blaðið - 19.10.2005, Side 14
blaðið*
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
BREYTA A
GÖLLUÐUM LÖGUM
Mikil og hörð umræða hefur orðið um svonefnt eftirlaunafrum-
varp ríkisstjórnar íslands að undanförnu. Ástæðan er að í
ljós hefur komið að kostnaður við frumvarpið var langt um-
fram það sem menn höfðu ímyndað sér áður. Gert hafði verið ráð fyrir
að kostnaður yrði í „versta falli“ um 440 milljónir króna á ári, en nú hef-
ur komið í ljós að hann nemur um 650 milljónum króna.
Við þetta „ágætá' fumvarp þarf augljóslega að gera nokkrar athuga-
semdir. 1 fyrsta lagi hljóta menn að staldra við og spyrja - af hverju lá
ekki fyrir, áður en frumvarpið var samþykkt, hvað það myndi kosta.
Menn virðast hafa skotið svona gróflega á það hversu margar milljónir
skattborgarar þessa lands þyrftu að greiða fyrir feitari launatékka fyrr-
um ráðherra og þingmanna - og skotið langt yfir markið.
Þetta er því miður ekki það eina sem hefur komið mönnum á óvart eft-
ir að frumvarpið var keyrt í gegnum þingið. Það er kunnara en frá þurfi
að segja að ein afleiðing frumvarpsins er að fyrrverandi ráðherrar hafa
alla möguleika á að þiggja full eftirlaun þrátt fyrir að stunda fulla vinnu
hjá hinu opinbera eða í einkageiranum. Rökin, sem notuð voru þegar ver-
ið var að keyra hin umdeildu lög í gegn, voru að það væri oft erfitt fyrir
þingmenn og ráðherra að finna vinnu við hæfi eftir að þeir hefðu misst
stól sinn á þingi. Hægt er að taka undir þau rök að hluta til, en segja má
að þau falli um sjálf sig þegar í ljós er komið að þeir sem þó fá vinnu eft-
ir þingsetu, njóta þessara kjara engu að síður. Slíkan hringlandahátt er
ekki hægt að líða.
Það hlýtur að vera krafa þjóðarinnar að þingmenn vandi til verka þeg-
ar lög eru sett. Það hlýtur líka að vera krafa þjóðarinnar að ef þingheimur
gerir mistök - eins og greinilegt er að gert var í þessu tilfelli - þá séu þau
leiðrétt. Sú röksemdarfærsla að erfiðara sé að taka réttindi af mönnum
en að setja þau á - rök sem notuð hafa verið til að útskýra af hverju ekki
er fyrir lifandi löngu búið að breyta hinum gölluðu lögum - hljóma ansi
léttvæg. Öryrkjar er hópur sem þekkir að breytingar á tekjustofni þeirra
eru oft gerðar afturvirkar. Þá er ekkert mál að taka af fólki það sem þeg-
ar hefur verið sett á. Kannski það sé auðveldara vegna þess að þingmenn
eru ekki að taka réttindi af sjálfum sér og vinum sínum!
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
BYRJENDUR f HEIMAVÍNGERÐ !
Áman stendur fyrir námskeiðum í heimavíngerð.
Næsta námskeið verður haldið miðvikudaginn
26. Október kl. 19:00
Farið verður yfir ferilinn við víngerðina og gefin góð ráð.
Leiðbeinendur eru starfsmenn Ámunnar.
Lengd u.þ.b. 2 klukkustundir.
Verð kr. 2.000- og innifalið er byrjunarsett.
Þáttakendum býðst 20% afsláttur af öllum vörum
Ámunnar á námskeiðskvöldinu.
Skráning og nánari upplýsingar á
www.aman.is og síma 533-1020.
(áHian)
14 I ÁLIT
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 blaðiö
VÍP VERDVIV m VKXA
PöMARAM B0SS;Er
víz> nnm m m vínnA
'hEUblAfJ FJölMiplASlAG ■
Pegar friðhelgi einka-
lífsins verður að víkja
Fyrir nokkuð mörgum árum sá ég
dramatíska og gott ef ekki sannsögu-
lega spennumynd í sjónvarpinu um
konu sem raðmyrðir karla. Seint í
myndinni kemur í ljós að faðir kon-
unnar hafði selt öðrum körlum að-
gang að henni þegar hún var stúlku-
barn. Við að horfa á myndina fékk
ég á tilfinninguna að morðin sem
konan framdi væru nánast eins og
smáglæpir við hliðina á þeim glæp-
um sem framdir höfðu verið á henni
sem barni. Mér þótti morðæði henn-
ar afar skiljanlegt og rökrétt - jafn-
rökrétt og sjálfsvíg, að annað hvort
gæti maður ekki lifað við slíkar
minningar eða yrði að finna ofsa-
fengna leið til að virkja reiðina.
Ólýsanlegir glæpir á allra vitorði?
Þess vegna verð ég nær agndofa af
undrun yfir því að sjá systurnar úr
gula húsinu i Hafnarfirði tjá sig af
yfirvegun og skynsemi um reynslu
sína. Greindar, þroskaðar og fallegar
konur. Eru engin takmörk fyrir því
hvað sumt fólk getur verið sterkt?
Ég get sem betur fer sagt að ég
vissi ekkert um glæpina í gula hús-
inu. Ég hef enda aldrei búið í Hafn-
arfirði. Mér hefur hins vegar borist
til eyrna að þessir glæpir hafi verið
alþekktir meðal nágranna fjölskyld-
unnar og skólabarna í hverfinu.
Ekki er hægt að slá því föstu að vitn-
eskja um verstu glæpina hafi verið
á almanna vitorði, þ.e. barnavænd-
ið, en a.m.k. kynferðismisnotkun
föðurins á stúlkunum. Það er því
afar erfitt að trúa þeim fulltrúum
kerfisins sem undanfarið hafa tjáð
sig í fjölmiðlum og ekki sagst vita af
neinu. Hinu verður hins vegar alveg
trúað að erfitt hafi verið um vik að
hlutast til um málin, jafnvel ómögu-
legt.
Barnaverndarmál geta nefnilega
án nokkurs vafa verið ólýsanlega
erfið úrslausnar. Tilhugsun um þau
setur mann a.m.k. i vanda: Annars
vegar krefst maður þess að búa í sam-
félagi sjálfstæðra einstaklinga þar
sem fjölskyldumál eru einkamál;
hins vegar verður að vernda saklaus
börn. Það getur verið erfitt að láta
þetta tvennt fara saman.
Ágúst Borgþór Sverrisson
Hamast gegn Barnaverndarnefnd
Þessa dagana rifjast upp fyrir mér
hvernig ýmsir fjölmiðlar hafa ham-
ast gegn barnaverndaryfirvöldum í
einstökum málum á undanförnum
árum. Mikið hefur borið á slíkum
skrifum í DV undanfarna mánuði
og fyrir nokkrum árum voru þau
áberandi í Mannlífi sem gekk einu
sinni svo langt að birta forsíðumynd
af forræðissviptri móður stífmál-
aðri og gera þannig úr henni stjörnu
um skeið. Barnaverndaryfirvöld
geta ekki tjáð sig um einstök mál
og því heyrast aðeins sjónarmið for-
eldra sem samkvæmt einhliða frá-
sögnum fjölmiðla hafa verið svipt
afkvæmum sínum að ósekju. Stund-
um nægja reyndar ljósmyndir af for-
eldrum einar og sér til að fullvissa
mann um að viðkomandi einstak-
lingur geti ekki alið upp barn. Þetta
eru ekki fordómar gegn útliti, en
sum andlit segja bara einfaldlega of
mikla og opinskáa sögu til að hægt
sé að leiða hana hjá sér, og þar með
verður öll blaðagreinin markleysa.
Því hefur hins vegar verið haldið
fram í mín eyru að foreldrarétturinn
sé gríðarlegar sterkur og að börn séu
ekki numin frá foreldrum nema í ítr-
ustu neyð. Tvö hryllileg barnsmorð
á síðustu árum eru vísbending um
að ekki sé gengið nógu hart fram 1
forræðissviptingum. Þetta mættu
fjölmiðlar hafa í huga áður en þeir
skrifa um næsta forsjársviptingar-
mál - þeir hinu sömu fjölmiðlar og
spyrja núna: Hvers vegna var systr-
unum í gula húsinu ekki bjargað?
Höfundur er rithöfundur.
Klippt & skoríð
Af forystugreinum Fréttablaðsins á
mánudag og DV í gær verður ekki
annað séð en að Baugsmiðlarnir vilji
friðmælast við Sjálfstæðisflokkinn undir nýrri
forystu. I Fréttablaðinu fjallar Guðmundur
Magnússon þannig
um „viðreisn hófsem-
innar" og Geir H. Ha-
arde sagður „réttur
maður á réttum tíma",
en í DV hvetur Páll
Baldvin Baldvins-
son til þess að íhaldið
og Samfylking taki
sameiginlega við stjórnartaumunum. Meira
að segja Jónas gamli Kristjánsson reynir
að stilla sig í dálknum fyrir neðan og talar vel
um landsfundi Sjálfstæðisflokksins. En síðan
springur hann raunar í lokin og llkir Haarde við
Mússólíní.
Pað er gömul saga og ný að hverjum
þyki sinn fugl fagur. Prófkjör sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, sem fram
fer 4. og 5. nóvember,
hefur þannig ekki ein-
kennst af miklum hita,
en hins vegar segja inn-
vígðiraðþað munibreyt-
ast fyrr en varir. En það
er athyglisvert að fara
á vefi oddvitaframbjóð- _
endanna, Gísla Marteins Baldurssonar og
Vilhjálms Þ. Vllhjálmssonar, þar sem lagt
er út af mismunandi
skoðanakönnunum. í
einkasamtölum eru
þær túlkanir svo enn
glæsilegri. Þannig mun
Vilhjálmur njóta meiri
vinsælda hjá fólki utan
Sjálfstæðisflokksins en
klipptogskorid@vbl.is
Gísli Marteinn, sem hans menn segja vísbend-
ingu um að hann sé líklegri til þess að landa nýj-
um kjósendum fyrir íhaldið. Gíslamenn segja á
hinn bóginn tölurnarsönnun þess að Vilhjálm-
ur sé veikari frambjóðandi, fyrst andstæðingar
sjálfstæðismanna vilji frekar kljást við hann.
Eg ætla að biða" er yfirskrift auglýs-
ingaherferðar gegn vímuefnum sem
kynnt var á mánudag við upphaf
vímuvarnarviku, en markmið hennar er sagt
vera það „að hvetja unglinga til þess að taka
ákvörðun um að bíða með að prófa áfengi, tób-
ak eða vímuefni þar til þau hafa þroska til að
velja." Augnablik... hvað er eiginlega verið að
segja? Að svo framarlega sem tímasetningin
sé rétt geti menn valið sér eitur við hæfi? Hér
hafa skilaboðin eitthvað þvælst fyrir mönnum.