blaðið - 19.10.2005, Qupperneq 31
biaöiö MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005
ÍÞRÓTTIR I 31
Körfubott-
inníkvöld
Tveir leikir eru í Iceland
Express-deild lcvenna í körfu-
knattleik í kvöld. Grindavík og
Breiðablik mætast í Grindavík
og hefst leikurinn klukkan
19.15 og á sama tíma í Keflavík
taka íslandsmeistararnir á
móti KR. Einhvern tímann
hefði það nú verið stórleikur
i kvennakörfunni en í kvöld
er búist við stórsigri Kefla-
víkur þar sem mikill munur
er á styrkleika þessara liða.
f Hópbílabikarkeppni karla
eru tveir leikir í kvöld. Valur
og Snæfell mætast í Laugar-
dalshöll og verður flautað
til leiks klukkan 19.00.
Haukar og Grindavík
mætast svo í íþróttahúsinu
að Ásvöllum í Hafnarfirði og
hefst leikurinn klukkan 2i.oo.>
Afreksfólk
framtíðar
íþróttabandalag Reykjavíkur
(IBR) og Sparisjóður Reykja-
víkur og nágrennis (SPRON)
undirrita í dag samstarfssamn-
ing um styrktarsjóð til handa
íþróttafélögum í Reykjavík.
Samningurinn er hugsaður til
að efla og styrkja starf íþrótta-
félaganna fyrir ungt og efnilegt
íþróttafólk í íþróttafélögum
Reykjavíkur. Tilgangur þessa er
að höfuðborgin okkar, Reykja-
vík, eignist í framtíðinni enn
fleiri affeksmenn í heimsklassa.
Þeir þekktustu úr íþróttafé-
lögum í Reykjavík eru senni-
lega Eiður Smári Guðjohnsen,
knattspyrnumaður, Ólafur
Stefánsson, handknattleiks-
maður og Jón Arnór Stefáns-
son, körfuknattleiksmaður.
íþróttabandalag Reykjavíkur
og SPRON munu hvort um
sig greiða 5 milljónir króna
árlega í sjóðinn og mun því
framlag úr sjóðnum á ári
hverju geta numið allt að 10
milljónum króna, sem er dágóð
upphæð og ætti að nýtast vel. ■
Handbolt-
inníkvöld
Tveir leikir eru í DHL-deild
kvenna á íslandsmótinu í
handknattleik í kvöld. HK og
Stjarnan mætast í Digranesi
og hefst leikurinn klukkan
19.15. Stjarnan er í þriðja sæti
eftir þrjár umferðir með fjögur
stig en HK-stúlkur, sem hafa
komið skemmtilega á óvart, eru
í fimmta sæti með þrjú stig.
Fram og Haukar mætast í
Framhúsinu og hefst leikurinn
klukkan 19.15. Framstúlkur
eru án stiga eftir þrjá leiki en
Haukastúlkur eru með fjögur
stig í 4. sæti en Haukar hafa
aðeins leikið tvo leiki.
í DHL-deild karla er einn leik-
ur i kvöld. Haukar og ÍBV mæt-
ast í íþróttahúsinu að Ásvöllum
og verður flautað til leiks
klukkan 19.15. Haukar eru í 5.
sæti með 6 stig eftir fjóra leiki
en Haukar eiga leiki til góða
á önnur lið vegna þátttöku
sinnar í meistaradeild Evrópu.
Vestmannaeyingar hafa leikið
fimm leiki og hlotið í þeim 4
stig og eru sem stendur í þriðja
neðsta sæti DHL-deildarinnar. ■
Meistaradeildin í kvöld
í kvöld lýkur þriðju umferð meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu
þegar leikið verður í E-F-G og H-riðl-
um. I E-riðli mætast Fenerbache og
Schalke í Tyrklandi og AC Milan
tekur á móti PSV Eindhoven á Guis-
eppe Meazza vellinum í Mílanóborg.
í F-riðli leika Real Madrid og Rosen-
borg í Madrid en Ronaldo leikur
ekki með Madrid-ingum þar sem
hann er meiddur. Lyon tekur á móti
Olympiakos á Stade de Gerland-vell-
inum í Frakklandi.
{ G-riðli leika Anderlecht og Li-
verpool í Belgíu og búist er við að
Harry nokkur Kewell verði tiltækur
í liði rauða hersins frá Liverpool.
I sama riðli mætast Chelsea og
Real Betis á Stamford Bridge í Lond-
on. Eiður Smári Guðjohnsen átti
frábæra innkomu fyrir Chelsea um
síðustu helgi í leiknum gegn Bolton
í ensku úrvalsdeildinni og vonandi
fær hann að spreyta sig í kvöld. Jose
Mourinho, framkvæmdastjóri Chels-
ea, hrósaði Eiði Smára í enskum fjöl-
miðlum eftir leikinn og vonandi að
„strákurinn okkar“ leiki f kvöld.
I H-riðli mætast Porto og Inter
á Dragao-vellinum í Portúgal og
Rangers tekur á móti Artmedia
í Glasgow í Skotlandi. Allir leikir
kvöldsins hefjast klukkan 18.45. ■
HIII fU
IIII
«eFSv!t
Splunkunýr spurningaþáttur um fótbolta,
fótbolta og meiri fótbolta.
SPARK er óhefðbundin spurningaþáttur um fótbolta sem stjórnað er af
Stefáni Pálssyni sem jafnframt er höfundur spurninga.
Honum til aðstoðar er stuðboltinn Þórhallur Dan, knattspyrnukappi með meiru.
Frumsýndur á SKJÁE/A/Í7M og Enska Boltanum 21. október, kl. 20.00.
cnsHÍ%
BOLTIN
SKJÁR EINN
Laugardaga kl. 22.30 • Sunnudaga kl. 22.30 • Föstudaga kl. 19.30