blaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 34

blaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 34
34 I KVIKMYNDIR MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 blaðiö SHOES Sýnd kl. 5:30, 8 og 10:20 bj.16 I Synd kl. 5:30, 8 oq 10:20 b.i. 16úi LJ íMSinXjitES’HTiyiFJWDI f - f 1 í i 1] 4m BÖLVIIM 4 V 1 HE X í lJL: rnyimummi DESCENT eco kl.6 Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára <»00 kr. í bíó! Glldlr á allar sýnlngar merktar með rauðu Horku sfiennumynú Ipa leikstjora 7 Fast, 2 furtous" 09 ' Boyf n ttic Hootí ÞÖR VORU LEID0IR I GILDRU... NÚ PflRF BNHVER flÐ GJALDfl! TONI SHIRLEY DIAZ COLLETTE AAACLAINE, m iHtoatctosof ixcoNHOtNii»r»oi«wBtuiOftKua8oa(orar .:aa]B IVINKONUR. I |_| z'iWk keppinautar_ in Her mW áSYSTUR Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sími 553 2075 T0PP MYNDIN Á ÍSLANDi OKTOBERBÍÓFEST íftT www.lcetandfilmlestlMl.is Adams Æbler • Sýnd kl. 6 Danskt tal/ótextuð My Summer of Love • Sýnd kl. 6 Enskt tal/ótextuð Lie With Me • Sýnd kl. 8 Enskt tal/islenskur texti 26. október -14. nóvember The Aristocrats * Sýnd kl 8 Enskt tai/ótextuð Kung Fu * Sýnd kl 10 Enskt tal/enskur texti Yes * Sýnd kl 10 Enskt tal/ótextuð Sýnd kl. 5.40 og 8 Sýnd kl. 10.40 B.i. 16 Sýnd kl. 10.15 B.i. 16 ára Sýnd kl. 3.50 með islensku tali. Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 Sýnd í Lúxus kl. 5,8 og 10.40 Frá leikstjórum There Is Something About Mary UD Dolby /DD/ 1 H X ■Q bíó.is Deep Jimi and the Zep Creams ★★★★^ Nýtt krydd í pottrétt alheimsrokksins Ný plata með Kiru Kiru Hljómsveitin Deep Jimi and the Zep Creams hefur verið til í fjölda- mörg ár eða frá árinu 1991. Hljóm- sveitina skipa Sigurður Eyberg sem syngur, Björn Árnason leik- ur á bassa, Þór Sigurðsson á gítar og Júlíus Freyr Guðmundsson sér um trommuleik. Þeir eru allir jafnaldrar úr Keflavík sem hófu kornungir að leika saman undir nafninu Pandóra, árið 1987. Pan- dóra gaf út 2 plötur, en síðan var nafninu breytt í Deep Jimi and the Zep Creams og undir því nafni gaf sveitin út 2 stórar plötur áður en hún lagðist í dvala, sem enginn vissi hvort hún myndi nokkru sinni vakna úr. Því lyftist brúnin og gamlir Deep Jimi-aðdáendur kætast, þegar nú kemur loksins út splunkunýr diskur, sem er sá fyrsti i tíu ár. Það er greinilegt að mikið hefur safnast af góðum lögum með- an á pásunni stóð, því nýja platan er sneisafull af mjög fínni tónlist. Það fyrsta sem maður tekur eft- ir þegar maður byrjar að hlusta er hve mikið lagt er í útsetningar laganna, og greinilegt að nostrað hefur verið við gítarútsetningar og almennt öll smáatriði. Aðal Deep Jimi hefur alla tíð verið kraftmik- ið rokk í anda sveitanna sem hljóm- sveitin tekur nafn sitt frá og þessi áhrif eru svo sem á sínum stað, en samt hefur greinilega átt sér stað þróun síðan síðasta plata kom út. Það eru agaðri, einbeittari og ná- kvæmari Deep Jimi sem hér eru mættir til leiks, og finnst mér eins og nú loksins viti þeir hvað það sé sem þeir eigi að léggja til málanna í pottrétt alheimsrokksins. Það má orða það svo að þeir séu bún- ir að finna sína eigin réttu krydd- blöndu, og geti því „vitnað í“ hina og þessa listamenn frá sjöunda og áttunda áratugnum án þess að það skyggi á þeirra eigin tónlist og þeirra eigin stíl. Það er mjög erfitt að útskýra hvað er búið að breyt- ast hjá meðlimum Deep Jimi and the Zep Creams. Ef til vill eru þeir bara búnir að fara einn hring um jörðina, og allir búnir að prufa að vinna með öðrum tónlistarmönn- um, sinna öðrum hugðarefnum í smá tíma, og fá þá fjarlægð á sam- starfið sem þeir þurftu á að halda. Það er nefnilega mjög auðvelt að spila tónlist eins og Deep Jimi er að spila, og klúðra henni. Það er allt of auðvelt að spila aðeins of löng gítarsóló, eða reyna að koma of miklu að í hverju lagi, og það eru hundruð þúsunda hljómsveita út um allan heim að reyna að gera góða rokktónlist en klúðra því. Hjá Deep Jimi finnst mér hins vegar eins og nú fyrst séu þeir búnir að finna hárrétt jafnvægi milli allra hluta, sem gera góða hljómsveit að frábærri hljómsveit. Söngvarinn hefur sjóast og þroskað rödd sína á undanförnum árum, enda búinn að ganga í gegnum leikaranám frá síðustu plötu. Gítarleikarinn spilar af sjálfsöryggi þess sem er hættur að þurfa að sýna hvað í sér býr og byrjaður vinna eins og skap- andi listamaður. Trommuleikur og bassaleikur Júlíusar og Björns er blanda af einhverjum yfirnátt- úrulegum frumkrafti og meitluð- um grunni sem allt annað liggur kjurrt og öruggt á. Þeir eru einfald- lega búnir að ná því að verða besta starfandi rokksveit Islands. Mér finnst mjög gaman að heyra fjöl- breytni laganna, en þarna skiptast á hraðari rokksmellir og hægari meira útpæld lög, og textarnir eru margir hverjir uppfullir af góðum hugmyndum. Auk augljósra áhrifa frá hljómsveitinni Led Zeppelin sem öðru hverju stinga upp koll- inum, fannst mér ég heyra örla á smá Ham-áhrifum í gíturum, en annars er tónlistin bara þeirra eig- in. Deep Jimi and the Zep Creams hafa sent frá sér framúrskarandi rokkplötu með nýstárlegu rokki, sem er algjörlega þeirra eigin list. Það verður stórkostlegt að geta mætt á tónleika og séð þá flytja nýj- asta verk sitt. heida@vbl.is Kira Kira, eða Kristín Björk Krist- jánsdóttir er einn af stofnendum hins íslenska tilraunaeldhúss/ kitchenmotors og síðastliðin 10 ár hefur hún framkallað hávaða með böndum á borð við Spúnk, Big band brutal og Stórsveit Sigríðar Níelsdótt- ur. Listamannsnafnið Kira Kira hef- ur hún notast við síðan haustið 1999 eftir martröð sem hún fékk í Tókíó. Hún hefur samið tónlist fyrir leikhús, dansverk og bíómyndir og komið oft fram, sem og haldið sýningar hérna heima og víðsvegar um Evrópu. Sjónræn verk eins konar reimleikar Sjónræn verk Kristínar eru oft ein- hverskonar reimleikar settir á svið með hjálp hljóða, reyks, vinda og ljósa og sett upp sem myndbönd eða innsetningar: syngjandi svarthol, einvígi tveggja reykvéla í kastala- turni, umsetin segulbandstæki, skjálfandi hurðir og fólk deyjandi úr hlátri eða ást. Fyrsta plata Kiru Kiru Skotta er fyrsta plata Kiru Kiru en sambandið milli ævintýragjarnrar tónlistar hennar og frumstæðra sýningaverka er sérstakt áhugamál Kiru Kiru. Hún á það til að koma fram ein þar sem hún syngur og leik- ur sér með þau hljóðfæri sem hún kemur höndum yfir og bætir þannig við þann vegg af hljóðum sem hún hefur búið til með hjálp tölvunnar. Stundum kemur hún þó fram með hljómsveit sem er þá oftast sett sam- an af vinum og vandamönnum sem eru fengnir með fyrir hverja tón- leika fyrir sig. ■

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.