blaðið - 08.11.2005, Síða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2005 blaAÍÖ
SUSHI
T H H I n
OPNAR1. DESEMBER
[LÆKJARGATA]
Reykjavíkurborg:
140 milljónir í nefndarlaun
Nefndarmenn í sumum fastanefndum borgarinnar eru með rúmar yo þúsund krónur í
launfyrir störfin á mánuði. Algengt er að nefndir hittist tvisvar í mánuði.
Héraðsdómur:
Enn eitt
áfallið fyr-
ir Jón H.B.
Snorrason
saksóknara
Héraðsdómur Reykjavíkur vís-
aði í gær frá framhaldsákæru
gegn forsvarsmönnum Frjálsr-
ar fjölmiðlunar, vegna brota
í rekstri Fréttablaðsins, Vísis,
Markhússins og Info skiltagerð-
ar. Málið var þingfest 23. júní sl.
en viðbótarákærur þessar voru
ekki gefnar út fyrr en rúmum
tveimur mánuðum síðar. Að
mati Héraðsdóms hefði átt að
leggja þær fram í síðasta lagi
þremur vikum eftir að upphaf-
legu ákærurnar voru þingfestar,
og féllst dómurinn á kröfur
sakborninga um frávísun. Með
framhaldsákærunum sagðist
ríkislögreglustjóri vera að
leiðrétta innsláttarvillur í sund-
urliðun fjárhæða í upphaflegu
ákærunni. Sakborningar sögðu
hins vegar þrátt fyrir að heimilt
sé að leiðrétta augljósar og
smávægilegar villur með fram-
haldsákæru. Þarna sé vissulega
um að ræða augljósar villur, en
að þær séu síður en svo smá-
vægilegar því villurnar taki til
þungamiðju verknaðarlýsingar
ákæru og því sé verknaðárlýs-
ingin röng í aðalatriðum í þeim
kafla. í öðrum köflum ákær-
unnar séu leiðréttingar ekki
augljósar ásamt því að einn
liður framhaldsákærunnar sé
óskiljanlegur þegar hann er
borinn saman við upphaflegu
ákæruna. Verjandi segir því
illmögulegt fyrir sig að átta sig
á hvernig grípa skuli til varna.
Héraðsdómur gagnrýndi
eins og áður sagði þann tíma
sem saksóknari tók sér til að
leggja fram framhaldsákæruna.
Ennfremur gagnrýnir hann
að fjárhæðir séu allt aðrar en
þær sem voru í frumákærunni
ásamt því að uppgjörstímabil
séu einnig allt önnur. Mat
dómsins er einnig að framsetn-
ing leiðréttingar í framhalds-
ákæru sé ekki skýr og glögg.
Samkvæmt upplýsingum frá Reykja-
víkurborg nam launakostnaður
borgarinnar vegna nefnda borgar-
sjóðs fyrir árið 2004, 138,9 milljón-
um króna. Nefndir og ráð á vegum
Reykjavfkurborgar eru um 50 tals-
ins, fyrir utan borgarráð, borgar-
stjórn og ýmsar nefndir, starfsnefnd-
ir og vinnuhópa sem borgaryfirvöld
tilnefna fulltrúa sína í. Fastanefndir
á vegum borgarinnar eru 19 og skipt-
ast greiðslur fyrir nefndarstörf í
þeim íþrjáflokka. í flokki 1 takalaun
mið af þingfararkaupi og fá nefnd-
armenn greidd laun sem samsvara
16% af þingfararkaupi, eða 73.589 kr
á mánuði. I flokki 2 eru greidd 12%
eða 55.191 kr á mánuði og í flokki 3
eru reidd 6%, eða 27.596 krónur á
mánuði. Samkvæmt upplýsingum
frá Reykjavíkurborg er almenna
reglan sú að nefndir fundi tvisvar
til þrisvar í hverjum mánuði. Borg-
arfulltrúar sem sæti eiga í nefnd fá
ekki borgað sérstaklega fyrir nefnd-
arsetu, en formenn fastanefnda fá
greidda tvöfalda þóknun fyrir setu í
viðkomandi nefnd. Fyrir setu í öðr-
um nefndum en fastanefndum er
greidd þóknun fyrir hvern fund sem
nemur 2% af þingfararkaupi, eða
9.199 krónum.
Kerfið of stórt og þungt í vöfum
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi
Frjálslynda flokksins, vill ekki tjá sig
um heildarupphæðina þar sem sam-
anburður fyrri ára liggur ekki fyrir.
„Ég hef hins vegar oft gagnrýnt yfir-
byggingu borgarkerfisins, að það sé
stórt og mikið og þungt í vöfum. Ég
hef talað lengi um styttri og skýrari
boðleiðir og það kemur þvi í sjálfu
sér ekki á óvart að nefndarkostnað-
ur sé hár.“ Kjartan Magnússon, börg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segist
óánægður með þann hringlandahátt
sem hann segir hafa einkennt stjórn
borgarinnar lengi. „Dæmi um það
er þegar samgöngunefnd borgar-
innar var lögð niður en sú nefnd
var að mínu mati að virka vel. Það
hefur skort festu i stjórnskipulagið
og á valdatíma R-listans hafa verið
gerðar 3-4 stórar breytingar á nefnd-
arkerfinu í borginni. Aður hafði
stjórnkerfið verið óbreytt í töluverð-
an tíma og alveg sjálfsagt að skoða
það að gera einhverjar breytingar
á því en R-listamenn hafa verið að
breyta þessu stöðugt svo fólk sem
þarf að eiga viðskipti við borgina
er alveg orðið ruglað í þessu. Dæmi
um þetta er samgöngunefndin sem
lögð var niður um síðustu áramót.
Verkefni nefndarinnar voru þá færð
yfir til þriggja nefnda og fram eftir
ári vantaði mikið upp á að menn
hafi áttað sig á því hvaða mál heyrði
undir hvaða nefnd. það er því þessi
stöðugi hringlandaháttur í stjórn-
kerfinu sem ég gagnrýni. Ég held
að í langflestum nefndum sé fólk að
leggja sig fram um að starfa eins vel
og það getur með hag borgarinnar
að leiðarljósi." ■
Fjármálaeftirlitið á tímamótum:
Aukin umsvif og gegnsæi
Samkvæmt nýju gegnsæisskipulagi
Fjármálaeftirlitsins (FME) mun al-
menningi gefast kostur á að nálgast
niðurstöður athugana eftirlitsins en
slíkt hefur ekki verið mögulegt hing-
að til. Þetta kom fram á ársfundi
FME í Salnum í Tónlistarhúsi Kópa-
vogs í gær. Þá kom einnig fram að
umsvif FME hefðu aukist á síðasta
ári sökum útrásar íslenskra fyrir-
tækja.
Þrjátíu mál
1 árskýrslu FME sem kynnt var á
fundinum kom fram að á síðasta ári
tók stofnunin 30 mál til athugunar
um hvort brotið hefði verið gegn
tilkynningaskyldu vegna innherja-
viðskipta. í átta tilvikum reyndist
fruminnherjinn brotlegur en útgef-
andi í sex tilvikum og var þá beitt
stjórnvaldssektum. Þá kom eitt
mál til athugunar vegna markaðs-
misnotkunar, fimm mál vegna inn-
herjasvika og tvö mál vegna hugsan-
legrar yfirtökuskyldu. Ekki kom til
aðgerða í neinu af þessum málum
BloCiö/Frikki
f máli Stefán Svavarsson, stjórnarfor-
manns FME, kom fram að of mikið sé af
enskuslettum í íslensku viðskiptamáli og
að nauðsynlegt sé að menn dragi úr slíkri
notkun
af hálfu FME en eitt innherjasvika-
mál er enn í athugun. Sjö mál voru
tekin til athugunar með hliðsjón af
flöggunarskyldu og í einu málanna
var ríkislögreglustjóra greint frá at-
hugun FME.
Gegnsæisstefna kynnt
Á fundinum kom fram að aukin um-
svif íslenskra fjármálafyrirtækja,
hér heima og erlendis, hefðu þýtt að
starfsemi stofnunarinnar hefði að
sama skapi aukist. Gert er ráð fyrir
því að hún aukist enn frekar á næsta
ári og að alþjóðlegt samstarf við
systurstofnanir erlendis verði einn-
ig aukið. Þá var kynnt svokölluð
gegnsæisstefna en samkvæmt henni
verður almenna reglan sú að FME
birti niðurstöður athugana og mála
á verðbréfasviði. Athygli vakti að í
opnunarræðu Stefáns Svavarssonar,
formanns stjórnar FME, gagnrýndi
hann ýmislegt í málefnum Sparisjóð-
anna í landinu og taldi að margir
stofnfjáreigendur væru að víkja frá
meginhlutverki sjóðanna. „Þó að í
nútíma skipulagi sé þess vandlega
gætt að fjármunir séu ekki án hirð-
is þá er það samt miður, að mínum
dómi, að ekki sé haldið tryggð við
þann anda sem var tvímælalaust
markmið stofnenda sparisjóðanna
á sínum tíma.“ ■
Hafrannsóknastofnun:
Þorskurinn
ofveiddur
Draga verður úr þorskveiði ef koma
á í veg fyrir að stofninn hér við land
hrynji ekki. Þetta kom fram á mál-
þingi á vegum Hafrannsóknastofn-
unar og Sjávarútvegsráðuneytis
sem haldið var á Grand Hótel í gær.
Á ráðstefnunni töluðu bæði innlend-
ir og erlendir fræðimenn og voru
þeir sammála um að ástand þorsks-
stofnsins hér við land væri afar við-
kvæmt og nauðsynlegt að draga úr
veiðum ef ekki ætti illa að fara. Var
í þessu samhengi bent á kanadíska
þorskstofninn sem hrundi vegna of-
veiða á sínum tíma. ■
SJÓN: ARGÓARFLÍSIN
I BOKMENNTUn
NYBOKEFTIR
NORÐURLANDA
MEISTARANN
„ALVEG FANTASKEMMTILEG BÓK“
- Illugi Jökulsson, Talstööinni
„ÞETTA ER USTILEGA SKRIFUÐ SAGA“
- Silja
O Heiðskjrt 0 Léttskýjaö ^ Skýjað £ Alskýjaö /ý Rigning, Iftilsháttar Rignlng 5 5 Súld Snjókoma fj Slydda fj Snjóéi <jj skúr
Amsterdam 14
Barcelona 19
Berlín 12
Chícago 08
Frankfurt 12
Hamborg 12
Helsinki 08
Kaupmannahöfn 10
London 15
Madrid 15
Mallorka 22
Montreal 05
New York 11
Orlando 18
Osló 07
Paris 15
Stokkhólmur 08
Þórshöfn 07
Vín 11
Algarve 20
Dublin 09
Glasgow 10
// /
/// 2°
+Q
///
///
///
2° ///
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum trá Veöurstofu Islands
///
///
Á morgun
,* **
*
1°