blaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 blaðiö
Stjórnmál:
Ingibjörg
úr stjórnar-
skrárnefnd
HalldórÁsgrímsson forsætis-
ráðherra leysti í gær Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur undan
störfum hennar í stjórnar-
skrárnefnd. í hennar stað
hefur forsætisráðherra, að
tillögu Samfylkingarinnar,
skipað Kristrúnu Heimisdótt-
ur lögfræðing í nefndina.
„Það er bara því ég er að
reyna að losa um minn tíma til
að hafa meiri tíma til að sinna
formennskunni," sagði Ingi-
björg um málið 1 gær. „Ég er að
reyna að vera ekki með bundið
mikið af föstum fundartíma,
því ég vil hafa svigrúm til að
skipuleggja minn tíma. Það er
ekkert pólitískt á bak við þetta,“
sagði Ingibjörg ennfremur.
Ný bensínstöð
Skeifunni
Við hlið Krónunnar
KR©NAN
e
atlantsoua
laus
ATLANTSOLIA
- Ávallt ódýr -
Jákvœður tónn:
Engu lofað á tveggja tíma fundi
Þráttfyrir að engin efnislegsvör hafifengist áfundi með ráðherrum var á honum jákvœð-
ur tónn. Forseti ASÍ segist bjartsýnni eftir fundinn.
Starfsmenn 2B:
Ráðnir beint
til ístaks
Fyrirtækið ístak hf. hefur
fengið atvinnuleyfi fyrir 14
Pólverja sem fram að þessu
hafa unnið fyrir stafsmanna-
leiguna 2B. Vinnumálastofun
samþykkti og sendi atvinnu-
leyfin frá sér í gær. Því er Ijóst
að Pólverjarnir vinna ekki
lengur á vegum starfsmanna-
leigunnar hér á landi. Þetta
kemur fram á heimasíðu
Verkalýðsfélags Akraness.
„ístak og Verkalýðsfélag Akra-
ness hafa í sameiningu unnið
að því finna farsæla lausn á mál-
efnum pólsku starfsmannanna
og hefur það nú loksins tekist.
Þessi leið sem nú er farin er sú
sama og þegar Verkalýðsfélag
Akraness leysti mál Pólverjanna
5 sem starfa hjá Spútnik bátum
á Akranesi. Verkalýðsfélag
Akraness fagnar innilega því
að farsæl lausn hefur fundist á
þessari deilu“ segir á heima-
síðu Verkalýðsfélags Akraness.
Fulltrúar verkalýðshreyfingarinn-
ar gengu á fund forsætis- og utan-
ríkisráðherra í gær. Á fundinum var
rædd sú staða sem komin er upp í
tengslum við kjarasamninga og að-
komu ríkisstjórnarinnar að málinu.
Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar
hafa sagt það undanfarið að ef rík-
isstjórnin grípi ekki inn í, muni
almennum kjarasamningum verða
sagt upp um áramót.
Að sögn Grétars Þorsteinssonar,
forseta Alþýðusambands Islands
(ASÍ), voru fjórar megin kröfur
verkalýðshreyfingarinnar á hendur
ríkisins ræddar á fundinum. Hann
segir að þó engin bein svör hafi feng-
ist um einstök mál hafi allt annar
tónn verið í fulltrúum ríkisstjórn-
arinnar en á fyrri fundum. „Maður
er aðeins bjartsýnni en undanfarna
daga“ segir Grétar.
Fjórar megin kröfur
Hægt er að skipta kröfum verka-
lýðshreyfingarinnar í fjóra hluta. I
fyrsta lagi vill ASÍ hreyfingin að lög
verði settar á starfsmannaleigur, og
segir Grétar að lagasetning sé nú í
fullum undirbúningi. Krafa númer
tvö snýr að starfsmenntamálum og
fullorðinsfræðslu. „Þau svör sem
við fáum eru að málið sé til skoðun-
ar og að þeir sjái ekki annað en að
þar verði lagt fram eitthvað sem ætti
að vera ásættanlegt“ segir Grétar.
Þriðja krafan er að atvinnuleysis-
bætur verði tekjutengdar, en Grétar
segir að á fundinum hafi fengist þau
svör að um málið þyrftu verkalýðs-
hreyfingin og Samtök atvinnulífs-
ins (SA) að ná saman. Fjórða og sið-
asta krafa verkalýðshreyfingarinnar
snýr að aðkomu ríkisstjórnarinnar
að lifeyriskerfinu. „Á fundinum var
því lýst að málið sé erfitt en að það
verði skoðað,“ segir Grétar.
Frekari fundir framundan
Fjögurra manna nefnd ASÍ og SA hef-
ur tíma fram til 15. þessa mánaðar
til að finna út úr því hvernig komið
verði í veg fyrir uppsögn kjarasamn-
inga. En er tíminn ekki að renna frá
mönnum?
„Það er nú einhvern veginn í svona
samningagerð að oft dregur til tíð-
jillMMÍm*M**"**~
Fulltrúar rikisstjórnarinnar og ASi freista þess þessa dagana að koma í veg fyrir upp-
sögn almennra kjarasamninga.
inda síðustu sólarhringana. Það er
nægur tími til að ná saman ef vilji er
til. Þó lítið hafi miðað fram að þessu
vonum við að menn leggi til það sem
þarf, “ segir Gylfi.
Frekari fundir verða milli verka-
lýðshreyfingarinnar og stjórnvalda
næstu daga. ■
ítrekun
I grein Blaðsins í gær sem birt-
ist undir fyrirsögninni “Heföi
kostað ríkið nærri 15 milljónir”
heföi mátt skilja að Jón H.B.
Snorrason heföi rekið umrætt
mál frá upphafi. Af gefnu tilefni
skal það ítrekað hér að Jón tók
við málinu 1999 og kom ekki
nærri því fyrir þann tíma.
Jól í skókassa
BlaHið/Steinar Hugi
Um 30 krakkar úr æskulýðsstarfi Háteigskirkju unnu að því hörðum höndum i gær að
pakka inn jólagjöfum handa jafnöldrum sínum í Úkraníu. Þetta er liður í verkefni KFUM
og KFUK sem nefnist Jól í skókassa. Fyrir þá sem hafa áhuga að taka þátt í þessu verk-
efni er hægt að skila inn skókössum til 12. nóvember. Þá má skila inn notuðum leikföng-
um í verslanir Leikbæjar og fá í staðinn 10% afslátt af nýjum leikföngum.
Kina álitlegur kostur
I gær hélt fslenska-Kínverska Viðskiptaráðið upp á tíu ára afmæli. f tilefni af því var
haldin hátíðarráðstefna á Radison SAS þar sem fram komu fjölmargir erlendir jafnt sem
innlendir fyrirlesarar.
T
Sjóntækjafræðingur með réttindí til
sjónmælinga og linsumælinga
Endumýjar þú gleraugun þín nógu oft
eða langar þig bara í ný?
Vaxtalaus kjör í allt að 24 mánuði
engin útborgun
Suðurlandsbraut 50,
í bláu húsunum við Faxafen
Sími: 568 1800
Gleraugað