blaðið - 08.11.2005, Qupperneq 38
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2005 blaöiö
381 ÓLK
BETRA AD
HARKA EIM
HAWGSA
Draumur hvers fslendings er að fá
meira i vasann fyrir minni vinnu. Þetta
hefur verið baráttumál númer eitt, tvö
og þrjú hjá öllum þeim sem koma að
kjarabaráttu launafólks.
Smáborgarinn hefur eins og aðrir bor-
ið þann draum í brjósti að bera mikið
úr býtum fyrir stuttan vinnudag, geta
I gert það sem hann langar til, m.a.
horft á allt besta sjónvarpsefnið sem
iðulega er á dagskrá eftir að vinnandi
fólk á að vera komið í háttinn. Smá-
borgaranum varð að ósk sinni í síðasta
mánuði. Hann fékk timabundna vinnu
; sem gaf þó nokkuð í aðra hönd og
' vinnudagurinnvarstutturogsveigjan-
legur. I fyrstu vikunni keypti Smáborg-
j arinn sér kort í líkamsrækt og Ijós. Um
kl 14 á daginn hafði Smáborgarinn náð
; að klára vinnudaginn og fara í líkams-
rækt og/eða Ijós og jafnvel gluggað
í nokkrar sjálfshjálparbækur, gat lífið
1 verið betra? Smáborgarinn hljóp um
í hálftómri Kringlu fyrripart dags og
skoðaði og keypti að vild. Á þriðju
viku var ekki laust við að leiði færi að
gera vart við sig. Ástandið var að verða
I eins og hjá honum Palla sem var einn
; í heiminum, hann gat gert það sem
hann vildi en það var bara enginn til
að gera það með. Þannig var það með
Smáborgarann sem gleymdi að taka
með í reikninginn aö annað fólk er
j ekki kbrriið heim kltvö og hefur sjaldn- :
• ast tíma til að hanga.á kaffihúsum f lok
í vinnudags eins og hann hafði'sjálfur
tíma til aðgera. Hann komst líka að því
; að þvfmeiri tíma sem maður hefur því
í minna verður manni úr verki nema ef
! vera skildi að velta sér upp úr allskyns
I vandamálum.
! Smáborgarinn hefur lengi velt því fyrir
• sér hvers vegna stórgrósserar á borð
j við Björgólf Thor og Jón Ásgeir eru
ekki löngu komnir með tærnar upp í
loft og farnir að njóta auðs síns. Þarna
; er skýringin komin, þeir vita sem er að
það er betra að harka en hangsa.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Branda, kýr í Húsdýragarðinum
Hvað finnst þér um
arftaka Guttorms?
„Mér líst nú bara ágætlega á gripinn,“ segir kýrin Branda í samtali við Blaðið.
„Guttormur gamli var svo sem ágætur til síns brúks en hann var orðinn held-
ur geðstirður síðustu misserin. Svo er auðvitað fínt að fá smá tilbreytingu í
lífið hérna í garðinum. Mér er sagt að geðlag tuddans nýja sé líka mjög gott
sem skemmir ekki fyrir. Hann heitir víst Eldur og ég hlakka bara til að kynn-
ast honum nánar í framtíðinni. Ég hef aðeins virt hann fyrir mér, hann er
fagurrauður, kollóttur og svipfríður. Ég kann sérstaklega að meta hvað hann
er með fallega yfirlínu og sterkleg fótastaðan skemmir ekki fyrir. Hann er
reyndar Þingeyingur, sem bendir til þess að hann sé svolítið góður með sig,
en við vinkonurnar hér í garðinum muuuunum nú siða hann til á stuttum
tíma reikna ég með. Mont á ekki upp á pallborðið hér í Húsdýragarðinum,
það er alveg kýrskýrt."
Húsmóðir lendir i gerviklámi
Stjarnan úr þáttunum góðkunnu „Desperate Housewives”, Nicollette Sheridan, er ekki kát
þessa dagana. Hún er sífellt að fá fregnir af dónalegum netsíðum sem eru að klippa andlit
hennar saman við nakta líkama og búa þannig til gerviklámmyndir af henni. Henni er
nóg boðið og íhugar lögsókn. Hin 41 árs gamla leikkona er sérstaklega móðguð vegna þess
að líkamarnir sem notaðir eru, eru miklu verri en hennar eigin. Hún segir: „Internetinu
er ekki treystandi fyrir fimm aura. Einhver sagði mér frá klámmyndasíðu þar sem haus-
inn á mér var klipptur saman við nakta líkama sem voru að gera grófa dónalega og
alls óásættanlega hluti. Ég hugsa að ég komi nú til með að kæra. En verst af öllu er
að ég er sko með miklu betri líkama en á þessum myndum. Það er nú lágmark að
láta mig koma vel út úr þessu“. Nicollette er komin í stuð, og ákveður að leiðrétta
fleira. „Það var líka verið að skrifa um að ég hefði farið inn í einhverja kertabúð,
og ég hefði verið með svo mikið hárlakk í hárinu að það hafi fuðrað upp. í fyrsta
lagi nota ég aldrei hárlakk, svo þekki ég ekki búðina, og það hefur aldrei kviknað
í hárinu á mér.
Harry Potter œði í Lundúnum
Aðalleikarar nýjustu Harry Potter-myndarinnar mættu á frumsýningu í Lundúnum.
Hundruð Potter-aðdáenda hylltu stjörnurnar þegar þær mættu á Leicester Square.
Daniel Radcliffe, sem leikur sjálfan Harry Potter, sagðist vera ánægður með viðbrögð-
in og sagði að ef svona nokkuð hressti mann ekki við gerði ekkert það. Emma Wat-
son, sem leikur Hermione, sagði að stemmningin sem myndaðist á torginu hefði verið
ótrúleg og algjörlega yfirþyrmandi. Aðrir leikarar í myndinni eru m.a. Ralph Fiennes,
Michael Gambon og Dame Maggie Smith. Tökur á fimmtu
myndinni hefjast í febrúar á næsta ári, en Harry Potter og
Eldbikarinn sem er nýjasta myndin kemur í bíó í Eng-
landi þann 18. nóvember.
Douglas samþykkir
gamanmynd
Michael Douglas hefur skrifað undir samning um að leika í nýrri gamanmynd sem
heitir „The King of California“. Douglas mun þar leika sérvitran maníu-og þung-
lyndissjúkling, sem trúir því að það sé fjársjóður grafinn einhvers staðar í Kalíforn-
íu. Myndatökur hefjast í febrúar á næsta ári.
Jóhanna Sigurðardóttir
alþingismaður:
Jón nú er mælirinn fullur. Nýjar upp-
lýsingar í Kastljósi um að aðstand-
endur aldraðra þurfi sjálfir að kaupa
aðstoð inn á hjúkrunarheimilin til
að foreldri eða aðrir nákomnir fái
viðunandi þjónustu gera mann orð-
lausan. Er virkilega svo komið fyrir
einni rikustu þjóð heims að vegna
manneklu á hjúkrunarheimilum
þurfi aðstandendur sjálfir að kaupa
inn starfsfólk til að þeirra nánustu
fái mannsæmandi aðhlynningu.
Hvað með þá sem ekki hafa efni á
því? Erum við að stefna í að tvískipt
þjónustukerfi verði til á hjúkrunar-
heimilum aldraðra? Þetta bætist of-
an á fimm hundruð manna biðlista
eftir hjúrkunarheimilum, skort á
heimahjúkrun og heimaþjónustu
og að fjöldi aldraðra allt að fjóra eða
jafnvel fimm að húka saman í einu
herbergi. Þetta er hrikalegt. Hvað
er Jón heilbrigðisráðherra og ríkis-
stjórnin eiginlega að hugsa.
http://www.althingi.is/johanna/
Þórunn Sveinbjarnadóttir
alþingismaður:
Fréttir af fangaflutningum banda-
rísku leyniþjónustunnar varpar ljósi
á ógnvænlega þróun mannréttinda-
mála. Þróun sem rekja má til barátt-
unnar, eða stríðsins eins og sumir
vilja orða það, gegn hryðjuverkum.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa
nýtt afleiðingar hryðjuverkanna 11.
september 2001 til hins ítrasta. Að-
ferðirnar sem notaðar eru til þess
að „verja fósturjörðina“ eru farnar
að minna óþægilega á aðferðir her-
foringjastjórna og annarra harð-
stjóra. Nú er komið í ljós að Banda-
ríkjastjórn flytur fanga, sem margir
hafa verið í haldi án dóms og laga
árum saman, á milli landa til þess
að hægt sé að beita „árangursrík-
ari aðferðum" við að kreista út úr
þeim upplýsingar. 1 þessu skyni er
m.a. flogið með þá til landa i Aust-
ur-Evrópu þar sem menn hafa aug-
ljóslega ekki enn losað sig undan
arfleifð kommúnismans í meðferð
fanga. Kaldhæðnislegt, verð ég að
segja. Bandaríska Ieyniþjónustan er
búin að fá sér verktaka í skítverkin.
Verktaka sem brjóta mannréttindi á
föngum með svæsnum pyndingum.
Lægra er varla hægt að leggjast.
http://www.althingi.is/tsv/
eftir Jim Unger
HEYRST HEFUR...
Einn af vinsælli útvarps-
mönnum Rásar 2, Gestur
Einar Jónasson sem séð hefur
um þáttinn
Með grátt í
vöngum, flyt-
ur sig um set
í desember
og fer yfir á
Rás 1. Ekki er
vitað hvaða
þátt hann
verður með þar. Freyr Eyjólfs-
son kemur í staðinn á laugar-
dagana með þáttinn Geymt en
ekki gleymt. Þá flyst Lísa Páls
einnig yfir af Rás 2 á Rás 1. Svo
virðist sem Páll Magnússon og
félagar séu að skipta út eldra
fólki fyrir yngra fólk á Rás 2
og er hugmyndin væntanlega
sú að styrkja hana í samkeppni.
Það er svo annað mál hvort að
yngra fólk þýði meiri hlustun.
Islendingar sem komu með
vél Icelandair frá Lundún-
um í gær rak í rogastans og
héldu þeir margir að þeir væru
komnir í ranga vél. Ástæðan
var sú að fleiri Pólverjar voru
um borð en íslendingar. Ástæð-
an mun ekki vera aukinn áhugi
Pólverja á íslandi sem ferða-
mannalandi heldur voru hér
á ferð farandverkamenn sem
voru á leið til Reyðarfjarðar til
að vinna við álver Bechtel. Eft-
ir að hafa skálað vel um borð
er spurningin hvernig þeir
hafi upplifað landið þegar þeir
vöknuðu í morgunsárið austur
á Reyðarfirði.
m
TFmsir skynjuðu nýjan tón í
X hádegisfréttum Bylgunnar
í gær. Ek'
svo aðj ,
að ' breytt
ar áherslur
hafi verið í
fréttunum
og frétta-
mennirnir
voru nokk-
urn veginn
þeir sömu.
Hins vegar var eins og nýtt
hljóðstúdíó væri komið til sög-
unnar sem skilaði lestrinum
með heldur meira bergmáli en
áður. Ástæðan er sú að búið
er að færa Bylgjufréttamenn-
ina af Lynghálsinum, þar sem
þeir hafa verið í á annan tug
ára, og niður í Skaftahlíð. Þar
munu sjónvarps- og útvarps-
stjörnur þurfa að blanda geði
með óbreyttum blaðamönnum
þegar hin nýja fréttarás hefur
starfsemi - væntanlega strax í
byrjun næstu viku.
Og við ljúkum þessu með
tilvitnun í heimasíðu
Össurar Skarp-
héðinssonar.
Hann á ekki
í vandræðum
með að túlka
úrslitin í próf-
kjöri Sjálfstæð-
isflokksins og
botnaði pistil
sinn þegar úrslit lágu fyrir með
þessum orðum: “Það þekkja
ekki allir iðrin í sjálfum sér. Á
förnum vegi í gær sagði einn
af ráðherrum Sjálfstæðisflokks-
ins að Vilhjálmur yrði í fjórða
sæti - á eftir faglegum ráðgjafa
Þorgerðar Katrínar. Það munu
margir vakna úrillir að morgni
- ef þeim varð þá svefnsamt!”