blaðið - 08.11.2005, Síða 32
32 I AFPREYING
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Skíðaferð-
ir í vask-
inn vegna
drykkju
Skíða- og snjóbrettaferðir til
útlanda enda með ósköpum
hjá þriðjungi ungra Breta
þar sem þeir kunna ekki að
fara með áfengi. Samkvæmt
breskri rannsókn slasast 36
prósent ungmenna á aldrin-
um 18 til 24 ára í skíðaferðum.
Annað hvort það eða þeim er
hent út af hótelum eða eru
sektuð fyrir slæma hegðun.
Þá kemur í ljós að helmingur
ungmennanna gerði sér ekki
grein fyrir því hversu fljótt
áfengi hefur áhrif í mikilli hæð.
¥
Burton bæt-
ir lífsgæði
Snjóbrettafyrirtækið Burton
hefur ákveðið að gefa fórn-
arlömbum náttúruhamfara
allan ágóða af sölu fyrirtækis-
ins næstkomandi laugardag
í stærstu verslunum sfnum.
Verslanimar eru staðsettar í
Burlington, Vermont; Inns-
bruck, Austurríki; New York og
Tokyo. Ágóðinn mun fara til
þeirra milljón manna sem búa
á svæðum í Bandarfkjunum
þar sem fellibyljir hafa farið
yfir og jarðskjálftasvæðunum
í Pakistan. Þar sem Burton er
einnig hundavænn vinnustaður
verður hluta af fénu veitt til
dýraverndunarsamtaka Banda-
rácjanna (ASPCA) til þess að
gera lífið bærilegra fyrir þá
ferfætlinga sem misstu hunda-
kofana sína í gin Katrínar.
lykill
Hver kannast ekki við að vera
nýkominn með nýjan og glans-
andi GSM síma með öllum
þeim aukabúnaði sem aldrei
nokkurn tfma verður þörf á?
Yfirleitt er þetta gleðistund sem
öllu leiðinlegra augnablik fylgir,
þegar maður áttar sig á að öll
gögnin eru í gamla símanum.
Reyndar er hægt að flytja gögn
(SMS, símaskrá, myndir, e-mail
og fleira) með hjálp tölvu en
það krefst rétts hugbúnaðar,
snúrufargans og fyrst og fremst
þolinmæði. Nú er hins vegar
Cell Stick, símaminnislykillinn,
kominn til hjálpar en hann teng-
ist beint undir GSM símann á
öðrum endanum en hinn teng-
ist í USB port tölvunnar þinnar.
Framleiðendurnir fengu líka þá
snilldarhugmynd að nýta tækið
til að geyma varaeintak af
mikilvægum upplýsingum sem
eru f GSM símum nú til dags.
109 SU DOKU talnaþrautir
Leiðbeiningar
Su Doku þrautin snýst um að
raöa tölunum frá 1 -9 lárétt
og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema
einu sinni fyrir í hverri línu,
hvort sem er lárétt eða lóðrétt.
Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan
hvers níu reita fylkis. Unnt er
að leysa þrauhna út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
5 3 7 6 1
4 5 3
7 2 3 5
4 5 1
6 3
7 2 6
9 1 6 2
3 8 5
3 2 7 4 8
Lausn á síðustu þraut
4 9 3 8 2 1 6 5 7
6 1 8 9 5 7 2 3 4
7 5 2 6 3 4 1 8 9
9 3 4 7 1 6 5 2 8
5 6 7 2 4 8 9 1 3
8 2 1 3 9 5 4 7 6
2 8 5 4 7 9 3 6 1
1 7 9 5 6 3 8 4 2
3 4 6 1 8 2 7 9 5
1. Football Manager 2006 PC SEGA
2. StarWars Battlefront II PC/PS2/XB0X Activision
3. Fifa06 All formats EA Sports
4. EyeToy Kinetic PS2 Sony
5. BuzzlThe Music Quiz PS2 Sony
6. Robots PC/PS2/XB0X VU Games
7. F.E.A.R PC VU Games
8. Civilization 4 PC Take 2
9. Tony Hawk's American Wasteland PS2/XB0X Activision
10. Call of Duty 2 PC Activision
Ástríðufullur, stórfenglegur og ósigr-
andi stríðsmaður með dálæti á lífinu,
baráttu, öli, kvenmönnum og á
hverju því sem birtist handan
sióndeildarhringsins. f
•ím&w
Conan er fyrir löngu orðinn þekkt-
ur eftir að Ríkisstjórinn gerði hann
ódauðlegan í tveimur kvikmyndum,
Conan the Barbarian og Conan the
Destroyer. Nú hefur lífi verið blásið í
þessa hetju sem á svo margt sameig-
inlegt með íslensku víkingunum og
er hægt að fá Conan: The Frost-Gi-
ant’s Daughter og fleiri sögur í nýju
sérriti í verslun Nexus við Hverfis-
götu. Kurt Busiek semur sögurnar
og nýtur hann fulltingis Cary Nord
teiknara með frábærum árangri þar
sem villimaðurinn kemur sér í vand-
ræði hvað eftir annað og berst við alls
kyns óvætti.
Gagnrýnendur hafa gefið bókinni
góða dóma og benda m.a. á hvernig
Busiek umgengst Conan með mikilli
virðingu. „Þetta er eins og blóðugur
strigi sagnfræðingsins. Þetta eru,
enn einu sinni, tímar mikilla ævin-
týra“, sagði gagnrýnandi Entertain-
ment Weekly.
„Það er hinn varfærnislegi dans ljóð-
ræns frásagnarstíls höfundarins Kurt
Busiek ásamt hrífandi og blóði drifn-
um listaverkum Cary Nord sem gera
bókina jafn sígilda og Conan sjálfan.
Bravó.“ - Tímaritið Wizard
Unnur Bixna
tilKina
Fegurðardrottning fslands, Unn-
ur Birna Vilhjálmsdóttir, er nú á
förum til Kína til þátttöku í fegurð-
arsamkeppninni Ungfrú alheimur
sem verður haldin 10. desember
næstkomandi.
Unnur Birna, sem hefur undirbú-
ið sig vel fyrir ferðina, leggur í hann
á miðvikudaginn en hún mun ásamt
rúmlega 100 stúlkum dveljast í Kína
næstu 5 vikur þar sem þær munu
ferðast um og kynna keppnina.
Langt er orðið síðan að ísland hef-
ur átt keppanda í úrslitum í Ungfrú
alheimi en eins og alþjóð veit lenti
móðir Unnar Birnu, nafna hennar
Steinsson í 4.- 5. sæti í keppninni
árið 1983 og var þá fyrst íslenskra
stúlkna til að komast þar í úrslit.
Mynd/Lárus SigurÖarson