blaðið - 08.11.2005, Blaðsíða 10
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2005 blaðið
Nú hefurðu meiri
tíma til að vera með.
Sölukerfið er opið til kl. 17 á veturna!
Askriftar
LEIKUR
LOTTÓ
Með LOTTÓ í ÁSKRIFT gætir þú auk jþess
hreppt einn af 30 glæsllegum aukavinningum.
V I K I N G A
L#TT#
Alltaf á miðvikudögum!
lotto.is
10 I
Utanríkisráðherra
Indlands sviptur embætti
Ásakaður um að hafa notið góðs af mat-fyrir-olíu áœtlun Samein-
uðu þjóðanna. Ríkistjórnin hefur fyrirskipað rannsókn á málinu.
ásakanir á hendur Congress-flokkn-
um og meðlimum hans. Talsmaður
forsætisráðherra sagði að rannsókn-
ir Pathak og Dayal tengdust ekki.
Matur-fyrir-olíu áætlunin var
stærsta mannúðarverkefni sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa nokkru
sinni tekist á hendur og kostaði eina
6o milljarða Bandaríkjadala. Hún
átti að gera Irökum kleift að kaupa
mat, lyf og aðrar nauðþurftir í skipt-
um fyrir olíu án þess að það bryti í
bága við viðskiptabann sem sett var
á landið eftir innrásina í Kúveit árið
1990. Rannsókn óháðrar nefndar á
vegum Sameinuðu þjóðanna leiddi
í ljós meiriháttar spillingu og mútu-
greiðslur hefðu átt sér stað í skjóli
áætlunarinnar. ■
Natwar Singh, utanríkisráðherra
Indlands, var i gær sviptur emb-
ætti vegna ásakana um að hann
hefði notið góðs af samningum í
tengslum við mat-fyrir-olíu áætlun
Sameinuðu þjóðanna. Indverska
ríkisstjórnin hefur skipað sérstaka
nefnd til að rannsaka ásakanir um
að hann og stjórnarflokkurinn Con-
gress-flokkurinn hafi notið góðs af
áætluninni. R.S Pathak, fyrrverandi
hæstaréttardómari, verður formað-
ur nefndarinnar.
„Þetta verður óháð rannsókn og
óháða rannsóknin mun leiða til
óháðrar niðurstöðu," sagði Pathak í
sjónvarpsviðtali í gær.
Á sunnudag útnefndi ríkisstjórn-
in Virender Dayal, fyrrum embættis-
mann Indverja hjá Sameinuðu þjóð-
unum, til að útvega upplýsingar um
Rannsókn hefur verið fyrirskipuð á því
hvort Natwar Singh, utanríkisráðherra
Indlands, hafi notið góðs af samningum
f tengslum við mat-fyrir-olíu áætlun Sam-
einuðu þjóðanna.
Gröf Kópernikusar fundin
Fornleifafræðingar í Póllandi telja
nánast fullvíst að þeir hafi fundið
líkamsleifar Kópernikusar, 16. aldar
stjörnufræðingsins og kennimanns-
ins sem gerbylti heimsmynd okkar
með kenningu sinni um að pláne-
turnar snérust i kringum sólina.
Prófessor Jerzy Gassowski sagði á
umræðufundi í síðustu viku að
hann teldi að líkamsleifar sem fund-
ust undir altari Frombork-dómkirkj-
unnar væru af Kóperníkusi.
Eftir að hafa mælt aldur hauskúp-
unnar og beina sem og andlitsfall
sagðist Gassowski vera 97% viss
um að þetta væru líkamsleifar
stjörnufræðingsins en DNA-rann-
sókn þyrfti þó að koma til svo að
hægt verði að ganga úr skugga um
það. Með því að endurbyggja haus-
kúpuna í tölvu kom i ljós höfuð grá-
hærðs manns um sjötugt en á þeim
aldri var Kópernikus þegar hann
dó. Einnig var hægt að sjá á mynd-
inni ör fyrir ofan vinstra auga hans
og skakkt nef eins og á gömlum
Kópernikus breytti heimsmyndinni með kenningu sinni um að pláneturnar snérust I
kringum sólina.
andlitsmyndum af Kópernikusi. Kó- hugsanlega má finna DNA-sýni í
pernikus átti enga afkomendur en grafreitum ættingja hans. ■
Repúblikanar kynna frumvarp um landamœragœslu
Vilja reisa vegg
meðfram landamærum
Nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins vilja stórefla gæslu á landamærum Bandaríkj-
anna og Mexíkó og meðal annars láta reisa vegg til að koma í veg fyrir straum ólöglegra
innflytjenda.
Nokkrir þingmenn Repúblikana-
flokksins hafa kynnt lagafrumvarp
um landamæragæslu þar sem meðal
annars er lagt til að veggur verði reist-
ur meðfram landamærum Banda-
ríkjanna og Mexíkó til að koma í
veg fyrir að ólöglegir innflytjendur
komist til landsins. Veggurinn yrði
3200 kílómetra langur og myndi ná
frá Kyrrahafi til Mexíkóflóa.
Landamæragæsla yrði jafnframt
stórefld og starfsfólki svo sem landa-
mæravörðum, og saksóknurum
fjölgað til muna.
Einföld bygging
Þegar Duncan Hunter, þingmaður
Repúblikanaflokksins í Kaliforníu
og einn af flutningsmönnum frum-
varpsins, var spurður um kostnað
og fyrirhöfn sem smíði veggsins
hefði í för með sér svaraði hann
eingöngu að um einfalda byggingu
væri að ræða.
Ekki eru allir Repúblikanar jafn-
vissir um ágæti hugmyndarinnar
og Hunter og hefur Jeff Flake, þing-
maður flokksins fyrir Arizona-ríki,
meðal annars bent á að um 400.000
manns komi löglega inn í landið á
ári hverju en dvelji áfram eftir að
vegabréfsáritun þeirra rennur út.
Veggurinn muni ekki koma í veg
fyrir að helmingur þeirra ílengdist
í landinu.
Ekki er ljóst hvort hugmyndin
njóti nægilegs stuðnings í báðum
deildum þingsins til að verða sam-
þykkt. Ríkisstjórn George Bush hef-
ur einnig heitið að leggja sitt af mörk-
um til að efla landamæragæslu og í
vikunni tilkynnti Michael Chertoff,
heimavarnarráðherra, að landa-
mæravörðum yrði fjölgað um 1000
til að stemma stigu við straumi ólög-
legra innflytjenda. ■