blaðið - 08.11.2005, Page 24
24 I HÖWNUW
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2005 blaðiö
Hönnunar-
dagar 2005
lofa góðu
-herlegheitin hefjast eftir rúma viku
Hönnunardagar 2005 verða haldnir
dagana 17.-20. nóvember næstkom-
andi, en að þeim standa félagið
Hönnunarvettvangur í samstarfi við
hérlend fagfélög er tengjast hönnun.
Hönnunarvettvangur var stofnsett í
maí á þessu ári. Samkvæmt vefsíðu
Hönnunardaga er markmið hans að:
.Standa fyrir faglegu og virku hönn-
unarsamfélagi sem kynnir, hvetur
og eflir alla íslenska hönnun, hvort
sem það er arkitektúr, gullsmíði,
grafísk hönnun, iðnhönnun, inn-
anhúsarkitektúr, fatahönnun eða
leirlist.“ Að samtökunum standa
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið,
Útflutningsráð, Iðntæknistofnun,
Reykjavíkurborg og Form ísland.
Víst er að hönnun hefur rutt sér
nokkurs rúms á almannavettvangi
síðustu ár - einhver gæti jafnvel
ímyndað sér að íslenskt samfélag
væri að verða sífellt fagurfræðimið-
aðra, ef ekki væri fyrir augljósar vís-
bendingar í gagnstæða átt- og því
má teljast viðeigandi að efnt sé til
sýninga og samtaka sem þessara.
Yfirlýst markmið forsvarsmanna
Hönnunardaga er að þeir verði með
tímanum árlegur viðburður og því
er mikið vandað til verksins. Hönn-
uðir, framleiðendur og fyrirtæki
standa fyrir uppákomum hér og
þar í Reykjavíkurborg og nánasta
nágrenni, í sýningarsölum, verslun-
um og vinnustofum svo dæmi séu
tekin. Laugardalshöllin mun hins-
vegar orka sem e.k. miðpunktur
hátíðarinnar og verða hennar helsti
samastaður. Þar verður m.a. hægt
að skoða sýninguna „Hönnun og
heimili", sem tímaritið Hús og Hý-
bíli efnir til ásamt IceXpo og Hönn-
unarvettvangi, þar sem verslanir og
heildsalar sýna vörur sínar í bland
við hönnuði og framleiðendur.
Þar sem sýningin er öðru fremur
vettvangur hönnunar og hönnuða
er eðlilega lagt mikið upp úr um-
gjörð og heildarútliti hennar; er
það fyrirtækið Einrum:::arkitektar
sem á heiðurinn af þeim þáttum.
Sýningin verður opin almennum
borgurum á laugardag og sunnudag,
en einnig verður í höllinni fagráð-
stefna, námskeið, fyrirlestrar og aðr-
ar upppákomur sem ekki er víst að
höfði beint til almennings en munu
væntanlega og vonandi skila sér til
hans á endanum með hreinni borg
með fögur torg og fallegar ruslaföt-
ur.
Um Hönnunardaga 2005 má fræð-
ast nánar á vefsíðu fyrirbærisins,
sem hefur slóðina www.iceland-
design.is ■
haukur@vbl.is
í
lUn
Parþenon hofið í Aþenu má muna sinn fífil fegurri, en var byggt á fagurfræðilegu gullaldarskeiði í mannkynssögunni og er vissulega
mikið hönnunarafrek.
Hvað vilt þú á vegginn þinn?
Veggfóður óskar eftir veggfóðri í hönnunarsamkeppni
Á morgun er síðasti skiladagur í ansi
áhugaverðri hönnunarsamkeppni
sem sjónvarpsþátturinn Veggfóður
hefur efnt til í samstarfi við Hönn-
unarvettvang. Mun keppnin, sem
er að sjálfsögðu öllum opin, felast í
því að hanna mynstur á veggfóður.
Verða bestu hugmyndirnar sýndar
á almannavettvangi, en veggfóðrið
sem valið verður sem það besta verð-
ur sett í framleiðslu, selt og sýnt í
versluninni Epal. Sem framlag sitt
til íslenskrar hönnunar mun versl-
unin ekki taka neina ágóðaprósentu
af sölunni, þannig að til nokkurs er
að vinna fyrir vinningshönnuðinn.
Það er dómnefnd sem úrskurðar
úr um gæði veggfóðranna, en hún
er skipuð einvalaliði úr hönnunar-
geiranum; Arna Friða Ingvarsdóttir,
grafískur hönnuður FÍT, Sesselja
Thorberg vöru- og iðnhönnuður og
Rósa Helgadóttir formaður Textíl-
Þessi ungi maður pantaði sitt veggfóður, sem sýnir sólarströnd, að utan.
félags Islands. Tekið er við umsókn- hvert á að skila þeim á netfangið
um jafnt á A4 pappír sem rafrænu veggfodur@365.is ■
formi, en sækja má upplýsingar um
Heimasíða Epal
er hafsjór af fróðleik
Verslunin Epal í Skeifunni, sem
nýverið fagnaði þrjátíu ára starfs-
afmæli sínu, hefur ansi sterka nær-
veru á veraldarvefnum. Heimsókn á
heimasíðuna epal.is getur haft ofan
af fyrir sæmilega læsum yfir betri
part dags, enda úir þar og grúir af
bæði ritgerðum og upplýsingum,
sem og fallegum myndum af hús-
gögnum og jafnvel nöktum mönn-
um. Óþarfi ætti að vera að taka fram
að hönnun síðunnar er til stakrar
fyrirmyndar, auðvelt er að rata um
og hin sjónræna hlið er einnig áferð-
arfalleg án þess að vera ertandi. Þar
fær og textinn nokkurt vægi, atriði
Þessir hressu, nöktu menn brugðu sér á
leik vegna 25 ára afmælissýningar Epal,
Tilfelli, sem haldin var árið 2000.
sem vill því miður oft gleymast þeg-
ar grafískum hönnuðum er gefinn
laus taumurinn.
Vefsíða Epal sker sig nokkuð frá
öðrum heimasíðum verslana, sem
oftar en ekki takmarkast við að
vera útblásnir vörulistar eða aug-
lýsingabæklingar. Og ber, rétt eins
og verslunin sjálf, með sér að vera
fyrst og síðast afsprengi ríks áhuga
aðstandenda sinna á viðfangsefninu.
Deili vefnotendur þeim áhuga gætu
þeir gert margt vitlausara en að líta
við og kynna sér hvað er um að vera
þar. ■
r
Sjóntækjafræðingur með réttindi til
sjónmælinga og linsumælinga
Endumýjar þú gleraugun þín nógu oft
eða langar þig bara í ný?
Vaxtalaus kjör í allt að 24 mánuði
engin útborgun
Suðurlandsbraut 50,
(bláu húsunum við Faxafen
Slmi: 568 1800
Gleraugað