blaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 30

blaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 30
30 I ÍPRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 bla6iö Logi Ólafsson fyrrum landsliðsþjálfari: ,,Það lá eitthvað voðalega mikið á þessu" Aðspurður um hvort hann og Ásgeir hafi haft það á tilfinningunni þeg- ar þeir fóru í leikinn gegn Svíum 12. október að þeir yrðu ekki áfram landsliðsþjálfarar sagði Logi: „Ja, ég þekki nú mitt heimafólk og hef verið viðloðandi KSÍ síðan 1993. Ég segi eins og Ólafur Ragnar Grímsson, með einum eða öðrum hætti, ég þekki alveg vinnubrögð- in og ég veit alveg hvernig menn eru í framkomu. Ég veit ekki eft- ir hverju menn biðu, ég veit ekki hvað hefði gerst ef við hefðum unn- ið Svía. Hefði það breytt einhverju? Ég efa það,“ sagði Logi Ólafsson í samtali í útvarpsþættinum Mín skoðun á XFM i gær. „Ég sagði það við einhvern blaða- mann eftir leikinn gegn Svíum að ég teldi það svona heiðarleg og eðlileg vinnubrögð að þegar okkar samningur rynni út þá myndum við setjast niður með þeim mönn- um sem hafa tögl og haldir gagn- vart landsliðinu hjá sambandinu og fara yfir farinn veg og athuga hvað hefur verið vel gert og hvað má bæta. Ekki bara ef við myndum halda áfram heldur einnig fyrir þann sem tæki við. En það var ekki upp á teningnum. Það lá eitthvað voðalega mikið á þessu. Hefði engu breytt hefðum við unnið Svía Ég var staddur úti í Danmörku þeg- ar Ásgeir hringdi í mig á fimmtu- dagskvöldinu. Við höfðum verið með þessum mönnum í töluverðu návígi í eina átta eða níu daga og svo þegar menn eru komnir hver í sitt horn, að þá er hringt og þá þarf að hittast. Ég sagði þá náttúrulega að ég kæmist ekki og það vissu þeir. Ég var búinn að segja fram- kvæmdastjóranum og fleirum frá þessu að ég kæmi til landsins á mánudeginum en þeir sáu ekki ástæðu til að bíða eftir því. Ég er ekki að segja að það hefði breytt neinu og eins og ég sagði áðan held ég að þó við hefðum unnið Svía þá hefði það ekki breytt neinu. Ég tel það bara eðlilegt í knattspyrnunni að ræða málin og klára þau en ég ber ekki neinn kala eða neitt slíkt til neins af þessum mönnum. Þetta eru allt mjög góðir menn en þetta er bara þeirra val um hvernig þeir vilja stjórna þessu og þeir hafa völdin til þess og þetta eru alveg sömu mennirnir og þeir voru áð- ur þegar ég vann með þeim. Ég er bara að lýsa minni skoðun hvernig hefði verið rétt að ganga frá svona málum. Sá á völina sem á kvölina, sagði skáldið,“ sagði Logi Ólafsson fyrrum landsliðsþjálfari í knatt- spyrnu. Leikmenn urðu meira ábyrgir Logi talaði í gær um fótboltann sem landsliðið hafi verið að spila að und- anförnu og svo hvernig hann og Ás- geir hefðu nálgast leikmenn þegar ákveðin kaflaskipti urðu á leik liðs- ins og leikmannahópi. Logi sagðist vera ánægðastur með það að hafa tekist að snúa gangi mála frá því fyrir ári. ísland hafi verið með sama mannskap og frá árinu áður sem náði svo ágætum árangri. Ás- geir og Logi settust niður með KSÍ mönnum og sögðust ætla að breyta um leikstíl og einnig að taka til í mannskapnum. „Við settum mannskapinn niður í fjóra hópa, þar sem hópstjórar voru fjórir. Eiður Smári Guðjohn- sen með sóknarmönnum, Pétur Marteinsson var með varnarmönn- um. Við áttum í basli með föst leikatriði en Árni Gautur Arason stjórnaði þeim hópi. Síðan var Ól- afur Örn Bjarnason, varnarmaður og sálfræðinemi, með umgjörðina í kringum leikina og andlegt atgervi. Mönnunum var skipt jafnt niður í hópana og voru látnir svara tveim- ur spurningum. Lýstu þinni bestu upplifun sem landsliðsmaður og ef þú hefur ekki verið mikið í landslið- inu þá bara sem knattspyrnumað- ur. Þegar menn voru búnir að finna það út þá áttu þeir að svara spurn- ingunni: Hvernig náum við fram sömu stemmningunni og sama and-; rúmslofti aftur? Svo komu hóparn-' ir og gerðu grein fyrir sínum niður- stöðum. Niðurstaðan var að besta stemmningin hafi verið í leikjun- um gegn Italíu og gegn Þýskalandi. Þetta er viðurkennd aðferð í starfs- mannastjórnun sem lítur að því að snúa hlutunum við. Þar sem þú átt aðeins að taka út jákvæðu hlutina. Þetta skilaði sér vel að okkar mati. Menn voru að leggja sig verulega mikið fram. Þarna drógum við leik- menn meira inn sem ábyrga aðila. Ekki bara leikmenn sem mæta á æfingu. Okkur fannst þetta skila sér vel og leikmenn okkar eru til dæmis komnir með miklu meira sjálfstraust til að hafa boltann og þora að hafa hann hjá sér. Þetta á eftir að skila sér enn betur,“ sagði Logi Ólafsson í útvarpsþættinum Mín skoðun á XFM í gær. Miklar breytingar Það er ljóst að miklar breytingar hafa orðið á leikstíl íslenska A- landsliðsins i knattspyrnu að und- anförnu og miklu meira spil er í leik liðsins en oft áður. Það hefur verið á kostnað varnarleiksins en Logi sagði að hafi verið mikil kyn- slóðaskipti í hópnum. Til dæmis voru aðeins sjö leikmenn í hópn- um frá fyrri leik íslands og Sví- þjóðar fyrir ári síðan og mættust á Rásunda-vellinum fyrir nokkrum dögum. Logi sagði að varnarleikur- inn væri næsta verkefni til að tak- ast á við en þar væri ekki bara við vörnina að sakast heldur ætti allt liðið að sækja og allt liðið að verj- ast. Þetta eru hlutir sem eiga eftir að koma og það er mikill og góður efniviður sem við eigum í fótbolt- anum. Undankeppni Evrópumótsins hefst næsta sumar og það verður dregið í riðla í desember næst- komandi og það verður spennandi að sjá með hverjum við lendum í riðli. Xavierféllá lyfjaprófi en versig Portúgalski leikmaðurinn Abel Xavier, sem leikur með enska úrvals- deildarliðinu Middlesbrough, féll á lyfjaprófi. Hann var tekinn í próf af evrópska knattspyrnusambandinu eftir leik Middlesbrough og gríska liðsins Xanthi í Evrópukeppni félags- liða 29. september síðasthðinn en Middlesbrough sló gríska liðið út úr keppninni. Abel Xavier, sem er 32 ára gamall, segist vera saklaus. UEFA (Knattspyrnusamband Evrópu) sendi frá sér tilkynningu þar sem sagt var að Xavier hafi fallið á lyfjaprófi en ekki var þess getið um hvaða efni væri að ræða. Xavier, sem leikið hefur með Everton og Liverpool, á 20 landsleiki að baki fyrir Portúgal og hann á yfir höfði sér allt að tveggja ára keppnis- bann. Hjá UEFA er hins vegar mælst til að við fyrsta brot verði um 12 mán- aða keppnsibann að ræða. Xavier seg- ist ætla að berjast fyrir sakleysi sínu og sagði í gær að hann hafi aldrei tek- ið inn ólögleg efni vísvitandi. Hann skyldi þetta einfaldlega ekki. ■ Essien slapp við leikbann Michael Essien, leikmaður enska úr- valsdeildarliðsins Chelsea, fer ekki í leikbann eins og búist var við. Essien braut illa á Tal Ben Haim, leikmanni Bolton, í leik liðanna um síðastliðna helgi og þar meiddist Ben Haim nokkuð. Brotið var mjög ljótt og var Essien heppinn að Ben Haim meidd- ist ekki meira en raun varð. Dómari leiksins, Rob Styles, gaf Essien gula spjaldið fyrir brotið en Essien lá lengi á vellinum og fjölmiðlar á Eng- landi fullyrtu að Essien hafi gert sér upp meiðsli til að sleppa við rauða spjaldið. Ef svo var, þá heppnaðist það fullkomlega hjá Gana-leikmann- inum. Rob Styles dómari sagði eftir að hafa séð brotið í sjónvarpi eftir leikinn að hann hefði átt að sýna Essien rauða spjaldið. Enska knatt- spyrnusambandið hafði samband við FIFA (Alþjóða knattspyrnusam- bandið) vegna málsins og þar sem Essien fékk að líta gula spjaldið i leiknum, þá er ekki hægt að hækka þá refsingu eins og það er orðað. Því sleppur Michael Essien við þriggja leikja bann en langflestir sem sáu brotið i leiknum um helgina eru ekki í vafa um að Michael Essien hefði átt að fá að líta rauða spjaldið hjá Rob Styles.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.