blaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Taílendingar
koma sér upp
viðvörunarkerfi
Taílendingar segjast vera búnir
að koma sér upp viðvörun-
arkerfi vegna flóðbylgju af
völdum neðansjávarjarðskjálfta
í samvinnu við Bandaríkja-
menn og nágrannaríki sín.
„Framfarirnar hafa verið mjög
viðunandi. Nú höfum við kerfi
sem virkar og mun geta varað
fólk tímanlega við sem býr
á eða heimsækir svæði sem
kunna að vera í hættu,“ sagði
Kantathi Suphamongkhon,
utanríkisráðherra í viðtali
við AFP-fréttastofuna.
Hann sagði ennfremur
að ríkisstjórnin hefði unnið
með nágrönnum sínum og
flóðbylgjumiðstöðinni á
Hawaii að þróun slíks kerfis
síðan flóðbylgjan mikla skall
á landinu í lok desember á
síðasta ári. Nærri 5400 manns
fórust í flóðbylgjunni.
Ráðherrann lagði áherslu á
að það kynni að taka fáeinar
klukkustundir fyrir flóðbylgjur
að skella á landinu þar sem
það séu engin jarðskjálftamis-
gengi í nágrenni Taílands.
Maður deyr úr
fuglaflensu í Víetnam
Lést eftir að hafa neytt kjúklings. Einnig leikur grunur á að stúlka
sem lést á Indónesíu hafi verið haldin sjúkdómnum. Sérfrœðingar
leggja á ráðin um viðbrögð við hugsanlegum faraldri í Genf.
Starfsmaður á markaði með fuglakjöt í Jakörtu á Indónesíu þar sem talið er að stúlka
hafi látist úr fuglaflensu í gær.
Taflendingar hafa kannað mögu-
leika á að koma upp kerfi sem gæti
varað við flóðbylgju á borð við
þá sem olli gífurlegu eignatjóni
og mannfalli í Asíu í desember á
síðasta ári.
Maður á fertugsaldri lést nýlega
úr fuglaflensu í Víetnam og varð
þar með 42. fórnarlamb sjúkdóms-
ins í landinu. Maðurinn sem er frá
Hanoi lést á sjúkrahúsi í lok síðasta
mánaðar eftir að hafa greinst með
hið mannskæða HsNi-afbrigði
flensunnar. Hann veiktist eftir að
hafa lagt sér til munns kjúkling.
Ættingjar hans sem einnig neyttu
kjúklingsins veiktust ekki sam-
kvæmt upplýsingum yfirvalda.
Þetta er fyrsta dauðsfallið af völdum
fuglaflensu í Víetnam í þrjá mánuði
en veiran hefur orðið meira en 60
manns að bana í suðausturhluta As-
Upplýsingatækni í dreifbýli
Ráðstefha í Reykholti, fimmtudaginn lO.nóvember 2005
Fundarstjóri: Eiríkur Biöndal, framkvæindastjóri
l-'undarsetning: Guðni Agúslsson, landbúnaöarraðherra 10:00 - 10:20
Kynning á ráðstefnu og LD-verkefninu 10:20- 10:40
Hrund Pétursdótlir
Fjarskiptaáætlun 2005 - 2010 10:45 - 11:10
Ari Jóhannsson. verkefnastjóri hjá Póst og Ijarskiptastofnun
Nokkur verkefni á sviði upplýsingatækni 11:10-11:35
Þórarinn Sólmundarson sérfraAingur þróunarsviði Byggðastofnunar
Menntun og miðlun 11:35-12:00
Agúst Sigurðsson, rektor Landbúnaöarháskóla islands.
Einkavæðing, arðsemi og dreifbýli íslands 12:00 -12:25
Cirétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjónnálafræði við
Viðskiptaháskólann á Bifröst
Matarhlé 12:25-13:10
Síminn — upplýsingatækni f dreifbýli 13:10- 13:35
Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Sínians
Kekstur og samkeppni í dreifliýli 13:35 - 14:00
Stefán Jóhannesson framkvæmdastjóri Etnax ehf.
Fjarskipti í dreifbýli 14:00 - 14:25
Þór Þorsteinsson framkvæmdasljóri Nepal
L pplýsingasamfélagið fyrir alla! - Nctforrit bændasamtakanna 14:25-14:50
Jón Baldur Lorange, forstöðumaður tölvudeildar Bændasamtaka íslands
Kaffiveitingar
Lmræður og fyrirspurnir
Fundarslit áætluð kl. 16:00
Œ
KB BANKI |^f
RARIK
<S> JL
Síminri
Bysgðastofnun
íu síðan síðla árs 2003. Ennfremur er
talið að stúlka sem lést á Indónesíu í
gær hafi verið með sjúkdóminn og er
beðið eftir niðurstöðum rannsókna
til að geta staðfest það. Reynist það
rétt verður hún sjötta fórnarlamb
sjúkdómsins í landinu. Stúlkan sem
var 16 ára var flutt á sjúkrahús í Jak-
örtu, höfuðborg Indónesíu, á sunnu-
dag með háan hita og alvarlega
lungnabólgu og lést í gærmorgun.
Hún bjó í úthverfi í austurhluta borg-
arinnar, ekki langt frá fuglamarkaði
en þó er ekki vitað hvort hún hafi
komist í snertingu við smitaða ali-
fugla. Af einkennum að dæma er þó
talið líklegt að um fuglaflensu sé að
ræða og má búast við niðurstöðum
rannsókna á næstu dögum.
Sérfræðingar funda um viðbrögð
Á mánudag hófst neyðarfundur
sérfræðinga á vegum Álþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar í Genf
þar sem lagt er á ráðin um samhæfð-
ar aðgerðir gegn útbreiðslu sjúk-
dómsins. Sérfræðingar sem taka
þátt í fundinum hvetja ríki heims
til að koma sér upp áætlunum um
hvernig eigi að bregðast við faraldri
ef þau hafa ekki þegar gert það. Þeir
eru sammála um að hætta sé á að
faraldur sem gæti orðið milljónum
að bana brjótist út. Heimsbankinn
áætlar að það geti kostað meira en
800 milljarða Bandaríkjadala ef
fuglaflensuveiran stökkbreytist og
berist á milli manna.
Annar lögmað-
ur myrtur
Verjandi fyrrverandi varafor-
seta íraks í réttarhöldunum yfir
Saddam Hussein var myrtur í
gær í vesturhluta Bagdad. Adel
al-Zubeidi sem var lögmaður
Taha Yassin Ramadan, var myrt-
ur og annar lögmaður særðist
í fyrirsát í Adil-hverfinu. Al-Zu-
beidi er annar verjandi í mál-
inu sem er myrtur á innan við
mánuði. Þann 20. október slð-
astliðinn var Saadoun al-Janabi,
lögmanni Awad al-Bandar, eins
sakborninga í málinu, rænt af
skrifstofu sinni af tíu grímu-
klæddum mönnum. Lík hans
fannst fáeinum klukkustund-
um síðar á gangstétt við mosku
í austurhluta borgarinnar.
Auka notkun
endurnýjan-
legrar orku
Kínverjar hyggjast eyða um
180 milljörðum Bandaríkjadala
á næstu 15 árum til að auka
notkun endurnýjanlegra orku-
gjafa úr 7% í 15%. Áætlunin var
kynnt á alþjóðlegri ráðstefnu
um endurnýjanlega orkugjafa
í Peking í gær. Yfirvöld vonast
til að þetta kunni að hafa um-
talsverðan efnahagslegan og
umhverfislegan ávinning í för
með sér. Stavros Dimas sem
fer með umhverfismál innan
Evrópusambandsins sagði að
mikilvægt væri fyrir Kínverja
að þróa endurnýjanlega
orkugjafa til að vera ekki eins
háðir hefðbundnum orkugjöf-
um og eiga auðveldara með
að takast á við orkukreppur.
í fangelsi fyrir
að prenta biblíur
Dómstóll í Kína dæmdi í gær prest
úr kirkju mótmælenda, eiginkonu
hans og bróður hennar til fangelsis-
vistar fyrir að hafa ólöglega prentað
biblíur og önnur kristileg rit.
í Kína, sem er opinberlega trúlaust
land þarf sérstakt leyfi trúmálayfir-
valda til að prenta biblíur og önnur
trúarrit. Ekki er hægt að kaupa bibl-
íur í bókaverslunum f landinu sem
hefur lengi verið gagnrýnt á alþjóða-
vettvangi fyrir skort á umburðar-
lyndi í garð trúarbragða.
þriggja ára fangelsisdómur
Presturinn Cai Zhuohua sem var
handtekinn í september á síðasta ári
hlaut þriggja ára fangelsisdóm fyrir
„ólöglega viðskiptahætti“ að sögn lög-
manns hans. Eiginkona hans hlaut
tveggja ára dóm og bróðir hennar 18
mánaða dóm fyrir svipaðar ákærur.
Búist er við að þau muni áfrýja dóm-
inum. Fjórði sakborningurinn, mág-
kona eiginkonu prestsins, slapp við
refsingu fyrir að hafa geymt í fórum
sfnum ólöglega vöru þar sem hún
vitnaði gegn mágkonu sinni.
Mannréttindafrömuðir segja að þó
að trúfrelsi sé tryggt í stjórnarskrá
Kína og trúuðum sé leyft að iðka trú
sína í hefðbundnum kirkjum beiti
stjórnvöld í auknum mæli lögfræði-
legum klækjum til að ráðast gegn
heimakirkjum og óhefðbundnum
trúhópum.
Ströng lög gilda um prentanir á biblíum og öörum trúarritum I Kína.
Biblían á myndinni er ekki sú sem um ræöir.