blaðið - 08.11.2005, Page 13
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2005
BZLAR I 13
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
OpiS virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-16
jólatilboð - stillanleg rúm
Að sofa er eitt, hvílast er annað
Dýpsta slökun, hvíld og svefn sem völ er á
Þar sem Tempur dýnan aðlagast líkamanum dreifir hún þyngdinni og dregur þar með úr þrýstingi á viðkvæma
staði svo sem axlir, mjaðmir, hné og ökkla. Jafnframt styður hún undir og fyllir upp 1 „holrúmin" sem gjarnan
skortir stuðning svo sem mjóbak, háls og hnésbætur. Með Tempur heilsudýnunni nærðu hámarks slökun,
hvíld og svefni sem er lykilinn að góðri andlegri og llkamlegri heilsu.
Komdu í verslun okkar, Faxafeni 5, og upplifðu nýjungarnar í svefnherberginu
Vörubílstjórar munu sœta sektum
Frestur vegna frágangs áfarmi liðinn
Vörubílstjórar sem ganga ekki frá farmi sínum með viðunandi hætti geta nú átt von á
því að verða sektaðir
Toyota svarar
aukinni eftirspurn
Toyota Motor Corporation,
stærsti bílaframleiðandi í
heimi miðað við verðmæti,
hefur tilkynnt að hann hyggist
auka útgjöld sín um 12 prósent eða
upp í tæpa 12 milljarða Bandaríkja-
dollara frá því sem þeir höfðu áður
gefið út til að auka framleiðslu sína
á heimsmarkaði vegna gífurlegrar
eftirspurnar. Takeshi Suzumi, tals-
maður Toyota, sagði nú um helgina
að vegna þess að eftirspurn eftir
bifreiðum fyrirtækisins hafi aukist
mun meira en þeir áttu von á um
allan heim þá verði þeir að grípa
til þessa aðgerða þar sem að ekki
sé boðlegt að sú staða komi upp að
ekki sé nægilega mikið til af vöru
sem eftirspurn sé eftir.
Ætlar að auka markaðshlutdeildina
Meðal þeirra aðgerða sem gripið
verður til eru þær að fleiri eintök
verða smíðuð af Corolla og Camry
VELAVERKSTÆÐIÐ
tegundum Toyota til að ná sölutak-
marki fyrir árið 2006, en það verður
nú 8,5 milljón eintök. Toyota stefnir
að því að auka verulega markaðshlut-
deild sína á alþjóðabílamarkaðinum
næsta áratuginn, en í dag seljast fjór-
ir af hverjum tíu Toyota-bifreiðum
sem eru framleiddar innan Japans.
Vonir eru bundnar við það innan
fyrirtækisins að hægt verði að auka
heildarmarkaðshlutdeild Toyota á
alþjóðamarkaði frá því að vera um
12% eins og nú er í það að verða um
15% eftir áratug. Til þess að ná þess-
um markmiðum mun Toyota opna
nýjar verskmiðjur í Norður Amer-
íku, Evrópu og Asíu á tímabilinu.
Lögreglan boðar átak
Þann fyrsta nóvember síðastliðinn
rann út fjögurra mánaða frestur sem
vörubifreiðarstjórum, sem flytja
lausan farm sem getur fokið eða fall-
ið af vörubílspalli. var gefinn til þess
að koma yfirbreiðslumálum sínum í
viðunandi horf. Að því tilefni ætlar
lögreglan í Árnessýslu ásamt lög-
regluyfirvöldum á Suðvesturlandi
að fara í átaksverkefni til að tryggja
að þessu ákvæði laganna verði fylgt.
Lögreglumenn munu fylgjast með
akstri vörubifreiða sem flytja laust
efni og stöðva þær og sekta ef að til-
efni þykir til.
Hagsmunaaðilar fagna
auknu öryggi
Félag íslenskra bifreiðareigenda seg-
ir í yfirlýsingu á heimasíðu sinni í
tilefni þess að fresturinn hafi runn-
ið út að félagið fagni þessum nýju
áherslum enda væru þær til þess
fallnar að auka umferðaröryggi og
draga úr eignartjóni. Ennfremur seg-
ir að það hafi verið löngu tímabært
að gera ráðstafanir til að tryggja
öruggari frágang á farmi vörubíla
enda hafi FÍB fengið allt of mörg mál
til meðferðar á liðnum árum vegna
slysa og eignartjóna sem hefði mátt
koma í veg fyrir með ábyrgari vinnu-
brögðum við frágang farms. „Flestir
vörubílstjórar hafa til þess metnað
og ábyrgð að ganga alltaf frá farmi
með þeim hætti að ekki stafi hætta
af fyrir aðra í umferðinni. Þessir fáu
sem vanrækja frágang koma óorði
á alla stéttina. Það er á ábyrgð farm-
flytjenda að tryggja að ekki skapist
hætta af flutningi á farmi fyrir aðra
vegfarendur,“ segir í yfirlýsingu fé-
lagsins að lokum.
VARAHLUT AVERSLUN
kistufell@kistufell.com
Tangarhöfða 13 Stmi 5771313
Spyrnur og stýrishlutir í flestar gerðir bíla