blaðið - 08.11.2005, Síða 26
26 I VÍSINDI
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Ávaxtaflugum stjórnað með leysir
Hœgt að stjórna hegðun fólks
Það er óhætt að segja að fram-
tíðin sé komin ef við erum farin
að stjórna lifandi hlutum með
fjarstýringu. En það er einmitt
það sem rannsakendur hið vestra
hafa gert. Þeir hafa notað leysir
til þess að stjórna ávaxtaflug-
um. Þessi nýja tækni gefur aðra
möguleika, þegar hún hefur verið
þróuð nánar, eins og að stjórna
ofáti og öðru slíku.
Það má segja að það að stjórna lif-
andi verum með fjarstýringu líkist
frekar vísindaskáldsögu en raun-
veruleikanum. Vísindamenn hafa
uppgötvað að með því að nota leysir
þá sé hægt að stjórna höfuðlausum
ávaxtaflugum og látið þær hoppa,
blaka vængjunum og fljúga. En
Gero Miesenboeck, taugasérfræðing-
ur við Yale Háskóla, ætlaði sér ekki
einungis að stjórna fjarstýrðum flug-
um.
Taugakerfið flókið
Tilgangur rannsóknarinnar var að
rannsaka starfsemi taugafrumna
og að læra hvernig taugafrumur
meðtaka upplýsingar sem tengjast
ákveðinni hegðun, allt frá einföld-
um hreyfingum til flóknari hegðun-
ar eins og lærdóm, árásargirni og
óhlutbundna hugsun. „Taugakerfið
er nógu einfalt til að vekja upp von-
ir að einn daginn getum við skilið
hvernig það virkar en á sama tíma
er það svo flókið
að það framkall-
ar mjög áhuga- ............
verða hegðun, “
segir Miesen-
boeck. „Og nú
er mögulegt að
stjórna ákveðn-
um hópum af
taugafrumum.
Hægt að stjórna
viðbrögðum
Vísindamenn-
irnir notuðu
glampa af meinlausum leysir til að
rannsaka hóp af taugafrumum í
flugum en leysirinn hrindir af stað
eðlilegum flóttaviðbrögðum. Þegar
þessum viðbrögðum er hrundið af
stað þá sendir heilinn merki sem
verður til þess að flugurnar hoppa
og blaka vængjunum. Þegar höfuð-
in eru skorin af þá hætta flugurnar
að hreyfa sig og í þessari rannsókn
var flugunum breytt þannig að þær
þekkja glampa af leysirnum sem
er veitt áfram að taugafrumunum.
Frumurnar framkalla þessi tilteknu
flóttaviðbrögð þegar ákveðnar tauga-
frumur eru lýstar upp með leysir.
Með þessu sýndi Miesenboeck að
hann getur stjórnað flóttaviðbrögð-
um flugnanna
en hann segir
að hægt sé að
nota aðferðina
til að skoða
hvaða tauga-
frumur sem er
í heilanum.
Óæskileg
hegðun
Þar til nú hafa
vísindamenn
einungis getað
stjórnað tauga-
frumum innan frá með því að örva
þær með rafskautum. Samkvæmt
Miesenboeck er nú jafnvel mögu-
legt að upplýsa hvað er á bak við
ákveðna hegðun með því að stjórna
taugafrumum. Með því að para sam-
an ákveðnar frumur við hegðun þá
gætu vísindamenn mögulega búið
til lyf sem beinast að óæskilegri
hegðun, eins og ofáti.
Inntaka fæðu stjórnuð
Þrátt fyrir að fyrsta rannsókn vís-
indamannanna sýni hvernig hægt
Með því að para saman
ákveðnar frumur við
hegðun þá gætu vísinda-
menn mögulega búið til lyf
sem beinastað óæskilegri
hegðun, eins og ofáti.
Vísindamenn hafa uppgötvað að með því að nota leysir þá sé hægt að stjórna höfuðlaus-
um ávaxtaflugum og látið þær hoppa, blaka vængjunum og fljúga.
er að stjórna hegðun sem flugurnar
þurfa á að halda segir Miesenboeck
að hægt sé að nota tæknina til að
skoða aðrar taugafrumur í flugum
sem gætu afhjúpað huluna af hegð-
un sem við getum vel lifað án. „Ef
þú ert með dýr þar sem þú finnur
frumu í heilanum sem leiðir til of-
áts þegar hún er örvuð þá væri það
áhugavert viðfangsefni að freista
þess að stjórna inntöku fæðu, offitu,
þyngdartapi og svo framvegis," segir
Miesenboeck. „Þegar þú veist af slík-
um tengslum þá veistu hvar þú getur
gripið inn í og það inngrip myndi,
að öllum líkindum, vera í gegnum
hefðbundin lyf.“ ■
svanhvit@vbl.is
Lesblinda gengur í erfðir
Lesblindu-genið fundið
Hópur vísindamanna í Bandaríkj-
unum hafa fundið gen sem þeir
telja að stjórni lesblindu og þeir
vonast til að þessi fundur muni
verða til þess að hægt verði að
finna nýjar leiðir til að sigrast á
lesblindu. Einkenni eins og að
það sé erfitt að mynda orð gerir
það að verkum að það er auðvelt
að greina lesblindu en enn sem
komið er hefur verið erfitt að
finna orsök lesblindu. Enda hefur
það jafnan vakið furðu að annars
bráðgáfuð börn eigi í erfiðleikum
með að lesa. Lesblinda kemur jafn-
an á óvart en það verður vart við
hana þegar börn eiga í erfiðleik-
um með að læra að lesa. Ef ekki er
unnið með lesblindu hjá börnum
verður það að vandamáli sem þau
taka með sér yfir á fullorðinsár
og getur án efa valdið töluverðum
vandræðum.
Rannsóknir hafa sýnt að lesblinda á það til að erfast á milli kynslóða og nýlega fann
hópur vísindamanna lesblindu-genið.
99
Veikt samband
millifrumna
Rannsóknir hafa sýnt
að lesblinda á það til að
erfast á milli kynslóða
og nýlega fann hópur
vísindamanna lesblindu-
genið. Hefur fundur þessi
vakið töluverða eftirtekt
enda er lesblinda algengt
fyrirbæri. Eftir að hafa
rannsakað 153 fjölskyld-
ur sem glímdu við lestr-
arörðugleika fundu vís- ........
indamennirnir gen sem
ber nafnið DCDC2 sem vinnur í
þeim hluta heilans sem er nýttur í
lestur. Nákvæmt hlutverk gensins er
óþekkt en þegar þessu tiltekna geni
var haldið niðri í rottum þá kom í
ljós að taugafrumurnar dreifðust
ekki eins mikið og venjulega sem
leiddi til þess að sambandið milli
frumnanna var veikt. Aðrar rann-
sóknir hafa sýnt að ef samband á
milli taugafruma í þeim hlutum heil-
ans sem er notað til lesturs er veikt
þá þjáist fólk oft af lesblindu.
„Lesblint fólk getur gert hvað sem er, ef
það hefur áhuga og hæfnina til. Ég ráð-
legg foreldrum og kennurum að beina
börnum ekki ofsnemma á brautir þar sem
þau þurfa ekki að lesa og skrifa því nokkr-
ir afokkar hæfileikaríkustu rithöfundum,
vísindamönnum og læknum eru lesblind."
þau þurfa ekki að lesa og
skrifa því nokkrir af okk-
ar hæfileikaríkustu rithöf-
undum, vísindamönnum
og læknum eru lesblind.“
Lesblindir geta gert hvað sem er
Sally Shaywitz, prófessor við Yale
háskóla sagði að: „Við fundum að
þrátt fyrir að lakari lesendur voru
að nýta sama hluta heilans og betri
lesendur þá tengdu þeir ekki á sama
hátt.“ Shay witz segist vonast til þess
að fundur lesblindu-gensins verði til
þess að minnka neikvæða umræðu
um lesblinduna. „Lesblint fólk getur
gert hvað sem er, ef það hefur áhuga
og hæfnina til. Ég ráðlegg foreldr-
um og kennurum að beina börnum
ekki of snemma á brautir þar sem
Hægt að greina
lesblindu við
þriggja ára aldur
Þrátt fyrir að gen séu
ekki eina orsök lesblindu
þá getur fundur les-
........ blindu-gens auðveldað
rannsakendum að þróa
meðferð til að hjálpa næstu kynslóð
lesblindra barna eins snemma og
mögulegt er. Shaywitz segir að hægt
sé að bera kennsl á börn sem eru í
hættu á að fá lesblindu við þriggja til
fjögurra ára aldur. „Og það er mikil-
vægt, sérstaklega í fjölskyldum þar
sem lesblinda þekkist, því það er ým-
islegt sem foreldrar geta gert eins og
að kenna þeim vísur og ljóð, vekja
athygli þeirra á stöfum og kenna
þeim þá. Það er aldrei of snemmt að
byrja og aldrei of seint að fá hjálp,“
segir Shaywitz. ■
Ofhár blóðþrýstingur
ígræðslur sem
minnka
blódþrýsting |
Of hár blóðþrýstingur getur verið lífshættulegur og er því alvarlegt vandamál.
Of hár blóðþrýstingur er alvar-
legt vandamál og fer sem eldur
um sinu í hinum vestræna heimi.
Hár blóðþrýstingur getur verið
lífshættulegur enda býður hann
heim hjartaáfalli og nýrnasjúk-
dómum. Kannski má brátt sjá
breytingu þar á enda hafa vís-
indamenn fundið upp ígræðslur
sem minnka blóðþrýsting og eru
sérstaklega hentugar fyrir fólk
sem getur ekki nýtt sér lyf gegn
blóðþrýstingi. ígræðslan Rheos
virkar á þann hátt að hún veldur
því að heilinn skipar hjartanu,
æðunum og nýrunum til að haga
sér á þann veg að blóðþrýstingur-
inn lækkar.
Bandarískt fyrirtæki að nafni CVRx
er að þróa ígræðsluna en þetta er
fyrsta tækið sinnar tegundar sem er
grætt í sjúklinga til að meðhöndla
þá með lyfjum við háþrýstingi. Tæk-
ið virkar á þann hátt að það virkjar
blóðþrýstingsnemann, kerfið sem
hefur stjórn á blóðþrýstingi. Þegar
Rheos virkjar nemann þá eru send
merki til miðtaugakerfisins sem
eru túlkuð eins og hækkun í blóð-
þrýstingi. Heilinn vegur upp á móti
þessari hækkun með því að víkka
út æðarnar svo blóðið renni betur.
Hjartsláttur minnkar og hefur þau
áhrif á lungun að þau sleppa vökva.
Með þessu verður Rheos kerfið við líf-
eðlisfræðilegri aðferð til að minnka
háan blóðþrýsting með því að leyfa
heilanum að stýra eigin varnarkerfi.