blaðið - 08.11.2005, Qupperneq 22
22 I HEILSA
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2005 blaóið
Austurlensk frœði virka
vel í meðferð við kvíða
-Mikilvœgt að lífa í núinu-
Mindfulness (sem þýtt hefur ver-
ið sem árverkni eða vakandi nær-
vera) er upprunninn í Asíu og á
rætur að rekja til búddisma.
Margrét Bárðardóttir sálfræð-
ingur við geðdeild Landspítalans
segir árverkni hafa gefið góða
raun í hópmeðferðarvinnu með
fólk sem þjáist af kvíða. „Við not-
um sambland af árverkni og hug-
rænni atferlismeðferð og þessi
blanda hefur reynst mjög vel,“
segir Margrét. Hún segir lykilinn
að góðum árangri í kvíðameðferð
vera að fólk veiti því athygli sem er
að gerast innra með því þ.e hvaða
tilfinningar það finnur til. Margr-
ét vitnar í erlendar rannsóknir
sem sýna að þetta meðferðarform
hefur gagnast vel við þunglyndi,
átröskunum og tilfinningalegum
vandamálum s.s. hjónabandserf-
iðleikum. „í kvíðameðferð, sem
byggir á árverkni, eru notaðar
stuttar öndunarhugleiðsluæfingar
þar sem fólk lærir að staldra við
áður en það bregst við erfiðum til-
finningum,“ segir Margrét og bæt-
ir við að þetta auki líkur á því að
fólk bregðist við á uppbyggilegan
hátt. Fólk sem tók þátt í kvíðameð-
99...................
Maður nýtur lífsins
betur efmaður lifir á
líðandi stund í stað
þess að velta sér upp
úr fortíð eða framtíð
ferðinni hafði ýmist verið innlagt
á geðdeild eða verið á göngudeild
geðdeildar.
Margrét segir árangur þessa
meðferðarforms hafa verið met-
inn hérlendis og sýnt að áhrif á
kvíða eru mikil. „Árangurinn í
hópnum okkar var metinn með
spurningalista þar sem þátttak-
endur í kvíðameðferðinni voru
spurðir um líðan sína fyrir og eft-
ir meðferð. í ljós kom að þremur
mánuðum eftir meðferð var ár-
angurinn ennþá mikill. Ragnar
Pétur Ólafsson sálfræðingur og
Þórgunnur Ársælsdóttir geðlækn-
ir unnu með Margréti í kvíðameð-
ferðinni.
Árverkni gagnast öllu fólki
Margrét segir vinsælt hjá meðferð-
araðilum í dag að nota aðferðir
sem gefa hugarró líkt og árverkni
gerir og segir markmið meðferðar-
innar vera að auka vitund fólks á
hugsunum sínum og tilfinningum.
„Það hafa allir gott af því að skoða
hug sinn og hvaða tilfinningar bær-
ast innra með okkur, segir Marg-
ét. Hún segir árverkni gagnlega
aðferð í daglegu amstri og mælir
með að fólk taki sér þrjár mínút-
ur þrisvar á dag, í stutta íhugun
og að athyglinni sé beint að því
sem er að gerast í núinu og því
sem hver og einn upplifir. Marg—
rét segir að fólk ætti að varast að
gera margt í einu. „Maður nýtur
lífsins betur ef maður lifir á líð-
andi stund í stað þess að velta sér
upp úr fortíð eða framtíð,“ segir
Margrét.
Hugrun.sigurjonsdottir@vbl.is
„Mikilvægt að fólk staldri við og einbeiti
sér að því að lifa í núinu"
Blaðiö/Frikki
10 ráð til að minnka
jólastressið
1) Byrjið jólaundirbúninginn tíman-
lega og skipuleggið tímann vel.
2) Takið ykkur pásur í amstrinu, hlustið á góða jólatónlist,
farið í ræktina eða annað sem leiðir hugann frá streitunni.
3) Látið vini og ættingja gera jólagjafalista, þannig vitið þið
hverjum vantar hvað og einfalt er að fara og kaupa jólagjafirnar.
4) Setjið upp jólaskrautið smám saman, þannig minnkar álagið
á síðustu dagana fyrir jól og þið náið að njóta skrautsins lengur.
5) Kaupið smákökur í stað þess að stressa ykkur
við að baka allar sortir, þannig sparið þið tíma.
6) Skiljið börnin eftir heima þegar þið farið í verslunarleiðangur,
þau verða bara leið og ergileg ef verslunarferðir dragast á langinn.
7) Takið frí í vinnunni íjólaútréttingar ef þið eigið kost á því. Það
munar miklu á tíma að mæta snemma í verslanir á meðan umferð-
in er lítil. Með þessu móti náið þið að gera mikið á einum degi
8) Ekki fárast yfir því þótt eitthvað sé ógert fyrir jól. Forgangs-
raðið hlutunum og látið það sem minna máli skiptir mæta afgangi.
9) Njótið aðventunnar. Takið tíma tii að hitta vinina, far-
ið á kaffihús eða jólahlaðborð og njótið líðandi stundar
og hættið að stressa ykkur á því sem er ólokið.
10) Slökkvið á útvarpi og sjónvarpi og spilið frek-
ar jólalög eða hlustið á þögnina. Ofgnótt auglýs-
inga í Qölmiðlum getur virkað stressandi.
Góð ráð við
umgangspestum
Þá er veturinn framundan og marg-
ir hafa ekki farið varhluta af kvefi
og öðrum umgangspestum. Ólafur
Kristinsson lyfjafræðingur í Lyf og
Heilsa segir flensur smitast í gegn-
um loftveginn. „Það er ómögulegt
að vita hvernig maður smitast, það
gerist bara af eðlilegum samskipt-
um við annað fólk,“ segir Ólafur.
Ólafur segir lítið af nýjum ráðum
í sambandi við kvefpestir. „Flensur
orsakast af vírusum sem lagast af
sjálfu sér,“ segir Ólafur en bætir við
að stórir skammtar af C-vítamini,
þegar einkenni byrja, geti haft góð
áhrif. „Sumir nota sólhatt en hann
verður að taka áður en einkennin
gera vart við sig,“ segir Ólafur, en
bætir við að fólk með ofnæmi ætti
að íhuga aðra möguleika en sólhatt.
Ólafur segir að þegar flensuein-
kenni hafi gert vart við sig sé best að
drekka heita drykki, hafa hægt um
sig og láta sér ekki verða kalt. „Ef
fólk fær slím í lungu sem það á erfitt
með að hósta upp getur verið gott að
taka hóstasaft, t.d. með salmíaki en
það hefur víkkandi áhrif á berkjurn-
ar og virkar losandi," segir Ólafur og
bætir við að pektólín hóstasaft inni-
haldi antihistamín sem geti haft góð
áhrif. Ólafur segir að ef beinverkir
fylgi flensunni sé gott ráð að taka
verkjastillandi við því og einnig sé
gott að taka hitalækkandi lyf við
hita.
Ólafur segir að ælupestir gangi yf-
irleitt yfir á einum sólarhring. Hann
segir að líkt og með flensuna séu
engar töfralausnir aðrar en fara vel
með sig og passa sig á að drekka nóg
sérstaklega ef fólk kastar mikið upp.
Hugrun.sigurjonsdottir@vbl.is
Vélin sem þú hefur beðið eftirl
Finepix S9500 sameinar það besta úr venjulegum stafrænum myndavélum og D-SLR.
% FUJIFILM
Sjá nánar: www. fujifilm.is / www.ljosmyndavorur.is
Ljósmyndavörur Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 04501 Myndsmiðjan Egilsstöðum
Innbyggð 28-300 mm linsa (10.7x)!
9.0 milljón díla Super CCD HR flaga með “Real Photo” tækni.
Aðeins 0,8 sekúndur að kveikja á sér og verða tökuklár! Tökutöf er aðeins 0,01 sekúnda!
Hægt að stilla handvirkt og stýring á aðdráttarlinsu er á linsuhringnum!
Vélin tekur kvikmyndir og hægt er að breyta aðdrætti meðan á töku stendur!
Með háhraða USB 2.0 tengi fyrir skráraflutning í töivu.
Skór fyrir auka flass!
Verð kr.
69.900