Vals frá-
bær enda sá besti sem íslenskt lið
hefur náð í Evrópukeppni: „Já en
það er bara ömurlegt að spila svona
leik á okkar heimavelli af því að við
erum búnar að gera það góða hluti
í þessari keppni. Mér fannst leikur-
inn í dag það góður að mörgu leiti
að það er sorglegt að niðurstaðan sé
svona“ segir Elísabet.
Bjóst við erfiðari leik
Frank Neubauer þjálfari Potsdam
sagði í samtali við Blaðið eftir leik-
inn að hann hefði búist við mun erf-
iðari leik en úr varð: „Já ég bjóst alls
ekki við því að skora svona mörg
mörk. Ég hélt að við næðum aldrei
að vinna svona stórt en ég er auðvit-
að mjög ánægður með úrslitin. Við
berum mikla virðingu fyrir Val, þær
stóðu sig mjög vel og þá sérstaklega í
byrjun leiks. En ég bjóst við erfiðari
leik, hann var reyndar mjög erfiður
allan fyrri hálfleikinn en við tókum
öll völd á vellinum í seinni hálfleik
og enduðum á því að vinna þetta
nokkuð auðveldlega.“ ■
Potsdam vilja Margráti
FrankNeubauerþjálfariPotsdamvar
yfir sig hrifinn af Margréti Láru Við-
arsdóttur, stormsenter Valsstúlkna í
leiknum í gær: „Hún er alveg frábær
leikmaður. Hún gerði okkur mjög
erfitt fyrir og hún getur vel spilað
með hvaða liði sem er í þýsku Bún-
deslígunni. Þegar hún kemur út um
næstu helgi ætla ég að fara í viðræð-
ur við hana og sjá hvað hún segir.“
Margrét Lára var stolt að heyra af
þessu mikla hrósi: „Þetta er frábært
lið og ef svona sterkt lið hefur áhuga
á manni þá er það bara besta hrós
sem maður getur mögulega fengið“
sagði Margrét skælbrosandi en í
þann mund gekk Neubauer framhjá
og knúsaði hana rækilega! „Ég hef
aldrei séð þennan mann áður“ sagði
Margrét undrandi en skellihlæjandi.
Auðvitað stefnir ein af okkar bestu
leikmönnum á atvinnumennskuna:
„Ég stefni að því einhvern tímann og
vonandi gengur það eftir.“ ■
KOMAl'SU
GÓÐUR KOSTUR í LYFTURUM
Raikkonen stal sigrinum
Finnski ökuþórinn Kimi Raikkonen
stal sigrinum í Japanskappakstrin-
um í Formúlu 1 um helgina. Raikkon-
en byrjaði í sautjánda sæti í ræsingu
en með mögnuðum akstri tókst hon-
um að vinna sig upp um hvert sætið
á fætur öðru en hann tók að lokum
fram út Giancarlo Fisichella á loka-
hringnum. Nýkrýndur heimsmeist-
ari Fernando Alonso endaði svo í
þriðja sæti og þar með tók Renault
fram úr McLaren í keppninni um
heimsmeistaratitil bílasmiða. Rena-
ult hefur tveggja stiga forystu fyrir
lokakeppnina sem fram fer í Shangh-
ai í Kína um næstu helgi. Raikkon-
en hefur þegar tryggt sér annað
sætið í heimsmeistarakeppninni
en Michael Schumacher og Juan Pa-
blo Montoya berjast um það þriðja.
Schumacher hefur tveggja stiga for-
skot en Fisichella getur reyndar enn
náð köppunum en hann er níu stig-
um á eftir Schumacher og þarf hann
því að sigra í Kína auk þess sem
hinir tveir þurfa að falla úr leik eða
enda neðar en í tíunda sæti. ■
Allir klárir í slaginn
Heiðar Helguson, Árni Gautur Ara-
son og Auðun Helgason gætu allir
verið í byrjunarliði Islands sem
mætir Svíum í undankeppni HM á
miðvikudaginn. Heiðar missti af 3-2
tapleiknum gegn Pólverjum vegna
persónulegra ástæðna en Árni Gaut-
ur þar sem unnusta hans á von á
barni. Árni gæti hinsvegar þurft að
fara frá Svíþjóð þar sem tilvonandi
markmaður er enn ekki fæddur.
Auðun Helgason meiddist í leikn-
um en Ásgeir Sigurvinsson annar
landsliðsþjálfari Islendinga sagði í
samtali við Fótbolti.net að Auðun
yrði líklega með. Þá verður Gunnar
Heiðar Þorvaldsson leikfær en hann
hefur verið sjóðheitur undanfarin
misseri með Halmstad í Svíþjóð
og er líklegur til að byrja leikinn.
Hannes Þ. Sigurðsson gerir einnig
tilkall til byrjunarliðssætis en hann
var besti leikmaður liðsins á föstu-
dag en þar skoraði hann annað mark
íslands. Líklegt er að Logi og Ásgeir
noti tvo sóknarmenn, annan aðeins
aftar en hinn en ef allir eru heilir
er líklegt að Heiðar vermi bekkinn
þar sem hann hefur lítið fengið að
spreyta sig með Fulham í ensku úr-
valsdeildinni. ■
*\ & , , 1 '&zl A | ft
^0 |^|®J fVI Knattspyrnusérfræðingarnir Willum og Gummi Torfa fara yfir mestu tilþrifin í KVÖLD KL 21 00 ásamt mistökunum sem áttu sér stað í leikjum helgarinnar.
1- _ 1 1 ■ 1 THVGGUU ÞÉR ÁSKRIFT ^ W ( SÍMA 800 7000, A WWW.ENSKI.IS M mtm £ 1 EÐA1NÆSTU VERSLUN SiMANS. B O L T 1 N N 0$ Jfe. *